Samstarf

Hraðhleðslur spretta upp sem gor­kúlur - tvær opna á Þórs­höfn

Brimborg
Hraðhleðslustöðvar hringinn í kringum landnið eru nú 147 talsins (skv. plugshare.com). Brimborg Bílorka hefur sett upp 12 hraðhleðslustöðvar á síðustu 12 mánuðum.
Hraðhleðslustöðvar hringinn í kringum landnið eru nú 147 talsins (skv. plugshare.com). Brimborg Bílorka hefur sett upp 12 hraðhleðslustöðvar á síðustu 12 mánuðum.

Brimborg Bílorka opnar tvær hraðhleðslustöðvar á Þórshöfn sem gerir rafbílanotendum kleift að ferðast áhyggjulaust alla leið á Langanes. Stöðvarnar eru góð viðbót í vaxandi net hraðhleðslustöðva á landinu sem auðveldar rafbílanotendum lífið. 

Hraðhleðslustöðvar hafa sprottið upp eins og gorkúlur víðsvegar um landið undanfarin ár og eru nú 147 talsins (skv. plugshare.com) með hátt í 400 hraðhleðslutengi sem hefur gert ferðalög á rafbílum sífellt þægilegri. Norðausturhornið hefur setið á hakanum en nú verður breyting á.

N1 skálinn á Þórshöfn

Uppsetning hraðhleðslustöðva Bílorku er í samstarfi við Gistiheimilið Lyngholt á Þórshöfn. Önnur þeirra er sett upp við ENN 1 SKÁLANN og hin er við gistiheimilið sjálft. Sú stöð mun einnig nýtast viðskiptavinum nýs veitingastaðar Holtið Kitchen Bar sem opnar í sumar í félagsheimili staðarins og mun laða að enn fleiri ferðamenn til Þórshafnar.

Brimborg Bílorka hefur sett upp 12 hraðhleðslustöðvar á síðustu 12 mánuðum og meðal annars þá öflugustu á landinu sem er 600 kW stöð í Reykjanesbæ sem getur hlaðið 8 rafknúin ökutæki í einu. Markmið Brimborgar Bílorku er að efla samkeppni á rafhleðslumarkaði og bjóða framúrskarandi þjónustustig sem er það sem af er ári 99,4%.

Auðveld uppsetning, lægra hraðhleðsluverð

Stöðvarnar á Þórshöfn eru sérlega hentugar fyrir minni þéttbýlisstaði þar sem þær eru auðveldar í uppsetningu og krefjast ekki mikillar orku og því nýtist umframorka á uppsetningarstað. Sökum þess er hraðhleðsluverðið mjög hagstætt. Hvor stöð er 30 kW með einu CCS tengi og getur stöðin bætt við um 100 km af drægni á 40 mínútum fyrir meðalstóran rafbíl. Þegar umferð rafbíla eykst á svæðinu er síðan hægt að fjölga stöðvum eða stækka þær.

Hraðhleðslustöð á N1 skálanum á Þórshöfn

Einfalt er að hefja hleðslu í hraðhleðslustöðvunum með e1 appinu eða hleðslulykli því tengdu og appið er einnig notað til að greiða fyrir hleðsluna. Í e1 appinu er að finna verðskrá fyrir hleðslustöðvarnar, staðsetningu og allar hleðsluupplýsingar.

Lægri ferðakostnaður á rafbíl og betri nýting á raforkukerfinu

Rafbílar eru einstaklega hagstæðir í rekstri enda nýta þeir orkuna mun betur en aðrar gerðir bíla, íslenska raforkan er ódýrari og svo er viðhaldskostnaður rafbíla minni. Rafbílar geta verið allt að 76% ódýrari í rekstri á ársgrundvelli sem lækkar ferðakostnað innlendra sem erlendra ferðamanna og hjálpar til að dreifa ferðamönnum betur um landið.

En rafbílar eru ekki eingöngu ódýrari í rekstri heldur losa þeir engar gróðurhúsalofttegundir né mengandi efni við aksturinn. Þeir auka nýtingu raforkukerfisins þar sem þeir nýta lausa umframorku bæði yfir daginn og nóttina og ekki síður á sumrin þegar orkunotkun Íslendinga er í lágmarki. Það eflir orkuöryggi Íslands og eykur arðsemi flutnings- og dreifikerfis raforku sem nýta má til að styrkja það enn frekar.

Hraðhleðslustöðvarnar opna norðausturhornið fyrir rafbílanotendum

Tilkoma stöðvanna mun ýta undir rafbílaumferð á svæðið en hingað til hafa rafbílanotendur, innlendir sem erlendir ferðamenn, veigrað sér við að ferðast á norðausturhornið vegna skorts á hleðslumöguleikum.

Hraðhleðslustöð hjá gistiheimlinu Þingholti á Þórshöfn

„Þetta framfararskref sem beðið hefur verið eftir, er klárlega liður í því að auðvelda ferðamönnum að sækja svæðið heim. Þar sem sífellt fleiri Íslendingar kjósa að keyra um á rafbílum og bílaleigurnar bjóða meira úrval rafbíla til erlendra ferðamanna er ljóst að umferð rafbíla mun aukast og einnig á norðausturhornið. Dreifing ferðamanna víðar um landið hefur jákvæð áhrif á ferðaþjónustuaðila og fyrirtæki í tengdri starfsemi. Ferðaþjónusta á svæðinu er vaxandi grein en ferðamannatímabilið er þó enn tiltölulega stutt svona norðarlega og því skiptir hver ferðamaður máli“ segja Karen og Ólafur, eigendur Gistiheimilisins Lyngholts og rekstraraðilar ENN 1 SKÁLANS á Þórshöfn.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×