Körfubolti

Hvað var LeBron að gera í Cle­veland?

Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar
LeBron James kíkti á leik Cleveland og Boston í úrslitakeppninni.
LeBron James kíkti á leik Cleveland og Boston í úrslitakeppninni. Nick Cammett/Getty Images

LeBron James, stórstjarna Los Angeles Lakers, var staddur í heimaborg sinni Cleveland nýverið þar sem Cleveland Cavaliers mættu Boston Celtics í úrslitakeppni NBA-deildarinnar í körfubolta. Það vakti athygli þar sem LeBron gæti fengið sig lausan frá Lakers í sumar.

Eftir að Lakers féll úr leik gegn Denver Nuggets í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í NBA-deildinni var greint frá því að hinn 39 ára gamli LeBron væri að hugsa um framtíð sína og gæti yfirgefið Lakers.

LeBron hefur verður harður á því að hann vilji spila hið minnsta eitt tímabil með syni sínum Bronny. Sonur hans verður í nýliðavalinu fyrir komandi tímabil og samkvæmt miðlum vestanhafs er Lakers opið fyrir því að fá Bronny í sínar raðir sem og að gefa LeBron nýjan samning þrátt fyrr að hann sé korter í fertugt.

LeBron á hliðarlínunni.Nick Cammett/Getty Images

Það vakti því mikla athygli þegar LeBron sást á fjórða leik Cavaliers og Celtics í úrslitakeppninni þar sem hann á mikla sögu með Cavaliers og varð til að mynda meistari með liðinu árið 2016. Celtics eru svo erkifjendur Lakers svo það er ekkert sérstaklega vel séð að vera á leik með grænum. Að því sögðu var ljóst að LeBron er kominn í frí þar sem hann var með flösku af rauðvíni undir sæti sínu.

Samkvæmt ESPN var LeBron þó ekki þar með það að markmiði að ræða við Cavaliers heldur var hann þar með eiginkonu sinni, Savannah, til að fagna Mæðradeginum. Rich Paul, umboðsmaður LeBron og nokkurra leikmanna Cavaliers, hringdi í forráðamenn Lakers og lét vita að LeBron yrði á leiknum þar sem það yrði án efa fjölmiðlafár í kringum veru hans þar.

Sérfræðingar ESPN telja þó að LeBron viti nákvæmlega hvað hann er að gera og þetta sé allt gert til að setja pressu á Lakers. Eitthvað sem hann hefur gert reglulega þegar hann er ósáttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×