Innlent

Veit ekki hvort hann fái svar áður en spurningin verði úr­elt

Jón Þór Stefánsson skrifar
Að mati Helga yrði það grafalvarlegt ef Blessing yrði send úr landi áður en að afstaða verður tekin í málinu.
Að mati Helga yrði það grafalvarlegt ef Blessing yrði send úr landi áður en að afstaða verður tekin í málinu. Vísir/Ívar Fannar

„Við höfum fengið svör en engin viðbrögð,“ segir Helgi Þorsteinsson Silva, lögmaður Blessing Uzoma Newton sem flytja á úr landi í dag. Samkvæmt læknisvottorði er hún ekki ferðafær vegna mjög slæmrar heilsu. Helgi hefur óskað eftir því að brottvísuninni verði frestað vegna þess og fengið svör um að beiðni hans hafi verið móttekin.

Umrætt svar barst til hans í morgun. „Ég spurði hvort ég gæti þá fengið að vita hvenær brottvísunin er, en það eru ekki upplýsingar sem þeir gefa. Í kjölfarið spurði ég hvort það yrði búið að taka afstöðu til erindisins þegar brottflutningurinn fer fram, og þau gátu ekki svarað því,“ segir Helgi.

„Þannig ég er í raun ekki búinn að fá svar um það hvort ég fái svar áður en spurningin er orðin úrelt. Ég er bara búinn að fá formlegt svar um það að erindið sé til skoðunar.“

Að svo stöddu segist Helgi lítið geta gert nema að ítreka að erindi hans sé áríðandi.

Blessing er ein þriggja sem setið hafa í varðhaldi frá því á föstudag og til stendur að flytja til Nígeríu.

Í læknisvottorðinu kemur fram að Blessing sé með æxli í kviðarholi, sem hafi stækkað töluvert að undanförnu. Lífsnauðsynlegt sé að Blessing hafi greiðan aðgang að bráðaþjónustu sérhæfðra kvennadeilda á sjúkrahúsi. Hún þurfi þétt eftirlit, blóðprufur og blóðgjöf eða járngjafir í æð þegar þess þarf með.

Að mati Helga yrði það grafalvarlegt ef Blessing yrði send úr landi áður en að afstaða hafi verið tekin í málinu.


Tengdar fréttir

„Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“

Lögmaður kvenna sem vísa á úr landi eftir helgi segir skjóta skökku við að íslensk stjórnvöld ætlist til þess að fórnarlömb mansals stigi fram og segi sögu sína, þegar viðbrögð ríkisins séu þau að handtaka fórnarlömbin og senda þau úr landi. Konurnar segjast allar hafa verið fórnarlömb mansals áður en þær komu hingað til lands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×