Minnstu smáatriði úthugsuð og til þess gerð að skapa hughrif Halla Hrund er bæði í fortíð og framtíð í framsetningu framboðs síns. Jón Gnarr er í karakter, Baldur með áferðarfallega ímynd og Katrín eini frambjóðandinn sem forðast fánalitina. Þetta segir sérfræðingur í myndmáli. Innlent 12.5.2024 21:00
„Þegar manni líður vel í eigin skinni skín það í gegn“ Tískuskvísan Fanney Ingvarsdóttir starfar sem samfélagsmiðlasérfræðingur hjá Bioeffect og hefur gaman að tjáningarformi tískunnar. Á unglingsárunum var Stjörnugallinn einkennisbúningur Fanneyjar sem æfði handbolta og fótbolta af fullum krafti en eftirminnilegasta flíkin er líklega síðkjóll frá Ungfrú Ísland. Fanney er viðmælandi í Tískutali. Tíska og hönnun 11.5.2024 11:30
„Stútfull og við það að springa en hefur aldrei klikkað“ Tónlistarmaðurinn Magnús Jóhann er stöðugt að og er því mikilvægt fyrir hann að vera vel búinn þegar að það kemur að töskunni hans. Fartölvan er það allra mikilvægasta en hann er duglegur að skipta um tösku og hefur gaman að því að vera með nokkrar töskur í stíl. Magnús Jóhann er viðmælandi í fasta liðnum Hvað er í töskunni? Tíska og hönnun 9.5.2024 11:30
„Fólk heldur kannski að það sé saklaust að kaupa eina falsaða tösku“ Afadagur, fjögurra daga vinnuvika og skipulögð glæpastarfsemi er rædd í viðtali við Þórunni Sigurðardóttur sem er búsett í Hollandi. Atvinnulíf 6. maí 2024 07:01
Fataherbergið seldi henni íbúðina strax Ofurskvísan Anna Björk er nýútskrifuð úr meistaranámi í mannauðsstjórnun og elskar fjölbreytileika tískunnar. Hún er viðmælandi í Tískutali. Tíska og hönnun 4. maí 2024 11:31
Alltaf með naglaþjöl en gleymir stundum lyklunum Tískuhönnuðurinn Berglind Hlynsdóttir hannar undir nafninu Bosk og hefur vakið athygli fyrir einstakar og litríkar töskur. Það er búið að vera mikið um að vera hjá Berglindi í kringum HönnunarMars og er hún gjarnan með marga bolta á lofti en hún gaf sér tíma til þess að veita lesendum Vísis innsýn í töskuna sína í fasta liðnum Hvað er í töskunni? Tíska og hönnun 2. maí 2024 11:31
Ný vörulína lagar litabletti í húð Bright Reveal er splunkuný húðvörulína frá L´Oréal Paris sem er að slá í gegn. Vörurnar innihalda einstakt virkt efni sem Erna Hrund Hermannsdóttir, vörumerkjastjóri L´Oréal Paris á Íslandi segir leikbreyti þegar kemur að lagfæringum á húð og endurnýjun. Lífið samstarf 2. maí 2024 09:04
„Nútíminn er trunta“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson er ekki hrifinn af ýmis konar nútímavæðingu í arkítektúr og innanhússhönnun. Nú eru það nýr hurðarhúnn á Alþingi sem fær sinn skerf af gagnrýni frá þessum reynda þingmanni. Lífið 1. maí 2024 14:51
Gerða og glæsilegar gellur á Edition Íþróttafrömuðurinn Gerður Jónsdóttir, þekkt sem Gerða-In Shape eða Jane Fonda Íslands, bauð sannkölluðum ofurskvísum í partý á hótelinu Reykjavík Edition síðastliðið miðvikudagskvöld í tilefni opnun vefsíðunnar In shape. Lífið 30. apríl 2024 21:01
Innsýn í fatahönnun framtíðarinnar Það var líf og fjör í nýja Landsbankahúsinu á laugardag þegar fatahönnuðir framtíðarinnar komu saman og settu upp lifandi sýningu. Tíska og hönnun 29. apríl 2024 20:00
Lófaklapp og litagleði á tískusýningu útskriftarnema Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands fór fram með pomp og prakt í Hörpu á föstudagskvöld. Fatahönnuðir framtíðarinnar sýndu útskrifarverk sín við frábærar undirtektir gesta. Bjarni Einarsson tökumaður Vísis var á staðnum og tók upp sýninguna en hana má sjá í heild sinni í spilaranum hér í pistlinum. Tíska og hönnun 29. apríl 2024 15:01
Hera í gylltum galla á fyrstu æfingunni Hera Björk steig í fyrsta skiptið á Eurovision sviðið á sinni fyrstu æfingu í Malmö í gær. Þar mátti sjá Heru í glænýjum gylltum samfestingi. Lífið 29. apríl 2024 10:24
Hvar er eldhúsglugginn? Áherslur á hönnun heimilisins eru í stöðugri þróun. Breytingarnar eru hraðar og erfitt að fylgjast með öllum nýjungum. Og kannski engin ástæða til. Tískan á hverjum tíma hefur engu að síður áhrif á hvernig við horfum á hlutina í kringum okkur. Skoðun 28. apríl 2024 13:31
Metmæting á tískusýningu útskriftarnema LHÍ Tískusýning útskriftarnema í fatahönnun frá Listaháskóla Íslands fór fram í Hörpu í gær. Þar sýndu fatahönnuðir útskriftarverk sín. Verkin eru einstaklingsverkefni sem samanstanda af frjálsri rannsókn, hönnun og gerð á línu af tískufatnaði undir handleiðslu leiðbeinenda. Sýningarstjóri var Anna Clausen Lífið 27. apríl 2024 16:45
Strangheiðarleg dreifbýlistútta og lopapeysan í uppáhaldi Lífskúnstnerinn Ingunn Ýr Angantýsdóttir hefur gaman að því hvað tískan getur verið óútreiknanleg. Hún er tveggja barna móðir búsett í Ólafsvík og lýsir sjálfri sér sem strangheiðarlegri dreifbýlistúttu á Snæfellsnesi. Ingunn Ýr er með einstakan og glæsilegan stíl en hún er viðmælandi vikunnar í Tískutali. Tíska og hönnun 27. apríl 2024 11:30
Fágæt og falleg eign við Flókagötu Við Flókagötu 43 má finna glæsilega 159 fermetra sérhæð á tveimur hæðum, þar af ris sem er undir súð, í reisulegu steinhúsi sem var byggt árið 1945. Húsið er teiknað af Halldóri Jónssyni arkitekt. Ásett verð er 140 milljónir. Lífið 26. apríl 2024 12:56
Innivist er mikilvægasti þátturinn við hönnun íbúða! Þegar íbúðir eru hannaðar þarf að sjá til þess að skapa gott umhverfi svo að íbúar fái tækifæri til að þrífast og dafna inni í íbúðinni. Skoðun 26. apríl 2024 07:31
„Elska að hafa skipulagt kaos“ Fatahönnuðurinn Aníta Hirlekar stendur á tímamótum þar sem hún og kollegi hennar Magnea eru að opna nýja verslun við Hafnartorg. Þær fögnuðu opnuninni með pompi og prakt í gær og hafa síðustu dagar því verið mjög viðburðaríkir en Aníta gaf sér þó tíma til að opna tösku sína fyrir lesendum Vísis hér í fasta liðnum Hvað er í töskunni? Tíska og hönnun 25. apríl 2024 11:30
Hvar er híbýlaauður? „Nú virðist tími til þess kominn, að við gætum vel að því, hvert við stefnum. Með stórauknu menningarsambandi við umheiminn eigum við nú að hafa öðlazt þá menntun, að við eigum að vera þess umkomnir að velja og hafna réttilega, og byggja einungis á þann hátt, sem er í samræmi við þarfir okkar og getu, en taka ekki athugasemdalaust við öllu því, sem að okkur er rétt,” segir í bókinni Húsakostur og híbýlaprýði sem kom út árið 1939. Skoðun 24. apríl 2024 13:00
Uppskera að vori HönnunarMars er einn af skemmtilegustu og kröftugustu vorboðum hvers árs. Hvort sem honum er fagnað í mars, apríl eða maí – íslenska vorið getur líka komið hvenær sem er. Á HönnunarMars gefst tækifæri til að hrífast og upplifa frábæra íslenska hönnun, fræðast um spennandi stefnur og strauma og eiga frjótt samtal um framtíðina. Skoðun 24. apríl 2024 10:01
Flugfreyjuhattar Icelandair frá tískurisanum Balenciaga fá nýtt líf Einkennisfatnaður Icelandair hefur flogið út um allan heim. Hann hefur þjónað hlutverki sínu til fjölda ára og tekið á móti milljónum farþega um borð. Í fyrra var nýr einkennisfatnaður tekinn í notkun og sá gamli, sem hannaður var af Steinunni Sigurðardóttur, heldur nú ferðalagi sínu áfram í annarri mynd. Lífið 24. apríl 2024 09:01
„Spyr mig oft hvort öll þessi vinna sé þess virði“ „Ég hef alltaf haft áhuga á tísku og klæðnaði en bjóst seint við að taka áhugamálið á þetta stig,“ segir fatahönnuðurinn Björn Hugason. Hann mun frumsýna fatalínu undir sama nafni á Hönnunarmars í Kiosk, Grandagarði 35 næstkomandi fimmtudag. Tíska og hönnun 23. apríl 2024 17:00
Listræn súkkulaðiupplifun og girnilegt smakk Vöruhönnuðurinn Theodóra Alfreðsdóttir er hugfangin af súkkulaði og rannsakar ólíkar hliðar þess á sýningunni Samruni á HönnunarMars. Sýningin er unnin í samstarfi við súkkulaðigerðina Omnom. Tíska og hönnun 23. apríl 2024 14:00
Menningarlífið iðar og HönnunarMars hefst á morgun HönnunarMars hefst með glimmeri, pompi og prakt á morgun við hátíðlega athöfn í Hafnarhúsinu klukkan 17:00. Menningarunnendur geta sótt fjöldann allan af viðburðum á næstu dögum og stendur hátíðin fram á sunnudag. Tíska og hönnun 23. apríl 2024 13:00