| 18:23 |
VeðurÍtarlegt veðurfréttayfirlit.
|
| 18:30 |
|
| 18:47 |
Íþróttir
|
| 18:54 |
Ísland í dagUmsjónarmenn fara yfir helstu tíðindi dagsins úr pólitíkinni, menningunni og mannlífinu. Ítarlegur íþróttapakki og veðurfréttir.
|
| 19:11 |
Veður
|
| 19:20 |
The SimpsonsMarge kemst í mikið uppnám þegar hún sér Hómer daðra við tvær konur og ákveður að kanna hvort hún sé hætt að vekja áhuga eiginmannsins. Eftir heiðarlega tilraun sem svæfir Hómer ákveður hún að gera dramatískar breytingar á útliti sínu.
|
| 19:45 |
Arrested DevelopmentStöð 2 rifjar upp þessa frábæru og frumlegu gamanþáttaröð sem fjallar um geggjuðustu fjölskyldu sem um getur, að Simpson-fjölskyldunni meðtalinni.
|
| 20:10 |
New GirlFrábærir gamanþættir um Jess sem neyðist til að endurskoða líf sitt þegar hún kemst að því að kærastinn hennar er ekki við eina fjölina felldur. Hún finnur sér draumameðleigjendur þegar hún flytur inn með þremur karlmönnum og eru samskipti fjórmenninganna vægast sagt skopleg.
|
| 20:35 |
2 Broke GirlsNý og hressileg gamanþáttaröð sem fjallar um stöllurnar Max og Caroline sem kynnast við störf á veitingastað. Við fyrstu sýn virðast þær eiga fátt sameiginlegt. Við nánari kynni komast þær Max og Caroline þó að því að þær eiga fleira sameiginlegt en fólk gæti haldið og þær leiða saman hesta sína til að láta sameiginlegan draum rætast.
|
| 21:00 |
Grey's AnatomyÁttunda sería þessa vinsæla dramaþáttar sem gerist á skurðstofu á Grace- spítalanum í Seattle-borg þar sem starfa ungir og bráðefnilegir skurðlæknar. Flókið einkalíf ungu læknanna á það til að gera starfið ennþá erfiðara.
|
| 21:45 |
Gossip GirlFimmta þáttaröðin um líf fordekraða unglinga sem búa í Manhattan og leggja línurnar í tísku og tónlist enda mikið lagt upp úr útliti og stíl aðalsögupersónanna. Líf unglinganna ætti að virðast auðvelt þar sem þeir hafa allt til alls en valdabarátta, metnaður, öfund og fjölskyldu- og ástarlíf þeirra veldur þeim ómældum áhyggjum og safaríkar söguflétturnar verða afar dramatískar.
|
| 22:30 |
Living Out LoudMögnuð og áhrifamikil mynd um Emily Marshall en lífi hennar er snúið á hvolf þegar hún greinist með brjóstakrabbamein á miðjum aldri. Hún endurskoðar líf sitt og kemst að því að það er ekki of seint að láta suma drauma sína rætast.
|
| 00:00 |
Mið-ÍslandGlænýir og sprenghlægilegir gamanþættir frá uppistandshópnum Mið Íslandi en þeir eru Ari Eldjárn, Bergur Ebbi, Jóhann Alfreð og Dóri DNA. Auk þeirra fer leikkonan Dóra Jóhannsdóttir með stórt hlutverk í þáttunum. Nýtt og brakandi ferskt íslenskt grín eins og það gerist allra best.
|
| 00:30 |
The CloserSjöunda þáttaröðin um líf og starf morðrannsóknardeildar hjá lögreglunni í Los Angeles. Þar fer Brenda Johnson með völd, en hún býr yfir einstakri næmni og hæfileika til að skyggnast inn í líf fórnarlamba sem og grunaðra. Það er sem fyrr Kyra Sedgwick sem fer með aðalhlutverkið.
|
| 01:10 |
NCIS: Los AngelesÖnnur þáttaröðin um starfsmenn sérstakrar deildar innan bandaríska hersins sem hafa það sérsvið að rannsaka glæpi sem tengjast sjóhernum eða strangæslunni á einn eða annan hátt. Með aðalhlutverk fara meðal annars Chris O'Donnell og LL Cool J.
|
| 01:55 |
Rescue MeFimmta þáttaröðin um slökkvuliðsmanninn Tommy Gavin og dramatíska en þó oft á tíðum spaugilega glímu hans við lífið eftir skilnað sem og hryðjuverkaárásirnar þann 11. september 2001. Í þessari fimmtu þáttaröð verður sjónunum einmitt talsvert að aðdraganda árásanna og afleiðingar þeirra fyrir aðalsögupersónurnar. Michael J. Fox mætir til leiks í hlutverki unnusta fyrrum eiginkonunnar.
|
| 02:40 |
FringeÞriðja þáttaröðin um Oliviu Dunham, sérfræðing FBI í málum sem grunur leikur á að eigi sér yfirnáttúrlegar skýringar. Ásamt hinum umdeilda vísindamanni Dr. Walter Bishop og syni hans Peter rannsaka þau röð dularfullra atvika.
|
| 03:20 |
FringeÞriðja þáttaröðin um Oliviu Dunham, sérfræðing FBI í málum sem grunur leikur á að eigi sér yfirnáttúrlegar skýringar. Ásamt hinum umdeilda vísindamanni Dr. Walter Bishop og syni hans Peter rannsaka þau röð dularfullra atvika.
|
| 04:05 |
The Good GuysNýir þættir sem bæði eru hlaðnir spennu og gríni um löggu af gamla skólanum, Jack, og nútímalega lögreglumanninn, Dan. Jack fer alltaf eftir bókinni og er af þeim sökum fastur í vonlausri stöðu hjá lögreglunni. Félagi hans, Dan, er bæði drykkfelldur og slóði en heldur starfi sínu hjá lögreglunni vegna hetjudáðar sem hann framdi mörgum árum áður.
|