Innlent

Þrjá­tíu þúsund skrifað undir gegn Bjarna og bætist í hópinn

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Sitt sýnist hverjum um nýja ríkisstjórn undir forystu Bjarna Benediktssonar.
Sitt sýnist hverjum um nýja ríkisstjórn undir forystu Bjarna Benediktssonar. Vísir/Vilhelm

Alls höfðu 27.329 einstaklingar sett nafn sitt í morgunsárið á undirskriftalista á island.is sem ber yfirskriftina „Bjarni Benediktsson hefur ekki minn stuðning sem forsætisráðherra“. Stöðugt fjölgar í söfnuninni sem rauf þrjátíu þúsund manna múrinn um ellefuleytið í morgun.

Aðeins þeir sem hafa rafræn skilríki geta skrifað undir á island.is. Þrjátíu þúsund manns svarar til um átta prósent landsmanna.

Undirskriftalistinn var stofnaður í fyrradag, sama dag og ný ríkisstjórn Bjarna Benediktssonar kom saman í fyrsta sinn á ríkisráðsfundi á Bessastöðum. 

Forysta hans hefur verið gagnrýnd, bæði meðal stjórnarandstöðunnar og almennings, en lögregla lét til sín taka bæði við Bessastaði og í Alþingishúsinu í gær, þegar gerð voru hróp að Bjarna af þingpöllunum.

Ný ríkisstjórn var til umræðu í Pallborðinu í gær, þar sem gestir voru meðal annars spurðir að því hvort þeir teldu að stjórnin myndi lifa út kjörtímabilið.

Teitur Björn Einarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, taldi svo vera og að stjórninni myndi farnast mjög vel. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata, sagðist hafa farið fram og til baka með það í gegnum tíðina hvort stjórnin væri að springa og hún væri orðin þreytt á að spá í því.

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingmaður Viðreisnar, sagðist hins vegar spá því að samstarfið myndi ekki halda.

„Það verði Vinstri græn sem aftur skilji við Sjálfstæðisflokkinn. Nýr formaður Vinstri grænna, Svandís Svavarsdóttir, muni við gott tækifæri skilja Bjarna aftur eftir í kuldanum eins og Katrín gerði.“

Fréttin var uppfærð 11:45 .


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×