Innlent

Katrín, Halla og Steinunn Ó­lína mætast í Pall­borðinu

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Halla Tómasdóttir mætast í Pallborðinu í dag.
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Katrín Jakobsdóttir og Halla Tómasdóttir mætast í Pallborðinu í dag.

Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar heldur áfram að bjóða til sín forsetaframbjóðendum í Pallborðið, sem sýnt er í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi.

Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, Halla Tómasdóttir athafnakona og Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir leikkona verða gestir Pallborðsins í dag, sem hefst klukkan 15.

Katrín hefur mælst með mest fylgi í flestum skoðanakönnunum hingað til en í síðustu könnun Maskínu, sem unnin var fyrir Vísi, Stöð 2 og Bylgjuna dagana 12. til 16. apríl, reyndist hún njóta stuðnings 32,4 prósent aðspurðra.

Næstir á eftir voru Baldur Þórhallsson, Jón Gnarr og Halla Hrund Logadóttir. Stuðningur við Höllu Tómasdóttur mældist 6,7 prósent og stuðingur við Steinunni Ólínu 1,8 prósent.

Í nýrri könnun Prósents fyrir Morgunblaðið reyndist Katrín í öðru sæti á eftir Baldri Þórhallssyni með 23,8 prósent en Halla Tómasdóttir mældist með 5,8 prósent fylgi og Steinunn Ólína með 2,1 prósent.

Þetta er í annað sinn sem Halla Tómasdóttir býður sig fram til forseta en hún varð önnur á eftir Guðna Th. Jóhannessyni, núverandi forseta, árið 2016. Hlaut hann 39,1 prósent atkvæða en Halla 27,9 prósent.

Steinunn Ólína greindi frá því í lok mars að hún myndi sækjast eftir forsetaembættinu ef Katrín Jakobsdóttir færi fram. 

„Baráttan um Ísland snýst aðallega um íslenska náttúru og auðlindirnar sem eiga að vera sameign þjóðarinnar. Það fjöregg fengum við í arf og okkur ber að skila því heilu til næstu kynslóða.

Nú vegur þyngst að ég treysti ekki Katrínu Jakobsdóttur, að fenginni reynslu, til að gæta þessa fjöreggs okkar. Það er þyngra en tárum taki.“

Eftir að hún tilkynnti formlega um framboð sagði Steinunn það hins vegar ekki tengjast Katrínu.

Pallborðið verður í beinni útsendingu á Vísi og Stöð 2 Vísi klukkan 15.


Tengdar fréttir

Svona var Pallborðið með Baldri, Höllu Hrund og Jóni

Forsetaframbjóðendurnir Baldur Þórhallsson stjórnmálaprófessor, Jón Gnarr listamaður og Halla Hrund Logadóttir orkumálastjóri verða gestir Pallborðsins í dag, þar sem til umræðu verða niðurstöður skoðanakannana og fyrstu vikur kosningabaráttunnar. Þátturinn er í beinni útsendingu og lifandi textalýsingu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×