Skoðun

Biskupsval

Sigfinnur Þorleifsson og Vigfús Bjarni Albertsson skrifa

Kynningafundir þeirra, sem gáfu kost á sér til biskupskjörs að loknu forvali, voru upplýsandi og málefnalegir. Öllum mátti þá vera ljóst að þar fóru þrír hæfileikaríkir og framsæknir einstaklingar, sem sómi er að, og það lofar góðu fyrir Þjóðkirkju Íslands. Þau sem þar áttu hlut að máli kveiktu áhuga meðal fólksins í landinu á kirkju, sem er reiðubúin til að mæta nýjum tímum og sinna fjölbreyttu samfélagi af kærleika og skilningi og fordómaleysi. Það er enginn vafi í okkar huga, sem ritum þessar línur, að nú er rík ástæða til að vera bjartsýnn á framtíð kirkjunnar og samfylgd hennar með þjóðinni.

Í ljósi fyrrnefndra kynningafunda, af fyrri kynnum og vitnisburði þeirra sem vel þekkja til og að vel ígrunduðu máli, höfum við tveir vinir og samstarfsmenn til margra ára gert upp hug okkar. án valkvíða.

Guðrún Karls Helgudóttir hefur margt til brunns að bera til að geta orðið góður biskup. Hún hefur staðið sig afskaplega vel í starfi sínu sem prestur, sem skiptir miklu máli, býr yfir mikilli reynslu í þjónustu við fólk og er góður og víðsýnn stjórnandi í stórum og lifandi söfnuði.

Sé horft til framtíðar þá er sýn hennar á hlutverki kirkjunnar skýr. Guðrún vill treysta og auka tengslin við fólkið í landinu með boðun fagnaðarerindisins að leiðarljósi. Höfða til trúarinnar fordómalaus gagnvart ólíkum viðhorfum, umburðarlynd eins og þau eru gjarnan, sem vita sjálf hvar þau standa, byggja á slitgóðum arfi kynslóðanna og dýrmætri samfylgd kirkju og þjóðar um aldir. Þetta hyggst hún gera með framsæknum hætti, ekki í vörn og með aðgreiningu heldur af gleði, með opnum huga og með hag þeirra sem standa hallloka í lífinu í fyrirrúmi.

Við leitum oft langt yfir skammt. Í erindi kirkjunnar er falinn fjársjóður, sem okkur er ætlað að miðla í anda Frelsarans. Þar fara saman boðun og þjónusta, sálgæsla og samfyld með fólki í gleði og sorg, tilætlunarlaus áheyrn og trúnaður. Við treystum Guðrúnu Karls Helgudóttur manna best til að standa vörð um þau verðmæti og miðla þeim áfram, sem fremst meðal jafningja í samfylgd kirkju og þjóðar. Megi okkur öllum farnast sem best í því góða og gefandi hlutverki.

Höfundar eru prestar.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Skoðun

Al­einn í heiminum?

Lukka Sigurðardóttir,Katrín Harðardóttir ,Margrét Kristín Blöndal skrifar

Sjá meira


×