Varamarkmaðurinn og Håland hetjurnar: Man City á toppinn fyrir lokaumferðina Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 14. maí 2024 21:05 Stefan Ortega spilaði tæpan hálftíma í kvöld en hafði í nægu að snúast. Justin Setterfield/Getty Images Englandsmeistarar Manchester City verða á toppi ensku úrvalsdeildarinnar þegar lokaumferð deildarinnar fer fram þökk sé 2-0 sigri liðsins á Tottenham Hotspur í kvöld. Norðmaðurinn Erling Braut Håland skoraði bæði mörk Man City en varamarkvörðurinn Stefan Ortega kom inn af bekknum um miðjan síðari hálfleik og átti sannkallaðn stórleik. Fyrir leik var ljóst að Man City þyrfti sigur til að hirða toppsætið af Arsenal en liðið hafði þó ekki unnið Tottenham í síðustu fjórum leikjum liðanna í Lundúnum. Það kom því lítið á óvart þegar fyrri hálfleik lauk án þess að liðin hefðu skorað en gestirnir voru aðgangsharðari. Guglielmo Vicario varði frábærlega frá Phil Foden og þá bjargaði Radu Drăgușin svo gott sem á línu eftir að skot Håland var varið af samherja hans og boltinn féll til Bernardo Silva. Sá portúgalski smellti boltanum í fyrsta í átt að marki og stefndi hann í hornið fjær ef ekki hefði verið fyrir höfuðið á Drăgușin. Staðan markalaus í hálfleik en snemma í síðari hálfleik komust gestirnir yfir. Að sjálfsögðu var það Håland sem var þarna að eiga sitt fyrsta skot í leiknum en hann renndi boltanum yfir línuna eftir undirbúning Kevin de Bruyne. We have our first goal, and it comes from Erling Haaland!And of course the assist came from Kevin De Bruyne, who squared it to @ManCity's number 9️⃣ for the simplest of tap-ins!#TOTMCI pic.twitter.com/Ghut8G517A— Premier League (@premierleague) May 14, 2024 Leikurinn var áfram heldur lokaður og gekk báðum liðum illa að skapa sér opin marktækifæri. Það var stuttu eftir miðbik síðari hálfleiks sem Cristian Romero, miðvörður Tottenham, keyrði inn í Ederson, markvörð Man City, með þeim afleiðingum að markvörðurinn þurfti að fara af velli. Ederson was forced off after a nasty collision with Cristian Romero 🤕 pic.twitter.com/088iEmIMmd— B/R Football (@brfootball) May 14, 2024 Eitthvað sem hann var alls ekki sáttur með og lét hann vatnsbrúsa liðsins finna fyrir því þegar hann kom á varamannabekkinn. Skömmu síðar fékk varamaðurinn Dejan Kulusevski besta færi gestanna til þessa í leiknum en Stefan Ortega, varamarkvörður Man City, varði vel í markinu. Some of the saves from the goalkeepers in this match 😮💨Stefan Ortega has been substituted on for Ederson, and mere moments later he is called up to make a crucial stop from Dejan Kulusevski 🙅♂️#TOTMCI pic.twitter.com/uQ3hhS1AVN— Premier League (@premierleague) May 14, 2024 Ortega var þó ekki búinn en á 85. mínútu slapp Heung-Min Son í gegnum vörn gestanna eftir að Manuel Akanji rann á miðjum vellinum. Ortega stóð keikur og las Son líkt og foreldar þínir lásu blaðið hér forðum daga með morgunkaffinu. Staðan enn 1-0 Man City í vil þökk sé ótrúlegri innkomu Ortega. Það var svo í uppbótartíma sem Pedro Porro braut á Jérémy Doku innan vítateigs og vítaspyrna dæmd. Håland fór á punktinn og gulltryggði sigur gestanna. Lokatölur á Tottenham-vellinum 0-2 og Manchester City á toppnum fyrir lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar. Penalty to @ManCity, and up steps Erling Haaland to score!They now lead by two goals in added time!#TOTMCI pic.twitter.com/FwS8zpQgYO— Premier League (@premierleague) May 14, 2024 Þegar ein umferð er eftir af ensku úrvalsdeildinni er Man City á toppnum með 88 stig en Arsenal er í 2. sæti með 86 stig. Man City fær West Ham United í heimsókn í lokaumferðinni á meðan Skytturnar taka á móti Everton. Enski boltinn Fótbolti
Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Íslenski boltinn
Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Íslenski boltinn