Í sjálfheldu í vonskuveðri á þverhníptu bjarginu Á gamlárskvöld árið 1994 fældist hópur hesta frá bænum Tungu í Svínadal við flugeldasprengingar. Ragnar Axelsson ljósmyndari slóst í för með hópi manna sem hugðist halda í leiðangur upp á fjallið til þess að bjarga hestunum. Lífið 27. nóvember 2022 07:01
Rangfærslur Ísteka Í Reykjavík síðdegis þann 17.11.2022 var tekið viðtal við Arnþór Guðlaugsson, framkvæmdastjóra Ísteka, um blóðmerahald fyrirtækisins. Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) vilja koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum við málflutning framkvæmdastjórans. Skoðun 21. nóvember 2022 19:01
Flestir umsagnaraðilar fylgjandi banni við blóðmerahaldi Fimmtán umsagnir bárust um endurflutt frumvarp Ingu Sæland um bann við blóðmerahaldi en umsagnarfresturinn rann út í gær. Langflestir sem sendu inn umsögn eru fylgjandi banninu og fordæma meðferð hrossanna, meðal annars hversu mikið blóð sé tekið á skömmum tíma. Innlent 17. nóvember 2022 07:34
Hundruð hyggjast bjarga dýrunum á Nýjabæ Rúmlega hundrað manns hafa sagst hafa áhuga á því að fara að Nýjabæ í Borgarfirði á morgun til að bjarga þeim búfénaði sem er þar. MAST og lögreglan á Vesturlandi biðlar til fólks að mæta ekki. Innlent 11. nóvember 2022 16:56
Framganga MAST í meintu dýraníðsmáli hafi „farið úr hófi“ Lögmaður konu, sem er eigandi hrossa í meintu dýraníðsmáli í Borgarfirði, segir Matvælastofnun hafa farið of geyst í málinu. Konan hafi ekki verið nægilega vel upplýst um gang mála og hrossin hafi verið vel haldin. Innlent 7. nóvember 2022 19:20
Að hræðast ekki þótt maður sé kominn djúpt í laugina og ekki alveg syndur „Frægasta tískubúð á Íslandi fyrr og síðar var Sesar á Akureyri. Þar tókst mér að selja 20 þúsund gallabuxur í 10 þúsund manna bæ á sínum tíma. Saga mín í viðskiptum spannar marga áratugi og er ansi ótrúleg á köflum. Það hafa ekki alltaf verið jólin, en með þrautseigju, einstöku samstarfsfólki, góðum viðskiptafélögum og jákvæðni er staðan í dag frábær,“ segir hinn nær áttræði, framkvæmdaglaði Herbert Óskar Ólafsson, betur þekktur sem Kóki, sem rekur reiðtygja og reiðfataframleiðsluna Top Reiter, að líkindum þá stærstu í íslenska hestaheiminum. Viðskipti innlent 7. nóvember 2022 08:30
Grindhoraðir nautgripir sem fái hvorki vott né þurrt Íbúi í Borgarnesi segist ekkert botna í verkferlum Matvælastofnunar. Hross og nautgripir fái hvorki vott né þurrt, þrátt fyrir að dýrin eigi að vera undir eftirliti MAST. Innlent 6. nóvember 2022 19:14
Segja orðræðu gagnvart starfsfólki óvægna Matvælastofnun (MAST) segir orðræðu í garð starfsfólks stofnunarinnar hafa verið óvægna og því þurfi að grípa til andsvara. Stofnunin telur sig ekki seka um aðgerðaleysi. Innlent 1. nóvember 2022 15:32
Kvartar ekki undan því að stelpurnar séu miklu fleiri í hestafræði á Hólum „Já, rektorinn er bóndinn á Hólum. Hann þarf að sjá til þess að það verði borið hér á tún, að það verði heyjað og hrossin rekin í afrétt, og náð í þau og réttað, og allt þetta sem þarf að gera,“ segir Hólmfríður Sveinsdóttir, rektor Háskólans á Hólum. Lífið 30. október 2022 07:57
MAST neitaði að selja vanrækta hesta Matvælastofnun neitaði að samþykkja kauptilboð í hesta sem endað hafa í vörslu stofnunarinnar vegna vanrækslu. Stofnunin segir að lagaheimild fyrir kaupunum sé ekki til staðar og hyggst halda áfram að slátra hestum sem enda í vörslu stofnunarinnar, bregðist eigendur ekki við. Innlent 25. október 2022 20:00
Ráðherra krefur MAST svara um velferð dýra Svandís Svavarsdóttir, matvælaráðherra, hefur kallað eftir upplýsingum frá Matvælastofnun um framkvæmd eftirlits þeirra og verkferla vegna velferðar dýra þegar grunur vaknar um að umráðamenn uppfylli ekki ákvæði laga þess efnis. Innlent 25. október 2022 14:46
Helsta valdasetur fyrri alda er orðið höfuðból hestamennsku „Ég hef stundum sagt að mér finnist Norðlendingar svolítið kaþólskari í hugsun en Sunnlendingar,“ segir Solveig Lára Guðmundsdóttur, fráfarandi vígslubiskup á Hólum, þegar hún fræðir okkur um biskupssetrið og sögu biskupanna. Þannig haldi Norðlendingar mikið upp á Jón Arason og hafi reist turn Hóladómkirkju til minningar um síðasta kaþólska biskupinn fyrir siðaskipti. Innlent 24. október 2022 09:31
Karl selur fjórtán af hestum drottningarinnar Karl III Bretakonungur hefur ákveðið að selja nokkra þeirra hesta sem hann erfði frá móður sinni, Elísabetu II drottningar, sem lést í byrjun síðasta mánaðar. Erlent 24. október 2022 07:37
Hin hrossin send aftur til eigenda Þrettán hross í Borgarfirði voru aflífuð af Matvælastofnun (MAST) í gær vegna alvarlegs ástands. Önnur hross reyndust vera í ásættanlegum holdum og var skilað til umráðamanns. Tíu þeirra eru þó sögð vera í viðkvæmu ástandi. Innlent 19. október 2022 09:43
Segja hrossin hafa verið færð í sláturhús og folald fellt á staðnum Tólf af hrossunum í Borgarfirði sem Vísir hefur fjallað um síðan í sumar eru sögð hafa verið felld. Matvælastofnun hafi mætt á vettvang. Innlent 18. október 2022 23:45
Vön hestakona látin bera hluta tjóns vegna eigin sakar Landsréttur hefur fallist á kröfu hestakonu þess efnis að bótaskylda VÍS vegna slyss sem hún varð fyrir þegar hún datt af hestbaki árið 2016 yrði samþykkt. Konan var þó dæmd til að bera fjórðung tjóns síns vegna eigin sakar. Innlent 14. október 2022 19:44
Efast um hæfi MAST Samtök um dýravelferð á Íslandi (SDÍ) segja viðbrögð Matvælastofnunar (MAST) við vanrækslu hrossa í Borgarfirði ekki vera í samræmi við alvarleika málsins. Samtökin skora á MAST að tryggja viðunandi aðbúnað dýranna á meðan málið er enn í skoðun. Innlent 14. október 2022 09:33
„Þetta er svo mikill hryllingur“ Búið er að hleypa hestunum í Borgarfirði sem Vísir hefur fjallað um í sumar út. Þeir voru lokaðir inni um langt skeið og efast hestafólk í nærsveitum um að þeir lifi veturinn af, svo illa eru þeir farnir. Innlent 13. október 2022 15:33
Til Svandísar Svavarsdóttur matvælaráðherra Sæl Svandís, ég er að setja mig í samband við þig vegna dýraníðs í Borgarfirði. Þú hefur örugglega heyrt af þessu máli í fjölmiðlum. Steinunn Árnadóttir benti á þetta og hefur fylgt málinu eftir. MAST gerir ekkert. Lögreglan og dýraeftirlitsmaður á svæðinu gerir ekkert. Skoðun 13. október 2022 10:31
Handtekinn fyrir framan fimmtán ára son sinn: „Þetta var ekki rétt“ Leigusali karlmanns sem var handtekinn fyrir að skjóta hest með boga var handtekinn fyrir framan fimmtán ára son sinn í aðgerðum sérsveitarinnar á aðfararnótt laugardags. Feðgarnir gagnrýna vinnubrögð lögreglu en þeir þurftu báðir að dvelja á lögreglustöðinni á Selfossi langt fram á nótt. Innlent 9. október 2022 20:55
Sérsveit handtók bogmann í nótt Sérsveit ríkislögreglustjóra handtók í nótt mann sem grunaður er um að hafa skotið hest með boga. Við húsleit fannst bogi, örvar og nokkur fjöldi eggvopna. Innlent 8. október 2022 18:58
„Gjörningur einhvers níðings og mannleysu“ Ör var skotið um 15 sentimetra inn í læri hests frá Tjarnabyggð skammt frá Selfossi. Eigendum er verulega brugðið og segja þetta vekja óöryggi á heimilinu. Búið er að kæra atvikið til lögreglu. Innlent 8. október 2022 15:17
Hestafólk uggandi yfir breytingum á umferðarlögum Landssamband hestamannafélaga gerir alvarlegar athugasemdir fyrir hugaðar breytingar á umferðarlögum. Verði breytingarnar að veruleika verður heimil umferð gangandi fólks á reiðstígum. Innlent 7. október 2022 11:11
Þurfa að kunna íslensku til að komast í hestafræði á Hólum Um fjörutíu prósent nemenda sem komast að í hestafræði við Háskólann á Hólum eru útlendingar, og það þrátt fyrir að það sé inntökuskilyrði að geta talað íslensku. Rektor segir skólann útskrifa að minnsta kosti tíu sendiherra á hverju vori. Innlent 1. október 2022 22:11
Íslenski hesturinn á forsíðu New York Times Hesturinn Stormur, sem er blesóttur, níu vetra verður heimsfrægur á morgun, því hann prýðir forsíðu New York Times Magazine blaðsins, sem kemur þá út. 150 milljónir manna eru áskrifendur af blaðinu á netinu, og blaðið verður líka gefið út í milljónum prentaðra eintaka. Lífið 25. september 2022 20:35
Um 300 hross í Laufskálarétt í dag Um þrjú þúsund manns eru nú í Laufskálarétt í Hjaltadal í Skagafirði en hrossin í réttinni eru þó ekki nema um þrjú hundruð. Dagurinn endar á réttarballi í kvöld. Innlent 24. september 2022 12:05
Halló! Er einhver heima? Matvælaráðherra, Svandís Svavarsdóttir! Hversu langt er hægt að láta skepnuníð viðgangast? Skoðun 14. september 2022 09:30
Varaþingmenn viðriðnir hrossamálið segja af sér Mæðgur sem bendlaðar hafa verið við meint dýraníð í Borgarfirði hafa sagt af sér varaþingmennsku fyrir Flokk fólksins. Innlent 13. september 2022 18:36
Rækta eitt óvenjulegasta afbrigði íslenska hestsins Litförótt heitir eitt óvenjulegasta litaafbrigði íslenska hestsins en í því felst að hesturinn skiptir litum fjórum sinnum á ári. Litaafbrigðið var talið í hættu á að deyja út þegar hrossabændur hófu að reyna að bjarga því. Innlent 11. september 2022 07:57
Ákærður fyrir dýraníð fyrir áratug: Kýr með halabrot og -slit Bóndi sem sakaður hefur verið um illa meðferð hrossa í Borgarfirði var ákærður fyrir dýraníð fyrir tæpum áratug. Matvælastofnun segir ákvarðanir í dýravelferðarmálum geta verið mjög íþyngjandi og því nauðsynlegt að stíga varlega til jarðar í slíkum málum. Stofnunin hefur verið gagnrýnd fyrir viðbrögð sín í málinu. Innlent 5. september 2022 12:17
Svona endurheimti Breiðablik titilinn: Upprisan, kaflaskilin og breyttar áherslur Íslenski boltinn