Greinendur stóru bankanna með ólíka sýn á gengisþróun krónunnar Skiptar skoðanir birtast í nýlegum hagspám viðskiptabankanna um horfurnar í gengisþróun krónunnar en á meðan hagfræðingar Landsbankans og Íslandsbanka telja útlit fyrir lítilsháttar styrkingu á allra næstu árum eru greinendur Arion heldur svartsýnni, sé litið til mats þeirra á undirliggjandi efnahagsþáttum og utanríkisverslun, og vænta þess að hún eigi eftir að veikjast. Gengið hefur styrkst nokkuð síðustu vikur, einkum með auknu innflæði vegna kaupa á ríkisbréfum, en heilt hefur krónan haldist afar stöðug á árinu. Innherji 16.10.2024 16:30
Enginn sósíalismi án sjálfstæðs gjaldmiðils Viðreisn og hinir frjálslyndu flokkarnir hafa af stórum hluta gert baráttuna gegn krónunni að aðal baráttumáli sínu síðustu áratugina og nýleg grein Sigmars Guðmundssonar á Vísir.is er engin undan tekning. Þar kennir hann krónunni um öll okkar vandamál, húsnæðiskrísuna, skuldaþrælkunina, vaxtastigið og fleira. En hvers vegna? Skoðun 15.10.2024 00:01
Spá minnstu verðbólgunni í þrjú ár Hagfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga lækki úr 5,4 prósentum í 5,1 prósent milli mánaða í október. Verðbólgan var síðast í 5,1 prósenti í desember árið 2021. Neytendur 10.10.2024 10:43
Geðveiki krónuhagkerfisins: Tók 35 milljón króna lán, búinn að greiða til baka 91 milljón, skuldar samt enn 64 milljónir! Skoðun 30.9.2024 07:02
Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Hagfræðideild Landsbankans spáir því að peningastefnunefnd Seðlabankans muni halda stýrivöxtunum óbreyttum og þeir verði því áfram 9,25 prósent. Peningastefnunefnd kynnir vaxtaákvörðun sína næstkomandi miðvikudag. Viðskipti innlent 27. september 2024 13:05
Fríar skólamáltíðir séu skammgóður vermir Verðbólga hefur ekki mælst minni í tæp þrjú ár og hjaðnar á milli mánaða. Verðlækkun í mötuneytum vegna gjaldfrjálsra máltíða í grunnskólum hefur töluverð áhrif. Hagfræðingur hjá Viðskiptaráði telur þau eiga eftir að ganga til baka og raunar skila sér í aukinni verðbólgu. Viðskipti innlent 27. september 2024 12:01
Spá verðbólgu undir fjórum prósentum á næsta ári Greiningadeild Arion banka spáir því að verðbólga verði 3,6 prósent í lok næsta árs og aðeins 3,1 prósent í lok spátíma árið 2027. Spáin gerir ráð fyrir því að Hagstofan taki nýtt kílómetragjald ekki inn í vísitölu neysluverðs, sem muni minnka verðbólgu um heilt prósentustig. Viðskipti innlent 26. september 2024 10:15
Er krónan að valda átökum á milli kynslóða? Eins og hlutirnir hafa verið að þróast í samfélaginu undanfarin ár með auknum kröfum á stjórnvöld og sveitarfélög er að mínu viti að byggjast upp mikil spenna á milli kynslóða. Þessi spenna lýsir sér þannig að unga fólkið sem er að koma sér af stað í samfélaginu með því að stofna fjölskyldur kallar eftir meiri og meiri stuðningi opinberra aðila við að koma sér þaki yfir höfuðið og eignast börn. Nýjasta krafan sem fékkst fram eru fríar máltíðir í skólum óháð efnahag foreldra. Skoðun 20. september 2024 14:31
Evrópska vexti takk! Nú hefur evrópski Seðlabankinn lækkað vexti. Þannig standa meginvextir bankans í 3.50%. Í kjölfarið lækkaði danski seðlabankinn meginvexti sína í samræmi við þessa lækkun. Í óvenjulegum ytri skilyrðum vegna heimsfaraldurs og innrásar Rússa í Úkraínu fóru stýrivextirnir hæst í 4% í Evrópu. Skoðun 13. september 2024 12:00
Greiðslubyrði húsnæðislána lækkar um helming! Frekari lækkana að vænta á næstu mánuðum Með nánast einu pennastriki væri hægt að raungera fyrirsögnina hér að ofan. Með einu pennastriki væri hægt að hrinda í framkvæmd breytingu sem myndi á afar skömmum tíma, örfáum mánuðum, skila einhverjum mestu umbótum fyrir íslensk heimili og fyrirtæki sem um getur. Skoðun 8. september 2024 14:33
Krónan gefur eftir þegar fjárfestar fóru að vinda ofan af framvirkum stöðum Þegar ljóst varð að væntingar um að gjaldeyrisinnstreymi samtímis háönn ferðaþjónustunnar myndi ýta undir gengisstyrkingu krónunnar væru ekki að raungerast fóru fjárfestar að vinda ofan af framvirkum stöðum sínum um tugi milljarða á nokkrum vikum. Lokanir á þeim stöðum með krónunni hafa átt mestan þátt í því að hún hefur núna ekki verið lægri gagnvart evru í næstum eitt ár, að sögn gjaldeyrismiðlara, og sé líklega búin að færast á nýtt jafnvægisgildi en viðskiptahalli þjóðarbúsins jókst verulega á milli ára á fyrri árshelmingi. Innherji 5. september 2024 06:32
Er krónan Ponzi-svikamylla? Íslenska krónan hefur um árabil verið skaðvaldur fyrir heimili, atvinnulíf og opinbera aðila vegna mikils vaxtakostnaðar, gengissveiflna og áhættu, sem að stórum hluta má rekja til smæðar krónunnar. Hún er eins og trilla á úthafi, sem hoppar og skoppar við hverja öldu á meðan evran er eins og stórt farþegaskip sem hreyfist ekki þrátt fyrir óveður. Skoðun 30. ágúst 2024 14:31
Er kannski komið að því að skoða eitthvað annað en genin? Ég er í Færeyjum þessa dagana. Ég er alltaf dálítið skotin í Færeyjum. Hér er einstaklega fallegt og það er sjarmerandi að sjá öll torfþökin hér í miðbæ Þórshafnar. Færeyska tungumálið heillar og það gerir fólkið líka. Það er einhvern veginn bara létt yfir - þrátt fyrir rigninguna. Skoðun 27. ágúst 2024 10:33
Óréttlæti mamons Háir stýrivextir eru aðför gegn almenningi en gjöf til þeirra sem græða á þeim. Stýrivextir – þetta orð, ómæ, ómæ! Þeir reka fólk í röðum ofaní ginið á bönkum landsins, stýra því snyrtilega hverjir græða. Herra minn drottinn, ekki guð á himnum, en jú, peningaguðinn er eins og fimmfaldur Búdda, kjagandi um með uppglennt augu af græðgi. Hann fær aldrei nóg. Skoðun 23. ágúst 2024 08:00
Ruglað um verðbólgu og ríkisfjármál Þegar viðtekinni visku er ögrað má vænta kröftugra viðbragða. Það virðist hafa gerst annars vegar í grein hér á Vísi og hins vegar á síðum Viðskiptablaðsins í kjölfar greinar minnar um ríkisfjármál og verðbólgu. Skoðun 23. ágúst 2024 07:02
Hefði ekki í „blautustu, villtustu draumum“ órað fyrir óbreyttum stýrivöxtum Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir að sig hefði ekki órað fyrir því, í sínum villtustu draumum, þegar hann undirritaði kjarasamninga í vor að enn yrðu stýrivextir í 9,25 prósentum í dag. Hann segir tíma til kominn að rótargreina hvers vegna vaxtastig sé svona hátt í landinu. Viðskipti innlent 21. ágúst 2024 10:27
Óbreyttir stýrivextir í enn eitt skiptið Stýrivextir Seðlabankans verða óbreyttir í að minnsta kosti sex vikur til viðbótar. Þeir hafa nú verið óbreyttir í 9,25 prósentum í meira en ár. Bankinn varar við því að það gæti tekið tíma að ná niður verðbólgu. Viðskipti innlent 21. ágúst 2024 08:31
Kaupum meira og meira þrátt fyrir mikla verðbólgu Kortavelta Íslendinga jókst um 3,1 prósent milli ára að raunvirði. Innanlands jókst hún um 1,2 prósent en erlendis um 9,8 prósent. Kortaveltan hefur aukist í hverjum einasta mánuði þetta árið. Neytendur 19. ágúst 2024 10:48
Dvínandi áhugi erlendra sjóða á íslenskum ríkisbréfum þrátt fyrir háa vexti Þrátt fyrir tiltölulega háan vaxtamun við útlönd hefur fjármagnsinnflæði vegna kaupa erlendra fjárfesta á ríkisskuldabréfum stöðvast á undanförnum mánuðum eftir að hafa numið tugum milljarða króna á liðnum vetri. Gengi krónunnar hefur að sama skapi farið nokkuð lækkandi og ekki verið lægri gagnvart evrunni frá því undir árslok 2023. Innherji 11. ágúst 2024 22:04
Hættustig Fyrir um tíu árum voru aðildarviðræður Íslands við ESB stöðvaðar. Fyrir meginþorra Íslendinga var þetta vond ákvörðun að mínu mati því hún hafði það í för með sér að við urðum að búa við íslensku krónuna og vextina á henni. Í dag borga skuldarar innlendra lána jafnvel tugþúsundir mánaðarlega aukreitis miðað við að við hefðum evru sem gjaldmiðil. Þetta kom hins vegar stórútgerðinni vel, sem gerir upp í evrum en greiðir laun í krónum. Bændur eru að vakna upp við vondan draum, en þetta tekur tíma og kannski nokkur gjaldþrot að síast inn. Skoðun 25. júlí 2024 08:35
Verðbólga eykst milli mánaða Vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í júlí 2024, er 633,2 stig og hækkar um 0,46 prósent frá fyrri mánuði. Ársverðbólga er nú 6,3 prósent og eykst um 0,5 prósentustig milli mánaða. Viðskipti innlent 24. júlí 2024 09:45
Fækkun ferðamanna mögulega leitt til hraðari lækkunar stýrivaxta Greining Íslandsbanka hefur lækkað hagvaxtarspá sína í ljósi fækkunar ferðamanna í júní og telur þróunina geta dregið úr spennu á vinnu- og íbúðamarkaði fyrr en áður var talið. Viðskipti innlent 22. júlí 2024 13:42
Erlendir fjárfestar minnka við sig í ríkisbréfum annan mánuðinn í röð Eftir stöðugt innflæði fjármagns um nokkurt skeið vegna kaupa erlendra sjóða á íslenskum ríkisskuldabréfum hefur sú þróun snúist við að undanförnu og hafa þeir núna verið nettó seljendur síðastliðna tvo mánuði. Dvínandi áhugi erlendra fjárfesta kemur á sama tíma og ríkissjóður áformar umtalsvert meiri útgáfu ríkisbréfa á seinni helmingi ársins en áður var áætlað. Innherji 10. júlí 2024 16:58
Spá aukinni verðbólgu Hægfræðideild Landsbankans spáir því að verðbólga muni verða 5,9 prósent í júlí. Viðskipti innlent 10. júlí 2024 14:54
Hvað kostar krónan heimilin? Í umræðum um gjaldmiðlamál og stöðu efnahagsmála á Íslandi er það oftast rök þeirra sem vilja halda í krónuna að fullyrða að hún bjargi okkur úr efnahagslægðum og áföllum. Þessi rök eru notuð til að blekkja almenning, en það er mikilvægt að skoða hvaða raunverulegan kostnað krónan leggur á heimilin og hvort hún raunverulega bætir líf okkar. Skoðun 9. júlí 2024 13:31