Viðskipti innlent

Ráð­herra bað um tíu milljarða króna í við­bót í arð

Árni Sæberg skrifar
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar og Sigurður Ingi Jóhannsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunar og Sigurður Ingi Jóhannsson er fjármála- og efnahagsráðherra. Vísir/Vilhelm

Aðalfundur Landsvirkjunar hefur samþykkt tillögu stjórnar um þrjátíu milljarða króna arðgreiðslu í ríkissjóð. Það er tíu milljörðum króna hærri arðgreiðsla en stjórnin lagði til þegar ársreikningur fyrirtækisins var birtur í febrúarlok. Fjármála- og efnahagsráðherra óskaði eftir því að arðgreiðslan yrði hækkuð í ljósi þess að árið 2023 var besta rekstrarár í tæplega sextíu ára sögu Landsvirkjunar. 

Í fréttatilkynningu frá Landsvirkjun segir að fjárhagsstaða fyrirtækisins sé því góð, auk þess sem hækkunin rúmist innan arðgreiðslustefnu Landsvirkjunar.

Jón Björn nýr stjórnarformaður

Á aðalfundi Landsvirkjunar sem haldinn var í dag, 30. apríl, hafi Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í stjórn fyrirtækisins, í samræmi við lög sem um það gilda.

Aðalmenn í stjórn Landsvirkjunar séu Jón Björn Hákonarson, Jens Garðar Helgason, Álfheiður Ingadóttir, Soffía Björk Guðmundsdóttir og Gunnar Tryggvason.

Varamenn í stjórn Landsvirkjunar séu Guðveig Eyglóardóttir, Halldór Karl Högnason, Ragnar Óskarsson, Sigurjón Þórðarson og Albertína Friðbjörg Elíasdóttir.

Á fyrsta fundi stjórnar eftir aðalfund hafi Jón Björn Hákonarson, fyrrverandi bæjarstjóri Fjarðabyggðar, verið kjörinn stjórnarformaður og Jens Garðar Helgason, aðstoðarforstjóri Fiskeldis Austfjarða hf. og Laxa fiskeldis hf., varaformaður.

Hættir eftir góðan áratug

Þá segir að fráfarandi stjórnarformaður, Jónas Þór Guðmundsson, hafi gegnt stöðunni síðastliðinn áratug, næstlengst allra í sögu fyrirtækisins. Hann hafi verið skipaður í stjórn á aðalfundi félagsins árið 2014 og kjörinn formaður stjórnar í kjölfarið. 

Mikil umskipti hafi orðið í rekstri fyrirtækisins á þessum tíma. Fjárhagsstaðan hafi aldrei verið betri, skuldir aldrei lægri og eiginfjárhlutfall hærra en nokkru sinni fyrr. Á sama tíma hafi þrjár nýjar virkjanir verið gangsettar. Í dag sé Landsvirkjun með næsthæstu lánshæfiseinkunn orkufyrirtækja Norðurlandanna (A-) hjá S&P. „Jónasi Þór eru þökkuð góð störf í þágu Landsvirkjunar.“

Jón Björn, sem áður hafi verið varaformaður stjórnar og tekur nú við af Jónasi, hafi einnig verið fyrst skipaður í stjórn fyrirtækisins árið 2014. Hann hafi gegnt stöðu varaformanns stjórnar í fimm ár á þessu tímabili.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×