Lífið

Múgur og marg­menni fylgdust með ó­trú­legu ostakúluáti

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Gríðarlegur fjöldi fólks fylgdist með Ostakúlumanninum borða kíló af ostakúlum.
Gríðarlegur fjöldi fólks fylgdist með Ostakúlumanninum borða kíló af ostakúlum.

Mörg hundruð manns fylgdust með hinum nafnlausa „Ostakúlumanni“ borða risakrukku af ostakúlum á Manhattan á laugardag. Maðurinn, sem var klæddur í appelsínugula lambhúshettu og skikkju, borðaði kíló af ostakúlum á hálftíma og gaf eiginhandaráritanir.

Fréttir af ostakúluátinu bárust fyrst nokkrum vikum fyrir gjörninginn þegar plaköt tóku að birtast í nágrenninu um atburðinn.

Plakat Ostakúlumannsins.

„Fylgstu með mér borða heila krukku af ostakúlum“ stóð á plakatinu með mynd af lambhúshettuklæddum manninum haldandi á krukku af snakkinu. 

Ein risakrukka (e. jumbo jar) af ostakúlum telur um 1.100 kúlur og er 35 únsur að þyngd, eða rétt um 0,99 kíló.

Gjörningurinn dró síðan fjölda fólks að Union Square-garði þar sem áhorfendur hrópuðu „ostakúlumaður“ og „éttu þessar ostakúlur“ til að hvetja manninn áfram. Sjónarvottar sögðust hafa heyrt í fagnaðarópunum í tveggja húsaröða fjarlægð.

Kláraði verkefnið á hálftíma og fór heim að æla

Ostakúlumaðurinn borðaði ostakúlurnar á hálftíma og gaf stuðningsmönnum eiginhandaráritanir. Í kjölfarið hljóp hann um torgið með fána með mynd af sér sjálfum, tók í hendur fólks og sagði ítrekað að hann þyrfti að „fara heim að æla“.

„Ég ákvað að gera þetta af því mér fannst New York-borg vanta eitthvað svona lagað,“ sagði hinn 23 ára nafnlausi Ostakúlumaður í samtali við New York Post

„Ostakúlur eru fyndnar og að borða heila krukku er erfitt verkefni, en ekki ómögulegt.“ 

„Á tímapunkti leið mér eins og ég þyrfti örugglega að æla en fólk hrópaði „haltu því niðri“ svo hátt að ég gerði það bara,“ sagði maðurinn sem er nýútskrifaður úr NYU í samtali við ABC. 

Hann segist þó vilja vera meira en bara átvagl. „Ég hef verið að reyna að hjálpa fólki. Ég þríf borgina, tek upp rusl,“ sagði hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×