Innlent

Arnór Sig­hvats­son settur varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika

Jón Þór Stefánsson skrifar
Arnór Sighvatsson
Arnór Sighvatsson

Bjarni Benediktsson forsætisráðherra hefur sett Arnór Sighvatsson tímabundið í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.

Arnór mun gegna stöðunni frá og með morgundeginum, fyrsta maí, og vera í henni þangað til skipað verður í embættið.

„Arnór Sighvatsson er hagfræðingur og býr að áratuga starfsreynslu í Seðlabankanum. Hann var aðalhagfræðingur Seðlabankans 2004-2009 og aðstoðarseðlabankastjóri 2009-2018. Arnór sat þá jafnframt í peningastefnunefnd auk þess að sitja í stjórn Fjármálaeftirlitsins á árunum 2011-2019. Arnór tekur nú sem varaseðlabankastjóri sæti í peningastefnunefnd, fjármálastöðugleikanefnd og fjármálaeftirlitsnefnd,“ segir í tilkynningu stjórnarráðsins.

Gunnar Jakobsson, sem gegnt hefur embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika frá því í mars 2020, lætur að eigin ósk af störfum frá og með morgundeginum. Hann hafði áður beðist lausnar og ætlaði að hætta þann þrítugasta júní næstkomandi.

Embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika var auglýst laust til umsóknar þann níunda apríl síðastliðinn.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×