Viðskipti

Fyrsta flugi Icelandair til Pittsburgh fagnað

Kristján Már Unnarsson skrifar
Tómas Ingasaon, framkvæmdastjóri tekjuþjónustu og markaðssviðs Icelandair, og Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, klippa á borðann í Leifsstöð fyrir brottför. Fyrir aftan er Sigrún Bender flugstjóri og áhöfn hennar sem flaug fyrstu ferð Icelandair til Pittsburgh.
Tómas Ingasaon, framkvæmdastjóri tekjuþjónustu og markaðssviðs Icelandair, og Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia, klippa á borðann í Leifsstöð fyrir brottför. Fyrir aftan er Sigrún Bender flugstjóri og áhöfn hennar sem flaug fyrstu ferð Icelandair til Pittsburgh. KMU

Fyrsta áætlunarflugi Icelandair til Pittsburgh í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum var fagnað með borðaklippingu, bæði við brottför frá Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær og einnig við komuna til Pittsburgh í gærkvöldi. Félagið hefur aldrei áður flogið til Pittsburgh en borgin er sextándi áfangastaður félagsins í Norður-Ameríku og sá tólfti í Bandaríkjunum.

„Norður-Ameríku markaður hefur verið mjög sterkur hjá okkur og hafa Bandaríkjamenn fest sig í sessi sem fjölmennastir ferðamanna sem heimsækja Ísland,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í tilefni fyrsta Pittsburgh-flugsins.

Klippt á borðann á Pittsburgh-flugvelli við komuna þangað í gærkvöldi. Tómas Ingason, framkvæmdastjóri hjá Icelandair, mundar skærin með ráðamenn flugvallarins sér til aðstoðar.KMU

Aðeins eitt annað flugfélag flýgur núna beint milli Evrópu og Pittsburgh en það er British Airways. Breska félagið býður upp á sex ferðir í viku milli London Heathrow og Pittsburgh.

„Pittsburgh-flugið fer vel af stað og er ánægjulegt að sjá að farþegar frá 25 Evrópulöndum hafa bókað flug með okkur til Pittsburgh um Ísland og þaðan hafa farþegar bókað flug til 30 áfangastaða Evrópumegin,“ segir Bogi.

Fjöldi fréttamanna var í flugstöðinni í Pittsburgh til að fjalla um fyrsta flug Icelandair til borgarinnar.KMU

Boðið verður upp á fjögur flug í viku fram til októberloka. Fyrsta ferðin í gær, undir stjórn Sigrúnar Bender flugstjóra, var flogin á Boeing 737 MAX 8 og tók flugið tæpar sex klukkustundir.

„Við á Keflavíkurflugvelli óskum Icelandair til hamingju með nýjasta áfangastað sinn, Pittsburgh, og erum sannfærð um að viðbótin eigi eftir að skila sér margfalt til flugfélagsins og farþega þess,” segir Sveinbjörn Indriðason, forstjóri Isavia. 

„Það er fagnaðarefni í hvert sinn sem nýr áfangastaður bætist við á Keflavíkurflugvelli. Alþjóðasamtök flugvalla, Airport Council International, segja að 10% aukning í flugtengingum auki hagvöxt um 0,5% og það er ekki hvað síst ástæða til að fagna hverri nýrri viðbót okkar öflugu flugfélaga,” segir Sveinbjörn.

TF-ICR, Fögrufjöll, að leggja upp í flugið til Pittsburgh. Hún er af gerðinni Boeing 737 MAX 8KMU

Þrjár Boeing MAX eru að bætast í flota Icelandair þetta vorið. Flugflotinn í farþegafluginu mun þá samanstanda af 42 flugvélum, þar af 21 af gerðinni 737 MAX.

Pittsburgh er önnur stærsta borg Pennsylvaníu á eftir Philadelphiu. Hún liggur á bökkum þriggja fljóta og er fyrir vikið kölluð borg brúanna. Í frétt frá Icelandair segir að borgin hafi upp á margt að bjóða; menningu, fagurgræna almenningsgarða, áhugaverðar söguslóðir, útivist og íþróttaviðburði.

Slökkviliðið á Keflavíkurflugvelli myndaði heiðursboga með vatnsbunum þegar flugvél Icelandair lagði upp í fyrsta flugið.Andri Ómarsson/Isavia

Halifax á austurströnd Kanada er einnig að bætast við sem áfangastaður á ný hjá Icelandair eftir nokkurra ára hlé. Flugið hefst 31. maí og verður flogið þrisvar í viku fram í miðjan október. Halifax er höfuðborg Nova Scotia og er henni lýst sem lifandi hafnarborg og iðandi miðstöð verslunar og viðskipta.


Tengdar fréttir

Fljúga í fyrsta sinn til Pittsburgh

Icelandair eykur framboð og bætir við áfangastöðum í flugáætlun fyrir árið 2024, sem er sú umfangsmesta í sögu félagsins. Halifax og Pittsburgh verða nýir áfangastaðir en félagið hefur aldrei áður boðið upp á flug til síðarnefndu borgarinnar.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×