Innlent Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður helsta umfjöllunarefnið vaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var í morgun. Innlent 24.5.2023 11:37 Claudia ein mætt í Hæstarétt og farið fram á sextán ár yfir Angjelin Málflutningur í Rauðagerðismálinu svokallaða hófst í Hæstarétti í morgun og heldur áfram fram eftir degi. Landsréttur dæmdi í málinu í október í fyrra og sakfelldi þar þrjá sakborninga, sem höfðu verið sýknaðir í héraði, og þyngdi dóm Angjelins Sterkaj, sem hefur játað að hafa banað Armando Beqirai fyrir utan heimili hans í Rauðagerði í febrúar 2021. Innlent 24.5.2023 11:16 Lítið vitað um innihald þeirra vímuefna sem eru í umferð og þörf á efnagreiningu Þörf er á efnagreiningu á vímuefnum hér á landi svo hægt sé að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll að sögn sérfræðings. Lítið sé vitað um innihald þeirra sem eru í umferð hér á landi. Innlent 24.5.2023 10:39 Björgunarsveitirnar lausar við útköll í hvassviðrinu Engar tilkynningar hafa komið inn á borð björgarsveitanna vegna hvassviðrisins sem gekk á landið í gær. Innlent 24.5.2023 10:12 Atvinnuleysi 2,3 prósent í apríl og hækkun launavísitölu 1,6 prósent Atvinnuleysi var 2,3 prósent í apríl og dróst saman um 0,8 prósent á milli mánaða. Atvinnuleysi var 2,7 prósent á meðal karla og 1,8 prósent á meðal kvenna. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 80,9 prósent og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 79 prósent. Innlent 24.5.2023 09:09 Réttað yfir geðhjúkrunarfræðingi sem er sakaður um manndráp Aðalmeðferð í máli geðhjúkrunarfræðings á sjötugsaldri sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Umfjöllun um það sem fram kemur við þinghaldið er bönnuð þar til í lok dags. Innlent 24.5.2023 08:33 Mesta brottfall í Evrópu Brottfall ungs fólks úr námi er á uppleið aftur eftir covid faraldurinn og er nú það hæsta í Evrópu. Tvöfalt fleiri drengir hverfa á brott úr námi en stúlkur. Dósent í félagsfræði segir vandann hefjast í grunnskólum. Innlent 24.5.2023 07:00 Ölvaðir neituðu að yfirgefa verslun og veitingastað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gær þegar bifreiðareigandi komst að því að búið var að stinga á tvo hjólbarða bílsins. Í yfirliti lögreglu um verkefni gærkvöldsins og næturinnar kemur ekkert fram um eftirmála. Innlent 24.5.2023 06:19 Vill Fjarðaleið fremur en Fjarðarheiðargöng Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og fyrrverandi samgönguráðherra vill breyta forgangsröðun jarðganga á Austfjörðum í þágu almannavarna. Í stað Fjarðarheiðarganga til Seyðisfjarðar verði svokölluð Fjarðaleið valin um Mjóafjörð. Innlent 23.5.2023 22:02 „Við erum gapandi á þessu“ Faðir ungrar konu sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi segir sýknudóm yfir bænum hafa komið verulega á óvart. Standi dómurinn sé ljóst að einstaklingar í baráttu við kerfið, eigi ekki séns þegar kemur að dómstólum. Innlent 23.5.2023 20:34 Ný sería af Sönnum íslenskum sakamálum: Skáksambandsmálið og bruninn á Bræðraborgarstíg Ný þáttaröð af Sönnum íslenskum sakamálum kom út á Storytel í gær. Þar mun Sigursteinn Másson taka fyrir fimm sakamál sem komið hafa upp hér á landi. Skáksambandsmálið svokallaða og bruninn á Bræðraborgarstíg eru á meðal þeirra mála sem tekin verða fyrir í þáttunum. Innlent 23.5.2023 20:00 Fundu fyrir skjálftanum á Akureyri og Ólafsfirði Jarðskjálfti að stærð 3,8 mældist rúmlega níu kílómetrum austan við Grímsey klukkan 19:22 í kvöld. Skjálftinn fannst víða á Norðurlandi og hefur nokkur eftirskjálftavirkni fylgt honum. Innlent 23.5.2023 19:54 „Þetta er óvanalegt en þetta er Ísland“ Flugumferð fór úr skorðum í dag vegna hvassviðris en gular viðvaranir eru í gildi á nær öllu landinu. Öllu innanlandsflugi var aflýst og þrettán brottförum frá Keflavík. Ekki var hægt að nota landganga á Keflavíkurflugvelli vegna vindhraða og þeim flugferðum sem ekki var aflýst var frestað fram á kvöld. Innlent 23.5.2023 19:30 „Í rauninni bara sagt: Gjörið svo vel, reddið þessu“ Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir að illa hafi gengið að greina mælanlegan árangur í verkefni ríkisins um styttingu vinnuvikunnar. Margir þættir séu óljósir og undirbúningstíminn hafi verið knappur. Í raun hafi verkefninu verið komið í hendur annarra og þeim sagt að „redda þessu.“ Innlent 23.5.2023 18:48 Stærðarinnar tré féll á Tjarnargötu Tré féll á Tjarnargötu um klukkan fimm í dag og lokaði götunni tímabundið. Innlent 23.5.2023 17:22 Þjófurinn tróð tveimur nautalundum í buxur sínar Samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var þjófur nokkur gripinn glóðvolgur en sá virðist hafa ætlað að gera sér glaðan dag og elda dýrindis nautasteik. Innlent 23.5.2023 17:06 Aflýsa flugi en björgunarsveitir ekki farið í útköll Fjöldi flugferða á Keflavíkurflugvelli hefur verið aflýst vegna óveðurs. Björgunarsveitir hafa ekki farið í nein útköll sem stendur. Innlent 23.5.2023 16:58 Sagðist hafa fundið tíu þúsund evrur á leið heim úr skólanum Tveir rúmenskir karlmenn hafa verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa notað peninga í verslunum og í Háspennusal sem þeir máttu gruna að væru falsaðir. Ófjárráða stelpa kom að því að skipta fölsuðum evruseðlum í íslenska peninga. Innlent 23.5.2023 16:39 Ráðherra verður við áskorun þingmanns og ljósmóður Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ætlar að leggja til að heimaþjónusta ljósmæðra verði veitt nýjum foreldrum og börnum óháð því hve lengi þau dvöldu á fæðingarstofnun. Innlent 23.5.2023 16:15 Stuðningur við Úkraínu hljóti að vega þyngra en „sérhagsmunir í landbúnaði“ Alþingi samþykkti í fyrra að tillögu fjármála-og efnahagsráðherra að fella niður tolla á vörur sem koma frá Úkraínu en þetta var liður í stuðningi Íslands við efnahagslíf Úkraínu á stríðstímum. Í lok mánaðar rennur ákvæðið út og framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda óttast að fjármálaráðherra nái ekki að endurnýja ákvæðið í tæka tíð. Innlent 23.5.2023 15:33 Leiðtogafundurinn hvalreki fyrir vopnabúr löggunnar Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra greindi frá því á þinginu nú rétt í þessu að ekki stæði til að selja aftur þann búnað sem keyptur var fyrir lögregluna vegna leiðtogafundarins. Alls fóru í það um 350 milljónir króna. Innlent 23.5.2023 14:38 Staðfestu sýknu Kópavogsbæjar í Vatnsendamálinu Hæstiréttur staðfesti í dag sýknu Kópavogsbæjar í langdregnu Vatnsendamáli, þar sem hluti erfingja Sigurðar K. Hjaltested krafðist 75 milljarða króna vegna eignarnáms á landi Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007. Innlent 23.5.2023 14:34 Ósátt við að nýtt stjórnarfrumvarp einskorðist við einhleypar konur Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp um tæknifrjóvgun sem heimilar notkun kynfrumna eftir andlát, skilnað eða sambúðarslit gegn skriflegu og vottuðu samþykki. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins fagnar því skrefi sem þar er stigið en hefði sjálf viljað ganga enn lengra í frelsisátt. Innlent 23.5.2023 14:33 Fresta læknisheimsóknum og leysa ekki út lyf vegna kostnaðar Ný könnun Félagsvísindastofnunar sýnir að læknis og lyfjakostnaður sé mörgum öryrkjum um megn. Prófessor í félagsfræði segir að staðan hafi versnað síðan árið 2015. Innlent 23.5.2023 14:01 Stendur ekki til að byggja endurvinnslu við kirkjugarðinn Ekki stendur til að heimila byggingu endurvinnslustöðvar í landi Kópavogskirkjugarðs, að því er fram kemur í tilkynningu frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastdæma. Innlent 23.5.2023 13:54 Þurfa að aflýsa einhverju flugi vegna hvassviðrisins Lægðin sem gengur nú yfir landið mun hafa áhrif á flugáætlun Icelandair seinni partinn í dag. Bæði þarf að seinka einhverjum brottförum og þá þarf í einhverjum tilfellum að aflýsa flugi. Innlent 23.5.2023 13:20 Seltjarnarnesbær sýknaður af öllum kröfum feðginanna Seltjarnarnesbær var í hádeginu sýknaður af tólf milljóna skaðabótakröfu sem feðgin höfðuðu á hendur bænum. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi ekki sannað að starfsfólk bæjarfélagsins hefði sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi. Faðirinn segir að málinu verði áfrýjað til Landsréttar. Innlent 23.5.2023 13:11 Velferðarmálin efst á forgangslista raunsærrar Samfylkingar „Samfylkingin hefur gjörbreytt sinni forgangsröðun eftir að Kristrún Frostadóttir varð formaður flokksins og við erum bara mjög raunsæ á Evrópumálin,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar um gagnrýni Sigmars Guðmundssonar á afstöðu flokksins. Innlent 23.5.2023 12:47 Sveitarstjórn Múlaþings ekki á móti þjóðsöngnum Sveitarstjórn Múlaþings er ekki á móti því að þjóðsöngurinn sé sunginn á 17. júní að sögn Berglindar Hörpu Svavarsdóttur, formanns byggðarráðs. Tillaga um að söngurinn yrði fluttur hafi hins vegar ekki átt neitt erindi inn í umræðu um fjárveitingar. Innlent 23.5.2023 12:09 Vilhjálmur segir kannski ekki skynsamlegt að gera langtíma kjarasamninga Formaður Starfsgreinasambandsins segir verkalýðshreyfinguna hljóta að endurskoða áætlanir um gerð langtíma kjarasamninga ef Seðlabankinn haldi áfram að hækka vexti. Bankarnir hagnist vel á vaxtahækkunum sem ýti heimilunum í landinu í verðtryggð lán. Ef til vill verði að skoða hvort ekki þurfi að skipta um gjaldmiðil þar sem vextir í Evrópu séu mun lægri en hér þrátt fyrir svipaða verðbólgu. Innlent 23.5.2023 12:02 « ‹ 331 332 333 334 ›
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum verður helsta umfjöllunarefnið vaxtahækkun Seðlabankans sem tilkynnt var í morgun. Innlent 24.5.2023 11:37
Claudia ein mætt í Hæstarétt og farið fram á sextán ár yfir Angjelin Málflutningur í Rauðagerðismálinu svokallaða hófst í Hæstarétti í morgun og heldur áfram fram eftir degi. Landsréttur dæmdi í málinu í október í fyrra og sakfelldi þar þrjá sakborninga, sem höfðu verið sýknaðir í héraði, og þyngdi dóm Angjelins Sterkaj, sem hefur játað að hafa banað Armando Beqirai fyrir utan heimili hans í Rauðagerði í febrúar 2021. Innlent 24.5.2023 11:16
Lítið vitað um innihald þeirra vímuefna sem eru í umferð og þörf á efnagreiningu Þörf er á efnagreiningu á vímuefnum hér á landi svo hægt sé að koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll að sögn sérfræðings. Lítið sé vitað um innihald þeirra sem eru í umferð hér á landi. Innlent 24.5.2023 10:39
Björgunarsveitirnar lausar við útköll í hvassviðrinu Engar tilkynningar hafa komið inn á borð björgarsveitanna vegna hvassviðrisins sem gekk á landið í gær. Innlent 24.5.2023 10:12
Atvinnuleysi 2,3 prósent í apríl og hækkun launavísitölu 1,6 prósent Atvinnuleysi var 2,3 prósent í apríl og dróst saman um 0,8 prósent á milli mánaða. Atvinnuleysi var 2,7 prósent á meðal karla og 1,8 prósent á meðal kvenna. Árstíðaleiðrétt atvinnuþátttaka var 80,9 prósent og árstíðaleiðrétt hlutfall starfandi 79 prósent. Innlent 24.5.2023 09:09
Réttað yfir geðhjúkrunarfræðingi sem er sakaður um manndráp Aðalmeðferð í máli geðhjúkrunarfræðings á sjötugsaldri sem er ákærður fyrir að valda dauða sjúklings hefst í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Umfjöllun um það sem fram kemur við þinghaldið er bönnuð þar til í lok dags. Innlent 24.5.2023 08:33
Mesta brottfall í Evrópu Brottfall ungs fólks úr námi er á uppleið aftur eftir covid faraldurinn og er nú það hæsta í Evrópu. Tvöfalt fleiri drengir hverfa á brott úr námi en stúlkur. Dósent í félagsfræði segir vandann hefjast í grunnskólum. Innlent 24.5.2023 07:00
Ölvaðir neituðu að yfirgefa verslun og veitingastað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til í gær þegar bifreiðareigandi komst að því að búið var að stinga á tvo hjólbarða bílsins. Í yfirliti lögreglu um verkefni gærkvöldsins og næturinnar kemur ekkert fram um eftirmála. Innlent 24.5.2023 06:19
Vill Fjarðaleið fremur en Fjarðarheiðargöng Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og fyrrverandi samgönguráðherra vill breyta forgangsröðun jarðganga á Austfjörðum í þágu almannavarna. Í stað Fjarðarheiðarganga til Seyðisfjarðar verði svokölluð Fjarðaleið valin um Mjóafjörð. Innlent 23.5.2023 22:02
„Við erum gapandi á þessu“ Faðir ungrar konu sem ólst upp við vanrækslu og ofbeldi móður án eiginlegra afskipta barnaverndaryfirvalda á Seltjarnarnesi segir sýknudóm yfir bænum hafa komið verulega á óvart. Standi dómurinn sé ljóst að einstaklingar í baráttu við kerfið, eigi ekki séns þegar kemur að dómstólum. Innlent 23.5.2023 20:34
Ný sería af Sönnum íslenskum sakamálum: Skáksambandsmálið og bruninn á Bræðraborgarstíg Ný þáttaröð af Sönnum íslenskum sakamálum kom út á Storytel í gær. Þar mun Sigursteinn Másson taka fyrir fimm sakamál sem komið hafa upp hér á landi. Skáksambandsmálið svokallaða og bruninn á Bræðraborgarstíg eru á meðal þeirra mála sem tekin verða fyrir í þáttunum. Innlent 23.5.2023 20:00
Fundu fyrir skjálftanum á Akureyri og Ólafsfirði Jarðskjálfti að stærð 3,8 mældist rúmlega níu kílómetrum austan við Grímsey klukkan 19:22 í kvöld. Skjálftinn fannst víða á Norðurlandi og hefur nokkur eftirskjálftavirkni fylgt honum. Innlent 23.5.2023 19:54
„Þetta er óvanalegt en þetta er Ísland“ Flugumferð fór úr skorðum í dag vegna hvassviðris en gular viðvaranir eru í gildi á nær öllu landinu. Öllu innanlandsflugi var aflýst og þrettán brottförum frá Keflavík. Ekki var hægt að nota landganga á Keflavíkurflugvelli vegna vindhraða og þeim flugferðum sem ekki var aflýst var frestað fram á kvöld. Innlent 23.5.2023 19:30
„Í rauninni bara sagt: Gjörið svo vel, reddið þessu“ Þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir að illa hafi gengið að greina mælanlegan árangur í verkefni ríkisins um styttingu vinnuvikunnar. Margir þættir séu óljósir og undirbúningstíminn hafi verið knappur. Í raun hafi verkefninu verið komið í hendur annarra og þeim sagt að „redda þessu.“ Innlent 23.5.2023 18:48
Stærðarinnar tré féll á Tjarnargötu Tré féll á Tjarnargötu um klukkan fimm í dag og lokaði götunni tímabundið. Innlent 23.5.2023 17:22
Þjófurinn tróð tveimur nautalundum í buxur sínar Samkvæmt dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var þjófur nokkur gripinn glóðvolgur en sá virðist hafa ætlað að gera sér glaðan dag og elda dýrindis nautasteik. Innlent 23.5.2023 17:06
Aflýsa flugi en björgunarsveitir ekki farið í útköll Fjöldi flugferða á Keflavíkurflugvelli hefur verið aflýst vegna óveðurs. Björgunarsveitir hafa ekki farið í nein útköll sem stendur. Innlent 23.5.2023 16:58
Sagðist hafa fundið tíu þúsund evrur á leið heim úr skólanum Tveir rúmenskir karlmenn hafa verið dæmdir í skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa notað peninga í verslunum og í Háspennusal sem þeir máttu gruna að væru falsaðir. Ófjárráða stelpa kom að því að skipta fölsuðum evruseðlum í íslenska peninga. Innlent 23.5.2023 16:39
Ráðherra verður við áskorun þingmanns og ljósmóður Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra ætlar að leggja til að heimaþjónusta ljósmæðra verði veitt nýjum foreldrum og börnum óháð því hve lengi þau dvöldu á fæðingarstofnun. Innlent 23.5.2023 16:15
Stuðningur við Úkraínu hljóti að vega þyngra en „sérhagsmunir í landbúnaði“ Alþingi samþykkti í fyrra að tillögu fjármála-og efnahagsráðherra að fella niður tolla á vörur sem koma frá Úkraínu en þetta var liður í stuðningi Íslands við efnahagslíf Úkraínu á stríðstímum. Í lok mánaðar rennur ákvæðið út og framkvæmdastjóri Félags atvinnurekenda óttast að fjármálaráðherra nái ekki að endurnýja ákvæðið í tæka tíð. Innlent 23.5.2023 15:33
Leiðtogafundurinn hvalreki fyrir vopnabúr löggunnar Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra greindi frá því á þinginu nú rétt í þessu að ekki stæði til að selja aftur þann búnað sem keyptur var fyrir lögregluna vegna leiðtogafundarins. Alls fóru í það um 350 milljónir króna. Innlent 23.5.2023 14:38
Staðfestu sýknu Kópavogsbæjar í Vatnsendamálinu Hæstiréttur staðfesti í dag sýknu Kópavogsbæjar í langdregnu Vatnsendamáli, þar sem hluti erfingja Sigurðar K. Hjaltested krafðist 75 milljarða króna vegna eignarnáms á landi Vatnsenda árin 1992, 1998, 2000 og 2007. Innlent 23.5.2023 14:34
Ósátt við að nýtt stjórnarfrumvarp einskorðist við einhleypar konur Heilbrigðisráðherra hefur lagt fram frumvarp um tæknifrjóvgun sem heimilar notkun kynfrumna eftir andlát, skilnað eða sambúðarslit gegn skriflegu og vottuðu samþykki. Þingmaður Sjálfstæðisflokksins fagnar því skrefi sem þar er stigið en hefði sjálf viljað ganga enn lengra í frelsisátt. Innlent 23.5.2023 14:33
Fresta læknisheimsóknum og leysa ekki út lyf vegna kostnaðar Ný könnun Félagsvísindastofnunar sýnir að læknis og lyfjakostnaður sé mörgum öryrkjum um megn. Prófessor í félagsfræði segir að staðan hafi versnað síðan árið 2015. Innlent 23.5.2023 14:01
Stendur ekki til að byggja endurvinnslu við kirkjugarðinn Ekki stendur til að heimila byggingu endurvinnslustöðvar í landi Kópavogskirkjugarðs, að því er fram kemur í tilkynningu frá Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastdæma. Innlent 23.5.2023 13:54
Þurfa að aflýsa einhverju flugi vegna hvassviðrisins Lægðin sem gengur nú yfir landið mun hafa áhrif á flugáætlun Icelandair seinni partinn í dag. Bæði þarf að seinka einhverjum brottförum og þá þarf í einhverjum tilfellum að aflýsa flugi. Innlent 23.5.2023 13:20
Seltjarnarnesbær sýknaður af öllum kröfum feðginanna Seltjarnarnesbær var í hádeginu sýknaður af tólf milljóna skaðabótakröfu sem feðgin höfðuðu á hendur bænum. Héraðsdómur Reykjavíkur taldi ekki sannað að starfsfólk bæjarfélagsins hefði sýnt af sér saknæma og ólögmæta háttsemi. Faðirinn segir að málinu verði áfrýjað til Landsréttar. Innlent 23.5.2023 13:11
Velferðarmálin efst á forgangslista raunsærrar Samfylkingar „Samfylkingin hefur gjörbreytt sinni forgangsröðun eftir að Kristrún Frostadóttir varð formaður flokksins og við erum bara mjög raunsæ á Evrópumálin,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, þingmaður Samfylkingarinnar um gagnrýni Sigmars Guðmundssonar á afstöðu flokksins. Innlent 23.5.2023 12:47
Sveitarstjórn Múlaþings ekki á móti þjóðsöngnum Sveitarstjórn Múlaþings er ekki á móti því að þjóðsöngurinn sé sunginn á 17. júní að sögn Berglindar Hörpu Svavarsdóttur, formanns byggðarráðs. Tillaga um að söngurinn yrði fluttur hafi hins vegar ekki átt neitt erindi inn í umræðu um fjárveitingar. Innlent 23.5.2023 12:09
Vilhjálmur segir kannski ekki skynsamlegt að gera langtíma kjarasamninga Formaður Starfsgreinasambandsins segir verkalýðshreyfinguna hljóta að endurskoða áætlanir um gerð langtíma kjarasamninga ef Seðlabankinn haldi áfram að hækka vexti. Bankarnir hagnist vel á vaxtahækkunum sem ýti heimilunum í landinu í verðtryggð lán. Ef til vill verði að skoða hvort ekki þurfi að skipta um gjaldmiðil þar sem vextir í Evrópu séu mun lægri en hér þrátt fyrir svipaða verðbólgu. Innlent 23.5.2023 12:02