Gildin sem sigldu forsetaembættinu í höfn Hugrún Sigurjónsdóttir skrifar Nýkjörnum forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur varð tíðrætt um gildi þjóðarinnar í kosningabaráttunni. Í kappræðum á RUV kvöldið fyrir kjördag var hún spurð eitthvað í þá veru hvort þessi hugtök væru ekki dálítið óljós og betri til brúks í viðskiptalífinu. Skoðun 2. júní 2024 kl. 21:02
Gegnumlýsing - þankabrot frambjóðanda að loknu forsetakjöri Arnar Þór Jónsson skrifar Um leið og ég þakka öllum þeim sem sýndu mér stuðning í orði og verki, vil ég óska Höllu Tómasdóttur til hamingju með kjör hennar í embætti forseta Íslands. Skoðun 2. júní 2024 kl. 19:30
Halla, ekki Kata Sævar Þór Jónsson skrifar Nýafstaðnar forsetakosningar eru svo sannarlega sögulegar að mörgu leyti. Í mínum huga sýna þær og sanna mikilvægi embættisins og hversu nær það stendur hjarta landsmanna. Einnig tek ég undir orð Ólafs Ragnars Grímssonar að þjóðin hefur nú viðurkennt eða veitt embættinu aukið vægi og hlutverk. Skoðun 2. júní 2024 kl. 15:00
Getur reiði valdið veikindum? Sigurbjörg Jónsdóttir skrifar Svarið við spurningunni hér fyrir ofan er já. Reiði eða almennt neikvæð orka. Nú kemur örugglega kurr frá einhverjum sem sitja í sinni fáfræði. En það er allt í lagi. Skoðun 2. júní 2024 kl. 14:00
Ráðherrar hafa áhyggjur af valdbeitingu Tómas Ingvason skrifar Á fréttamiðlum í gær mátti lesa að ráðherra í ríkisstjórn Íslands telur mikilvægt að farið sé vandlega yfir verkferla þegar lögregla beitir valdi gegn borgurum landsins. Þetta kemur í kjölfar þess að nokkrir kjósendur hans fengu yfir sig piparúða þegar þeir mótmæltu fyrir utan ríkisstjórnarfund. Ráðherran segist nú hafa gefið út fyrirmæli til ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis að fara ætti yfir verkferla og ákvarðanir lögreglu í svona málum. Skoðun 2. júní 2024 kl. 13:31
Taktísk skilyrðing umræðunnar Magnús Davíð Norðdahl og skrifa Í aðdraganda kosninganna og ekki síður nú eftir úrslitin er sumum tamt að búa til og útfæra skilgreiningu á þeim sem kusu með „hjartanu“ og hinna sem gerðu það ekki og kusu það sem þeir hinir sömu kalla „taktískt“. Hugmyndin er þá sú að sumir kjósendur séu á einhvern hátt heiðarlegri, einlægari og betri en aðrir, í raun sannkallaðar tilfinningaverur, sem hlusta á hjartað, andstætt hinum sem eru þá kaldlyndari og reiða sig á skynsemina eina saman. Skoðun 2. júní 2024 kl. 13:00
Sameinumst um forvarnir gegn átröskun Karen Daðadóttir, Guðrún Erla Hilmarsdóttir og Elva Björk Bjarnadóttir skrifa Á undanförnum árum hefur alvarleg átröskun færst í aukana. Fleiri þurfa að leggjast inn á spítala en áður og átröskun meðal barna hefur vaxið. Barna- og unglingageðdeild Landspítala sinnir börnum sem glíma við alvarlega átröskun og nú á alþjóðlegum baráttudegi um átröskun er rétt að staldra við og velta upp ástæðum þessarar fjölgunar barna sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna átröskunar. Skoðun 2. júní 2024 kl. 09:00
Ég kýs Michael Jordan (Höllu Hrund Logadóttur) Óskar Arnarson skrifar Ímyndið ykkur forseta sem býr yfir visku fortíðar en sér fyrir framtíðina. Halla Hrund er kona vísinda sem mun leiða sjálfbæra nýsköpun og tryggja að við nýtum auðlindir Íslands á vistvænan hátt. Sem háskólakennari hvetur hún ungt fólk til að taka virkan þátt í að móta landið sitt. Skoðun 1. júní 2024 kl. 18:32
Ástæður til að kjósa Jón Gnarr Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Mér finnst það góð pæling, að tala ekki bara um hvað maður hyggist kjósa heldur einnig hvers vegna. Aðeins snúnara í forsetakosningum vegna þess að embættið er ekki jafn pólitískt og t.d. Alþingi. Skoðun 1. júní 2024 kl. 18:07
Viddi, Bósi Ljósár og Baldur Þórhalls Heimir Hannesson skrifar Fyrir nokkrum mánuðum hringdi síminn á skrítnum tíma, eins og svo oft áður. Áður en ég leit á skjáinn vissi ég auðvitað að þetta væri Janus vinur minn. Það hringir enginn annar í mig á þeim tímum. Skoðun 1. júní 2024 kl. 14:34
Gerum það! Stefán Hilmarsson skrifar Mér hefur gramist herferð Morgunblaðsins gegn framboði Höllu Hrundar á liðnum vikum. Í gær slógu þeir ekki slöku við; tveir uppslættir með neikvæðum formerkjum, ofan á annað undanfarið. Maður hefði ætlað að þeir sýndu háttvísi rétt fyrir kjördag. En svo var ekki. Þetta er formlega orðið að einskonar atlögu. Skoðun 1. júní 2024 kl. 11:01
Bónaður brjóstkassi og barnaafmæli Þorbjörg Marínósdóttir skrifar Ég sat með rjómaþakið postulín í barnaafmæli fyrir nokkru síðan þar sem forsetaframboðsumræður yfirgnæfðu sykurþanda gleði gesta. Nú þurfti að ræða málin. Barnaafmæli eru nefnilega fullkomin umræðuvettvangur. Þar blandast saman allskonar fólk á öllum aldri og enginn er undir áhrifum og missir sig í rausi. Fólk er kurteist en ákveðið og svo er afmælið búið áður en umræðurnar verða þreytandi. Skoðun 1. júní 2024 kl. 10:00
Gleðilegan kosningadag kæru landsmenn Snorri Ásmundsson skrifar Forsetakosningarnar í ár hafa verið þær skemmtilegustu sem ég man eftir. Margir að bjóða fram krafta sína og flestir af þeim hafa sitt hvað að bjóða. Jón Gnarr toppaði framboð sitt í gærkveldi með magnaðri frammistöðu og sýndi okkur hversu hæfur hann er í embættið. Katrín sýndi okkur líka að hún er öflug, glæsileg og skarpgreind kona sem stendur vel í fæturnar þrátt fyrir mikið mótlæti og óvenju hatursfulla og óbilgjarna orðræðu. Skoðun 1. júní 2024 kl. 09:31
Hæfasti einstaklingurinn Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Forsetakosningarnar sem fram fara í dag snúast fyrst og fremst um hæfasta einstaklinginn til þess að gegna embætti forseta Íslands að mati hvers og eins. Kosningarnar eru persónukjör. Þær eru í raun atvinnuviðtal eins og ýmsir hafa nefnt réttilega. Við kjósendur erum sameiginlega að ráða í starfið. Hver og einn greiðir atkvæði með þeim sem hann vill sjá sem forseta lýðveldisins og síðan liggur niðurstaðan fyrir. Skoðun 1. júní 2024 kl. 09:00
Verðmætin og sköpunarkraftur sá sem í mannauð okkar býr Pétur Már Halldórsson skrifar Við lifum í landi sem er ríkt af náttúruauðlindum. Við búum að gnótt grænnar orku sem falin er í fallvötnum, jarðhita og vindi. Við státum af órþjótnadi uppsprettu tærasta vatns í heimi. Við sitjum umlukin ríkari fiskimiðum en nokkur þjóð og búum í stórbrotinni náttúru sem milljónir ferðamenn vilja njóta. Skoðun 1. júní 2024 kl. 08:31
Hvort vilt þú Höllu Tómasdóttur eða Katrínu? Björn Björnsson skrifar Eftir nýjustu kannanir og frammistöðu frambjóðenda í síðustu umræðuþáttunum er ljóst að annað hvort Halla Tómasdóttir eða Katrín Jakobsdóttir verða næsti forseti Íslands. Annað er óskhyggja. Skoðun 1. júní 2024 kl. 08:00
Svona velur þú þér forseta í dag Kolbeinn Karl Kristinsson skrifar Nú kýs þjóðin sér forseta og ég þykist vita að mörg ykkar séu enn á báðum áttum með hvern frambjóðendanna þið ætlið að kjósa. Skoðun 1. júní 2024 kl. 06:30
Takk, Katrín Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar ...fyrir að bjóða þig fram til embættis forseta Íslands. Skoðun 31. maí 2024 kl. 23:30
Hatur og fyrirlitning Einar Scheving skrifar Undanfarna daga hefur Þjóðleikhús fáránleikans sett upp einhverja furðulegustu sýningu í manna minnum og er þó enginn hörgull á sambærilegum sýningum í sögu þessarar andlega löskuðu þjóðar. Skoðun 31. maí 2024 kl. 21:31
Samherjar Hafþór Reynisson skrifar Nú göngum við íslendingar að kjörklefunum. Það er stór hópur sem hefur ákveðið að gefa kost á sér til forseta Íslands og öll hafa þau ýmislegt til brunns að bera, sama hvernig maður lítur á það. Það hefur orðið ljóst að slagurinn um atkvæði er orðinn ansi hávær og ganga mætti svo langt að segja að hann sé orðinn að leðjuslag. Skoðun 31. maí 2024 kl. 21:00
Að hitta hetjuna sína Gréta Kristín Ómarsdóttir skrifar Hæfileikar, einir og sér, leiða mann ekki frá einum stað til annars. Hæfileikar stýra því ekki hvernig maður kemur fram við fólk, dýr og náttúru, þeir hafa engan siðferðislegan áttavita og greiða manni afar fáar götur í samskiptum og flóknum álitamálum. Skoðun 31. maí 2024 kl. 19:31
Einstakt tækifæri Þóra Valný Yngvadóttir skrifar Hvað gerir forseti Íslands? Hvers vegna þurfum við forseta? Þetta eru spurningar sem hafa heyrst núna þegar við erum að kjósa okkur nýjan forseta. Starf forseta Íslands er eitt af þessum störfum, þar sem sá sem því gegnir, getur mótað starfið því það býður upp á mikinn sveigjanleika og fjölbreytta nálgun. Skoðun 31. maí 2024 kl. 19:00
Um afrekskonuna Katrínu Tómas Ísleifsson skrifar Steinunn Jóhannesdóttir skrifar stuttan pistil um afrek Katrínar Jakobsdóttur. Skoðun 31. maí 2024 kl. 18:01
Land míns föður, land minnar móður, landið mitt Jón Gnarr skrifar Ísland hefur alltaf verið mér gott og haft nóg fyrir mig að gera. Ég er mjög þakklátur fyrir að fá að telja mig til þessarar merkilegu þjóðar. Skoðun 31. maí 2024 kl. 17:15
Óskað eftir forseta sem færir ungu fólki völd Valgerður Eyja Eyþórsdóttir skrifar Á morgun 1. júní verður kosið til embættis forseta Íslands, þar sem við munum kjósa sjöunda forseta lýðveldisins. Í þessu samhengi skiptir máli að við unga fólkið skilum okkur á kjörstað og nýtum lýðræðislegan kosningarétt okkar. Við sem erum að kjósa í fyrsta skiptið fáum loksins að nýta kosningaréttinn, sem er mikið meira en bara réttur. Hann er tækifæri okkar til að láta rödd okkar heyrast og hafa áhrif á samfélagið. Skoðun 31. maí 2024 kl. 17:01
Með ósk um velgengni, Halla Hrund Viðar Hreinsson skrifar Þessi kosningabarátta hefur verið áhugaverð. Tími yfirvegaðra stefnuyfirlýsinga er löngu liðinn og við hefur tekið samfelldur kliður á samfélagsmiðlum sem fjölmiðlar sleikja upp í misjöfnum tilgangi. Stundum hefur þetta tekið á sig mynd hatrammra skothríða þar sem orðfæri hefur gengið fram af viðkvæmu og grandvöru fólki. Skoðun 31. maí 2024 kl. 16:46
Ég styð Höllu Hrund Logadóttur Þórólfur Árnason skrifar Það er mikilvægt að forseti Íslands sé óháður valdastéttum og pólitískum flokkum. Forseti má ekki þurfa að taka afstöðu til máls sem hann hefur áður stutt eða lagt fram. Skoðun 31. maí 2024 kl. 15:17
Arnar Þór Jónsson Meyvant Þórólfsson skrifar Eflaust varpa flestir öndinni léttar þegar þeirri skýjareið og draumarugli lýkur, sem einkennt hefur umræðuna um forsetakosningar undanfarið. Engan skal undra að þjóðinni líði eins og húðsneyptum hundi og fái aulahroll, þegar hún heyrir fjölmiðlafólk, misgáfaða álitsgjafa og suma frambjóðendur ræða um sig, eins og hún sjálf sé mállaus óviti er þurfi að hugsa fyrir. Skoðun 31. maí 2024 kl. 15:00
Að skreyta sig með stolnum fjöðrum Sema Erla Serdaroglu skrifar Undanfarna daga hefur þeirri áhugaverðu söguskýringu verið haldið á lofti að það sé ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur eitthvað sérstaklega að þakka að fjöldinn allur af Palestínufólki hafi komist undan þjóðarmorði á Gaza og hingað til Íslands, þar sem fólkið er með dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar. Dvalarleyfi sem þau eiga einfaldlega rétt á samkvæmt lögum og er engum að "þakka." Skoðun 31. maí 2024 kl. 14:45
Opið bréf til Jóns Ólafssonar heimspekings Tómas Ísleifsson skrifar Hvort má Katrín Jakobsdóttir bjóða sig fram? Jón Ólafsson! þú ert prófessor við Háskóla Íslands, doktor í heimspeki með gráðu í Rússlandsfræðum og hefur göfug stefnumið samkvæmt skilgreiningu ritstjórnar Vísindavefsins: Skoðun 31. maí 2024 kl. 14:31
Tilgreind séreign – Á ég að skrá mig? Nú safna allir launþegar á Íslandi minnst 15,5% iðgjaldi í lífeyrissjóð. Eigið framlag okkar nemur 4% en vinnuveitandi bætir við minnst 11,5%. Í mörgum lífeyrissjóðum er nú í boði að ráðstafa 3,5% af því framlagi í tiltöluega nýlega tegund séreignarsparnaðar sem nefnist tilgreind séreign.
Varanlegt vopnahlé og sjálfstæð Palestína Undanfarna sex mánuði hefur heimurinn horft upp á hryllilega mannúðarkrísu stigmagnast á Gaza-ströndinni. Hungursneyð vofir yfir íbúum og nær ómögulegt er orðið fyrir alþjóðleg hjálparsamtök og heilbrigðisstarfsfólk að veita særðum og sjúkum aðstoð undir stöðugu sprengjuregni.
Alþingi slátrar jafnræðisreglunni Þessa dagana stendur yfir útboð á tollkvóta til að flytja inn búvörur frá Evrópusambandinu. Tollkvótar eru takmarkað magn búvara, sem flytja má inn án tolla samkvæmt samningi Íslands og ESB frá 2015. Til að fá að flytja inn tollfrjálsa vöru þurfa innflytjendur að bjóða í kvótana og greiða fyrir þá svokallað útboðsgjald.
Tíminn að renna út Í dag er alþjóðlegur baráttudagur verkalýðsins. Við þurfum að senda frá okkur skýr skilaboð til stjórnvalda og stjórnmálanna að tími aðgerðarleysis og óstjórnar er að renna út.
Delluathvarf Stefáns Í átökum fólks á milli verður atburðarásin stundum furðuleg. Þegar mikið er undir skiptir miklu máli að geta sýnt fram á hvers vegna þitt sjónarmið skiptir máli. Stundum verður kappið of mikið og beinum eða óbeinum blekkingum er beitt, sem verða stundum til fyrir misskilning.
Hverjir bera ábyrgð á að halda launum kvenna niðri? Undanfarið hef ég fylgst af aðdáun með umfjöllun um kvenlækna sem flettu ofan af launamun kynja á Landspítalanum. Umfjöllunin hefur reyndar ekki farið nógu hátt, en þær komust að því að karlkyns sérfræðilæknar sem voru ráðnir seinna en þær fengu allir hærri laun en þær. Þær virðast hafa haft þó nokkuð fyrir því að grafa þessar upplýsingar upp og eiga mikið hrós skilið fyrir að taka þennan slag.
Löggæsla er mikilvæg grunnþjónusta við fólkið í landinu Þrátt fyrir að öryggi fólks sé fyrsta skylda ríkisins blasir alvarleg innviðaskuld við hvað varðar löggæslu í landinu. Engu að síður er ætlun ríkisstjórnarinnar að herða ólina að löggæslu í nýjustu fjármálaáætlun með 1.500 milljónir aðhaldskröfu á löggæslustofnanir landsins.
Heilt kjörtímabil án árangurs í loftslagsmálum Í dag stóð Umhverfisstofnun fyrir Loftslagsdeginum í Hörpu, viðburði sem er búinn að festa sig í sessi sem árlegt tilefni til að taka stöðuna og ræða staðreyndir í kringum loftslagsmálin. Fullur salur af sérfræðingum og áhugafólki þurfti þar, líkt og undanfarin ár, að hlusta á umhverfisráðherra lýsa stöðu sem engin kannast við nema þau sem eyða flestum dögum í grænþvottaherbergjum ríkisstjórnarinnar.
ESB jók framlög til landbúnaðar um 430 milljónir evra í sumar Þann 26. júní sl. samþykkti framkvæmdastjórn ESB að auka framlög til landbúnaðar í aðildarríkjunum til að koma til móts við áhrif af óhagstæðu veðurfari, hækkun framleiðslukostnaðar og fjölbreyttum markaðs- og viðskiptatengdum áskorunum.
Vegið að æru embættismanna Hávært ákall um gerð skýrs lagaramma í kringum sjókvíaeldi hefur verið viðvarandi lengi. Það verður að koma böndum á þessa atvinnustarfsemi, enda engri slíkri hollt að vaxa án skýrra laga og stefnu. Í stjórnarsáttmála ríkistjórnarinnar er þessa getið. Skýrsla Ríkisendurskoðunar sýndi síðan svart á hvítu að aðgerða var þörf.
Ferðamálastefna til framtíðar Nú er sumarið komið og farfuglarnir sem koma með vélknúnum farartækjum til landsins farnir að fara á stjá.
Framtíðin er í húfi Sósíalistaflokkur Íslands sendir öllu launafólki baráttukveðjur í tilefni dagsins og hvetur það til þátttöku, ekki bara í göngum dagsins heldur í verkalýðshreyfingunni almennt. Hreyfingin endurspeglar ekki vilja og vonir launafólks nema þegar þar er öflugt starf leitt af félagsfólki sjálfu.
Flokkur fólksins mun ekki samþykkja að hækka leigu hjá Félagsbústöðum Félagsbústaðir eru B-hluta fyrirtæki Reykjavíkurborgar og er óhagnaðardrifið félag. Viðskiptamódel Félagsbústaða gengur ekki upp miðað við núverandi forsendur sem er að rekstur félagsins skuli vera sjálfbær.