Sport

Dag­skráin í dag: Kefla­vík getur komist í úr­slit, Cheerios-mótið og Glódís og Svein­dís mætast í bikarúrslitum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Sara Rún Hinriksdóttir og stöllur hennar í Keflavík geta komist í úrslit Subway deildar kvenna með sigri á Stjörnunni í Umhyggjuhöllinni í dag.
Sara Rún Hinriksdóttir og stöllur hennar í Keflavík geta komist í úrslit Subway deildar kvenna með sigri á Stjörnunni í Umhyggjuhöllinni í dag. vísir/vilhelm

Ýmissa grasa kennir á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag, uppstigningardag. Sýnt verður beint frá fjórða leik Stjörnunnar og Keflavíkur í undanúrslitum Subway deildar kvenna, tveir leikir eru í Bestu deild kvenna, bikarúrslitaleikurinn í Þýskalandi verður sýndur auk leikja í undanúrslitum Evrópu- og Sambandsdeildanna.

Stöð 2 Sport

Klukkan 14:40 hefst útsending frá fjórða leik Stjörnunnar og Keflavíkur í undanúrslitum Subway deildar kvenna í körfubolta. Keflvíkingar tryggja sér sæti í úrslitum með sigri.

Klukkan 16:45 er svo komið að Subway Körfuboltakvöldi.

Klukkan 20:00 verður þáttur um Cheerios-mótið í fótbolta sýndur.

Stöð 2 Sport 2

Klukkan 18:50 hefst útsending frá seinni leik Leverkusen og Roma í undanúrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta. Leverkusen vann fyrri leikinn, 2-0.

Stöð 2 Sport 3

Klukkan 18:50 hefst útsending frá seinni leik Olympiacos og Aston Villa í undanúrslitum Sambandsdeildarinnar í fótbolta. Grikkirnir unnu fyrri leikinn með fjórum mörkum gegn tveimur.

Stöð 2 Sport 4

Klukkan 19:00 verður sýnt frá Cognizant Founders Cup á LPGA-mótaröðinni í golfi.

Stöð 2 Sport 5

Klukkan 15:50 hefst útsending frá leik Víkings og Þórs/KA í Bestu deild kvenna í fótbolta.

Vodafone Sport

Klukkan 13:50 hefst útsending frá úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar þar sem Bayern München og Wolfsburg eigast við. Glódís Perla Viggósdóttir er fyrirliði Bayern á meðan samherji hennar í íslenska landsliðinu, Sveindís Jane Jónsdóttir, leikur með Wolfsburg.

Klukkan 18:50 verður sýnt frá seinni leik Atalanta og Marseille í undanúrslitum Evrópudeildairnnar. Staðan í einvíginu er 1-1.

Klukkan 23:30 er svo komið að útsendingu frá viðureign Cleveland Guardians og Chicago White Sox í MLB-deildinni í hafnabolta.

Besta deildin

Klukkan 15:50 hefst útsending frá leik Tindastóls og Fylkis í Bestu deild kvenna í fótbolta.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×