Skoðun

Að leysa vandann með quick fix

Guðbrandur Einarsson skrifar

Nú liggur það fyrir að Seðlabankinn lækkar ekki vexti í þetta sinn þrátt fyrir að verðbólga sé komin í 6%. Okkur er því áfram boðið upp á 9,25% stýrivexti. Þetta þýðir að fólk mun halda áfram að greiða 11-12% vexti af lánum sínum, 13% af bílalánum og 17% af yfirdráttarlánum.

Raunvextir á sumum þessara lánaforma eru því orðnir 11%.

Lágvaxtalandið Ísland

Þegar Seðlabankinn lækkaði stýrivexti í 0,75% í mars 2021 var verðbólga yfir 4%. Þetta kom sér vel fyrir suma flokka í aðdraganda síðustu kosninga sem keyrðu sína kosningabaráttu undir kjörorðinu lágvaxtalandið Ísland. Þegar maður spyr um ástæðu þess að raunvextir hafi verið gerðir neikvæðir þá hefur svarið verið alltaf verið á þann veg að það þurfti að sprauta lífi í íslenskt atvinnulíf.

Niðurstaðan af því varð hins vegar sú, eins og hjá fíklinum sem þurfti quick fix, að allt fór í bál og brand. Það er svo ríkt í okkur að leysa allt með quick fixi. Nú þurfa raunvextir hins vegar að vera háir – og svo háir að enginn getur hreyft sig og hengingarólin herðist áfram um háls þeirra sem skulda.

Öfug kaupmáttaraukning kjarasamninga

Síðustu kjarasamningar voru undirritaðir með það að markmiði að ná niður verðbólgu og vöxtum. Það gefur augaleið að það að semja um 3,5% hækkun launa í 6% verðbólgu og vöxtum upp á 11-12% þýðir í raun kaupmáttarrýrnun hjá öllum þeim sem fengu þessa almennu hækkun.

Fjármálastofnanir eru farnar að spá því að verðbólga haldist óbreytt út árið og því er enginn hvati fyrir Seðlabankann að lækka vexti á næstunni, enda hefur Seðlabankinn það eina markmið að koma verðbólgunni niður í 2,5% markmiðið.

Niðurstaðan alltaf sú sama

Ríkisstjórnin hefur réttlætt mikla verðbólgu með miklum hagvexti. Gott og vel. Nú hefur það hins vegar snúist við og spáð er litlum hagvexti. Samt er verðbólgan of há til að hægt sé að hreyfa við stýrivöxtum. Áfram búum við hér á Íslandi við mikla verðbólgu meðan í Danmörku er hún komin niður fyrir 1%. En við höldum samt áfram og vonumst eftir annarri niðurstöðu næst án þess að skoða þá undirliggjandi þætti sem valda þessum óstöðugleika á Íslandi.

Við þurfum viðhorfsbreytingu og þurfum að viðurkenna að kerfisbreytinga er þörf hér á landi.

Annars höldum við bara áfram rétt eins og fíkillinn að kaupa okkur quick fix og við ættum að vita svo vel hvernig það endar. Við höfum gert það svo oft.

Höfundur er þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×