United skemmdi kveðjupartý De Zerbi

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Rasmus Højlund skoraði seinna mark United í dag.
Rasmus Højlund skoraði seinna mark United í dag. Michael Steele/Getty Images

Manchester United vann 2-0 útisigur er liðið heimsótti Brighton í lokaumferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag. Þetta var síðasti leikur Roberto De Zerbi sem knattspyrnustjóri Brighton.

Ekki er hægt að segja að heimamenn í Brighton hafi ekki fengið færin til að brjóta ísinn í leik dagsins, en fyrsta markið leit ekki dagsins ljós fyrr en á 73. mínútu þegar Diogo Dalot kom boltanum í netið fyrir gestina með góðu skoti.

Það var svo danski framherjinn Rasmus Højlund sem gulltryggði sigur United með marki á 88. mínútu og þar við sat. Niðurstaðan því 2-0 sigur Manchester United sem endar tímabilið í áttunda sæti deildarinnar með 60 stig, tólf stigum meira en Brighton sem hafnaði í ellefta sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira