Evrópuboltinn nýfarinn að rúlla en keppni svo gott sem lokið í Frakklandi og Þýskalandi Það er ef til vill full hart í árina tekið að lýsa því yfir að keppni í efstu deild karla í fótbolta í bæði Frakklandi og Þýskalandi sé lokið en þannig virðist staðan hins vegar einfaldlega vera þegar þremur umferðum er lokið. Fótbolti 22. ágúst 2022 17:30
Koulibaly heldur áfram að safna rauðum spjöldum Kalidou Koulibaly, miðvörður Chelsea, nældi sér í tvö gul spjöld og þar með rautt er Chelsea steinlá gegn Leeds United í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina. Leikmaðurinn er duglegur að safna spjöldum og má ætla að hann næli í fleiri rauð í treyju Chelsea á komandi misserum. Enski boltinn 22. ágúst 2022 16:45
Sjáðu Messi og Mbappé búa til mark eftir aðeins átta sekúndur Kylian Mbappé setti nýtt met í gær þegar hann kom Paris Saint-Germain í 1-0 á móti Lille eftir aðeins átta sekúndna leik. Parísarliðið vann leikinn á endanum 7-1 þar sem Mbappé skoraði þrennu og næði Lionel Messi og Neymar voru með mark og stoðsendingu. Fótbolti 22. ágúst 2022 15:45
Emil hættur eftir tvö hjartastopp Emil Pálsson lýsti því yfir í dag að knattspyrnuferli sínum væri lokið en ástæðan er sú að hann hefur tvisvar farið í hjartastopp á síðustu misserum. Fótbolti 22. ágúst 2022 13:30
Kvöld sem gæti galopnað toppbaráttuna og gjörbreytt stöðu mála á botni deildarinnar Alls eru fjórir leikir á dagskrá í Bestu deild karla í fótbolta í kvöld. Tveir þeirra gætu haft gríðarleg áhrif á toppbaráttuna á meðan hinir tveir geta breytt stöðu mála á botni deildarinnar. Íslenski boltinn 22. ágúst 2022 13:01
Sara, Guðrún og Cloé gætu beðið Vals Það er ljóst að Íslandsmeistara Vals bíður krefjandi verkefni í umspilinu um að komast í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu í fótbolta kvenna. Mögulega mætir liðið Ítalíumeisturum Juventus, með landsliðsfyrirliðanna Söru Björk Gunnarsdóttur innanborðs. Fótbolti 22. ágúst 2022 12:01
Ófarirnar halda áfram eftir að hann yfirgaf Liverpool Georginio Wijnaldum spilar ekki með Roma á næstunni og heimsmeistaramótið í Katar gæti verið í hættu hjá kappanum. Fótbolti 22. ágúst 2022 10:00
Stóð í tæpar tíu sekúndur eins og stytta áður en hann tók vítið Esmiraldo Sá Silva, leikmaður Feirense í portúgöslku B-deildinni, tók afar áhugaverða vítaspyrnu þegar hann jafnaði metin fyrir liðið í 1-1 jafntefli gegn Leixoes í kvöld. Hann stóð þá heillengi eins og stytta yfir boltanum áður en hann lét vaða. Fótbolti 21. ágúst 2022 23:31
Mbappé skoraði fljótasta mark í sögu frönsku úrvalsdeildarinnar Kylian Mbappé átti sannkallaðan stórleik er Paris Saint-Germain vann risasigur gegn Lille í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld, 1-7. Mbappé skoraði þrennu fyrir frönsku meistarana, en fyrsta markið skoraði hann eftir aðeins átta sekúndur. Fótbolti 21. ágúst 2022 23:00
Afmælisbarnið Lewandowski allt í öllu í öruggum sigri Börsunga Robert Lewandowski hélt upp á 34 ára afmælið sitt með því að skora sín fyrstu mörk í spænsku úrvalsdeildinni fyrir Barcelona í kvöld. Pólverjinn skoraði tvö er liðið vann öruggan 1-4 sigur gegn Real Sociedad. Fótbolti 21. ágúst 2022 21:56
Mbappé skoraði þrennu í risasigri PSG Frakklandsmeistarar Paris Saint-Germain lentu ekki í neinum vandræðum er liðið heimsótti Lille í frönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Liðið vann afar öruggan 1-7 sigur þar sem Kylian Mbappé skoraði þrennu fyrir gestina. Fótbolti 21. ágúst 2022 20:48
Atalanta tók stig af Ítalíumeisturunum Ítalíumeistarar AC Milan björguðu stigi er liðið heimsótti sterkt lið Atalanta í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Lokatölur 1-1 eftir að heimamenn í Atalanta höfðu tekið forystuna í fyrri hálfleik. Fótbolti 21. ágúst 2022 20:38
Sara lagði upp tvö í Meistaradeildarsigri Juventus Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu, lagði upp tvö mörk Juventus er liðið tryggði sér sæti í umspili um laust sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu með 2-1 sigri gegn ísraelska liðinu Kiryat Gat í kvöld. Fótbolti 21. ágúst 2022 20:26
Kristall Máni kom inn af bekknum í dramatískum sigri Rosenborg Kristall Máni Ingason og félagar hans í Rosenborg unnu dramatískan 2-1 sigur er liðið tók á móti Ålesund í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. Fótbolti 21. ágúst 2022 19:55
„Þetta er langþráður sigur“ Jón Þór Hauksson, þjálfari ÍA, var gríðarlega sáttur með frammistöðuna hjá sínum mönnum eftir 2-1 sigur á ÍBV í dag. Skagamenn komust yfir í fyrri hálfleik en ÍBV tókst að jafna í þeim seinni. Það var svo Skagamaðurinn ungi, Haukur Andri Haraldsson sem tryggði ÍA sigur með marki á 88. mínútu. Fótbolti 21. ágúst 2022 19:37
Villarreal með fullt hús stiga eftir útisigur gegn Atlético Madrid Villarreal hefur nú unnið báða leiki sína í upphafi tímabils í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu eftir að liðið vann 0-2 útisigur gegn Atlético Madrid í kvöld. Fótbolti 21. ágúst 2022 19:32
Svava kom inn af bekknum er Brann tryggði sér sæti í umspili Svava Rós Guðmundsdóttir lék seinustu 25 mínútur leiksins fyrir norska liðið Brann er liðið tryggði sér sæti í umspili um laust sæti í riðlakeppi Meistaradeildar Evrópu með 3-1 sigri gegn serbneska liðinu Subotica. Fótbolti 21. ágúst 2022 18:54
Jón Dagur kom Leuven á bragðið er liðið vann öruggan sigur Jón Dagur Þorsteinsson skoraði fyrsta mark OH Leuven er liðið vann öruggan 1-3 sigur gegn St. Liege í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 21. ágúst 2022 18:26
Þrír íslenskir sigrar í norsku deildinni Fjórir leikir fóru fram í norsku úrvalsdeildinni í kanttspyrnu í dag og voru Íslendingalið í eldlínunni í þremur þeirra ög öll unnu þau sigra. Fótbolti 21. ágúst 2022 18:13
Sjö mörk er Bayern burstaði botnlið Bochum Þýskalandsmeistarar Bayern München lentu ekki í neinum vandræðum er liðið heimsótti Bochum í þýsku úrvalsdeildinni í kanttspyrnu í dag. Gestirnir unnu vægast sagt afar sannfærandi sigur, 0-7. Fótbolti 21. ágúst 2022 17:49
Sjáðu mörkin: Arnór skoraði skrautlegu tapi Norrköping Íslendingalið Norrköping tapaði 4-2 á heimavelli fyrir AIK í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Norrköping var manni fleiri lungann úr leiknum en þrjú mörk voru skoruð í uppbótartíma. Fótbolti 21. ágúst 2022 17:32
Valskonur í umspil eftir öruggan sigur Valskonur eru komnar í umspil um sæti í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu eftir öruggan 3-0 sigur gegn írska liðinu Shelbourne í Slóveníu í dag. Fótbolti 21. ágúst 2022 17:21
Umfjöllun og viðtöl: ÍA-ÍBV 2-1| Skagamenn með langþráðan sigur ÍA vann langþráðan sigur á ÍBV í dag er liðin mættust í 18. umferð Bestu deildar karla í fótbolta. ÍA sem hefur tapað sjö leikjum í röð mætti tvíeflt til leiks í dag og var það Skagamaðurinn ungi, Haukur Andri Haraldsson sem tryggði ÍA sigur á 88. mínútu. Lokatölur 2-1. Íslenski boltinn 21. ágúst 2022 16:15
Lið Stefáns hirti toppsætið af Nordsjælland Silkeborg fór á topp dönsku úrvalsdeildarinnar með 2-0 útisigri á Nordsjælland sem sat fyrir leikinn í toppsætinu. Stefán Teitur Þórðarson spilaði síðustu þrjár mínútur leiksins. Fótbolti 21. ágúst 2022 14:01
Leiðinlegasta lið Bretlandseyja? Stuðningsmenn Preston North End fá ekki mikið fyrir aðgangseyri sinn þessa dagana. Félagið setti í gær met yfir skort á mörkum. Fótbolti 21. ágúst 2022 13:30
Helena Ósk í stuði er Blikakonur unnu þær tékknesku | Fer Valur í umspil? Helena Ósk Hálfdánardóttir skoraði öll þrjú mörk Breiðabliks sem vann 3-0 sigur á Slovacko frá Tékklandi í Þrándheimi í Noregi í morgun. Um er að ræða síðari leik Kópavogsliðsins í Meistaradeild Evrópu þetta árið. Tap fyrir Rosenborg í miðri viku gerði út um vonir Kópavogskvenna um áframhald í keppninni. Fótbolti 21. ágúst 2022 10:56
Pogba hugsi meira um hárið en fótboltann: „Hann er óþekkjanlegur“ Ítalska goðsögnin Fabio Cannavaro, sem lék með Juventus frá 2004 til 2006, er óviss um hvað Frakkinn Paul Pogba mun veita liðinu. Pogba sneri aftur til Juventus frá Manchester United í sumar. Fótbolti 21. ágúst 2022 09:30
Guðlaugur Victor bar fyrirliðabandið í stórtapi Guðlaugur Victor Pálsson var fyrirliði D.C. United sem tapaði 6-0 á heimavelli fyrir Philadelphia Union í bandarísku MLS-deildinni í nótt. Wayne Rooney stillti honum upp sem miðverði í leiknum. Fótbolti 21. ágúst 2022 09:00
Barcelona þarf að selja leikmenn til að mega skrá Kounde Xavi, knattspyrnustjóri Barcelona, segir að félagið þurfi að selja leikmenn til að geta skráð nýjasta leikmann liðsins, Jules Kounde. Fótbolti 20. ágúst 2022 22:45
Madrídingar unnu stórsigur á útivelli Spánarmeistarar Real Madrid unnu sannfærandi 1-4 sigur er liðið heimsótti Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Fótbolti 20. ágúst 2022 22:00
Uppgjör, viðtöl og myndir: HK - Breiðablik 0-2 | Blikar lönduðu þremur stigum í Kórnum Íslenski boltinn