Guðmundur Þórarinsson til Krítar Landsliðsmaðurinn Guðmundur Þórarinsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við OFI Crete á Krít í Grikklandi. Fótbolti 10. ágúst 2022 10:46
Stofnaði fatalínu fyrir golfara landsins: „Sniðugt að líta út eins og maður geti eitthvað í klúbbhúsinu“ Nafnið Styrmir Erlendsson kveikir ef til vill ekki á mörgum bjöllum nema fólk sé úr Árbænum eða hafi fylgst gríðarlega vel með neðri deildum íslenskrar knattspyrnu undanfarin ár. Styrmir er þó að skapa sér nafn í öðrum geira þessa dagana en hann er á bakvið íslenska golfmerkið Brutta Golf. Golf 10. ágúst 2022 10:00
Sjáðu mörkin hans Alberts Guðmunds og vítið sem hann fékk ekki að taka Íslenski landsliðsframherjinn Albert Guðmundsson skoraði tvívegis þegar Genoa komst áfram í ítalska bikarnum í vikunni. Fótbolti 10. ágúst 2022 09:01
Keypti bolta og búnað fyrir liðið en segir að félagið hafi svikið samninginn Arnar Hallsson, fyrrverandi þjálfari ÍR, segist hafa hætt þjálfun liðsins sökum þess að félagið hafi ekki staðið við sinn enda samningsins við hann á sínum tíma. Arnar hafi keypt bolta og búnað fyrir ÍR, en að félagið hafi ekki lagt sitt af mörkum til að afla fjár og koma til móts við hans kröfur. Fótbolti 10. ágúst 2022 07:00
Lech Poznan gefur árskortshöfum frítt á leikinn gegn Víkingum ÞPólsku meistararnir í Lech Poznan gera sér greinilega algjörlega grein fyrir því að liðið þarf á stuðningi að halda er Víkingur mætir í heimsókn í seinni leik liðanna í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu á fimmtudaginn. Eigendur árskorta á heimaleiki liðsins munu fá frítt á leikinn. Fótbolti 9. ágúst 2022 23:30
Umfjöllun og viðtöl: Stjarnan - Breiðablik 2-2| Aníta Ýr tryggði Stjörnunni stig Eftir markalausan fyrri hálfleik kom Gyða Kristín Stjörnunni yfir. Gestirnir frá Kópavogi svöruðu með tveimur mörkum og benti allt til þess að Breiðablik myndi vinna leikinn þar til Aníta Ýr Þorvaldsdóttir jafnaði leikinn á 89. mínútu. Fótbolti 9. ágúst 2022 23:00
Elín Metta: Vorkenni Pétri að þurfa að velja liðið Landsliðsframherjinn Elín Metta Jensen minnti heldur betur á sig þegar hún skoraði þriðja mark Vals í 0-5 sigri í Keflavík. Markið skoraði Elin eftir að hafa verið inn á leikvellinum í rétt rúma mínútu. Fótbolti 9. ágúst 2022 22:30
Diljá lánuð til Norrköping: „Vonast til að geta skorað nokkur mörk“ Knattspyrnukonan Diljá Ýr Zomers hefur verið lánuð frá sænska úrvalsdeildarfélaginu BK Häcken til Norrköping í sænsku B-deildinni. Fótbolti 9. ágúst 2022 21:30
Þriðja liðið sem við smíðum í sumar „Ég er hrikalega stoltur af liðinu, það er ekki létt að koma til Akureyrar en þetta fór vel í dag,“ sagði Alexander Aron Davorsson þjálfari Aftureldingar eftir gríðarlega mikilvægan sigur, 0-1 á móti Þór/KA. Sport 9. ágúst 2022 20:19
Elías og félagar fara í riðlakeppni Evrópudeildarinnar Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í danska liðini Midtjylland eru úr leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir 1-3 tap gegn Benfica í kvöld. Evrópuævintýri liðsins er þó ekki lokið þar sem tapið þýðir að Midtjylland fer beint í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Fótbolti 9. ágúst 2022 19:38
Markalaust hjá Íslendingaliðunum í sænsku B-deildinni Íslendingaliðin Öster og Trelleborg voru í eldlínunni í sænsku B-deildinni í knattspyrnu í kvöld. Alex Þór Hauksson og félagar hans í Öster gerðu markalaust jafntefli gegn Skövde og á sama tíma gerðu Böðvar Böðvarsson og félagar hans markalaust jafntefli gegn Utsikten. Fótbolti 9. ágúst 2022 18:56
Alfons og félagar skrefi nær riðlakeppni Meistaradeildarinnar Alfons Sampsted og félagar hans í norska meistaraliðinu Bodö/Glimt eru komnir í fjórðu og seinustu umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu eftir að liðið gerði 1-1 jafntefli gegn litháíska liðinu Zalgiris í dag. Fótbolti 9. ágúst 2022 17:52
Stóru málin: Er Fram öruggt? Er KA í titilbaráttu? Má tala um að markametið falli í lengri deild? Eins og svo oft áður voru „Stóru málin“ tekin fyrir í Stúkunni: Er Fram búið að bjarga sér, er KA í titilbaráttu og hver er uppáhaldsleikmaður sérfræðinganna í Bestu deild karla í fótbolta. Þetta og meira til var til umræðu í Stúkunni eftir síðustu umferð Bestu deildarinnar. Íslenski boltinn 9. ágúst 2022 16:01
Arnór snýr aftur og hálft byrjunarlið af Íslendingum í hópnum Landsliðsmaðurinn Arnór Ingvi Traustason er búinn að skrifa undir samning við sænska knattspyrnufélagið Norrköping. Hann snýr þangað aftur eftir að hafa spilað með New England Revolution í Bandaríkjunum síðustu misseri. Fótbolti 9. ágúst 2022 15:22
Rúnar Alex ekki til FCK þar sem fyrrum liðsfélagi hans mun nú verja mark liðsins Danska meistaraliðið FC Kaupmannahöfn varð fyrir áfalli nýverið er markvörður liðsins meiddist illa og því hóf liðið leit að nýjum markverði. Var Rúnar Alex Rúnarsson, landsliðsmarkvörður Íslands og leikmaður Arsenal á Englandi, nefndur til sögunnar. Fótbolti 9. ágúst 2022 14:01
Man United hætt við að fá Arnautović eftir áhyggjur stuðningsfólks Í gær fóru þær fréttir á kreik að Manchester United vildi fá Marko Arnautović í sínar raðir. Það virðist sem sá áhugi hafi kólnað hratt þökk sé áhyggjum stuðningsfólks Man United sem og verðmiða leikmannsins. Enski boltinn 9. ágúst 2022 13:02
Bröndby fær hjálp lögreglu eftir lætin og skemmdarverkin á Parken Nágrannaliðin og erkifjendurnir FC Kaupmannahöfn og Bröndby mættust í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina. Líkt og svo oft áður sauð upp úr er Íslendinglið FCK tók á móti sínum fornu fjendum í Bröndby og vann öruggan 4-1 sigur. Fótbolti 9. ágúst 2022 12:31
Sænskt C-deildarlið telur að það hafi sett nýtt heimsmet Sænska knattspyrnufélagið Torns IF, spilar í sænsku C-deildinni en heldur því engu að síður fram að það hafi sett heimsmet. Félagið er þó ekki búið að hafa samband við Guinness Book of Records. Fótbolti 9. ágúst 2022 11:00
Trinity Rodman spurði hvort hún ætti að fá sér klippingu eins og pabbi sinn Bandaríska knattspyrnukonan Trinity Rodman hefur fyrir löngu skapar sér sitt eigið nafn í fótboltaheiminum með frábærri frammistöðu með Washington Spirit og með því að vera komin í bandaríska landsliðið fyrir tvítugt. Fótbolti 9. ágúst 2022 10:31
Barcelona reyndi að hræða De Jong til að losna við hann Frenkie de Jong vill vera áfram hjá Barcelona en Katalóníumennirnir vilja endilega losna við að borga risasamning hans. Nýjustu fréttir af þessari sápuóperu í Barcelona er að forráðamenn Barcelona hafi reynt að hræða De Jong í sumar um að samningur hans væri ólöglegur. Fótbolti 9. ágúst 2022 08:01
Thiago Alcantara frá í rúman mánuð Thiago Alcantara tognaði aftan í læri í jafntefli Liverpool gegn Fulham í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar í fótbolta karla um síðustu helgi. Fótbolti 9. ágúst 2022 07:01
Barcelona hefur ekki náð að nurla saman nægum pening Forráðamenn Barcelona hafa ekki náð að lappa nógu mikið upp á bókhald sitt til þess að geta skráð þá leikmenn sem félagið hefur keypt í sumar í leikmannahóp sinn fyrir komandi keppnistímabil. Fótbolti 8. ágúst 2022 23:22
Arnór Smárason: Þetta var í fyrsta skipti sem ég spila á þessum velli í meistaraflokki Skagamaðurinn Arnór Smárason skoraði sigurmark Vals á Akranesi í kvöld í sínum fyrsta leik á ferlinum á Akranesvelli. Hann var ánægður með leikinn. Sport 8. ágúst 2022 23:11
Arnautovic er ekki til sölu Marco Di Vaio, yfirmaður fótboltamála hjá ítalska félaginu Bologna, segir framherjann Marko Arnautovic ekki vera til sölu en fregnir bárust af því um síðustu helgi að Manchester United hefði boðið í austurríska landsliðsmanninn. Fótbolti 8. ágúst 2022 23:03
Umfjöllun og viðtöl: ÍA-Valur 1-2 | Valsmenn taplausir undir stjórn Óla Jó Valur fer vel af stað undir stjórn Ólafs Davíðs Jóhannessonar en liðið bar sigurorð af Skagamönnum, 2-1, á Norðurálsvellinum á Akranesi í kvöld. Íslenski boltinn 8. ágúst 2022 22:54
Fylkir nældi í stig gegn toppliðinu Fylkir og FH skildu jöfn, 1-1, þegar liðin áttust við í 13. umferð Lengjudeildar kvenna í fótbolta á Würth-vellinum í Árbænum í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2022 22:43
Lampard stoppar í götin í varnarlínu sinni Enski varnarmaðurinn Conor Coady er genginn til liðs við Everton á lánssamningi frá Wolves en lánið gildir út yfirstanandi keppnistímabil. Fótbolti 8. ágúst 2022 22:27
„Við erum öflugir í lok leikja“ „Mér líður rosa vel. Þetta eru bestu sigrarnir, að vinna með einu marki í restina. Ég held að þetta sé níunda markið sem við skorum í sumar á síðasta korterinu þannig við erum öflugir í lok leikja,“ sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari Keflvíkinga, sáttur eftir 2-1 sigur á Leikni í kvöld. Fótbolti 8. ágúst 2022 22:06
Ólafur Jóhannesson: Þá líður mönnum betur og þá brosa allir eins og ég geri núna Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, var glaður í bragði eftir 2-1 sigur sinna manna á Akranesi í kvöld. Annar sigurleikur Vals sem unnu FH í síðustu umferð. Sport 8. ágúst 2022 22:02
Umfjöllun og viðtöl: Leiknir-Keflavík 1-2 | Frans tryggði Keflavík sigur á síðustu stundu Keflavík sótti þrjú stig þegar liðið mætti Leikni Reykjavík í 16. umferð Bestu deildar karla í fótbolta á Domusnova-vellinum í Breiðholti í kvöld. Sigurmark Keflavíkur kom eftir klaufagang í vörn Leiknis í uppbótartíma leiksins. Íslenski boltinn 8. ágúst 2022 21:17