Fréttir „Ég er fréttamaður en ekki einhver spákelling“ Landsmenn minnast íþróttafréttamannsins og knattspyrnukappans fyrrverandi Bjarna Felixsonar með mikilli hlýju. Bjarni var fastagestur á skjám og í útvarpi landsmanna um árabil. Hann tók hlutverk sitt alvarlega þótt alltaf hafi verið stutt í húmorinn. Liverpool birti mynd af Bjarna Fel í gær á tímamótadegi í sögu félagsins. Innlent 15.9.2023 11:15 Sá sem varað var við hlaut þungan dóm fyrir brot gegn barni Miðlæg rannsóknardeild lögreglu hefur til rannsóknar mál karlmanns sem skólastjórnendur í Kársnesskóla vöruðu við á þriðjudaginn. Samkvæmt heimildum fréttastofu er til skoðunar hvort maðurinn hafi gerst sekur um blygðunarsemisbrot í vesturhluta Kópavogs með því að fróa sér í bíl í bænum. Innlent 15.9.2023 11:00 Guðni og Eliza fagna fimmtíu árum með Karli Gústaf Karl XVI. Gústaf Svíakonungur fagnar í dag hálfrar aldar krýningarafmæli og eru forsetahjón Íslands ásamt öðrum norrænum þjóðhöfðingjum í Svíþjóð í tilefni af því. Erlent 15.9.2023 10:57 Háskóli Íslands fær háa sekt vegna eftirlitsmyndavéla Persónuvernd hefur sektað Háskóla Íslands um eina og hálfa milljón króna eftir að kvartað var yfir rafrænni vöktun af hálfu skólans. Innlent 15.9.2023 10:04 Segir eiginmanninn ekki hafa komið hreint fram vegna hlutabréfaviðskipta Erna Solberg, leiðtogi norska Hægriflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, segir að eiginmaður sinn, Sindre Finnes, hafi ekki komið hreint fram við sig eða aðra vegna hlutabréfaviðskipta hans í forsætisráðherratíð hennar. Erlent 15.9.2023 09:08 Bein útsending: Fyrri dagur Fundar fólksins Fundur fólksins hefst í Vatnsmýrinni klukkan 9:30 þegar að meðal annars Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Steiney Skúladóttir leikkona flytja svokallaða lýðræðisgusu eða setningarræðu. Innlent 15.9.2023 09:02 Hræðist framtíðina og hefur beðið um frið Móðir ellefu ára drengs með ólæknandi taugahrörnunarsjúkdóm og krabbamein segir það hafa gert honum erfiðara fyrir hvað hann sé klár. Hann geti því reiknað út hvað bíði hans. Það sé hræðilegt að horfa upp á drenginn sinn, sem þrái að verða betri í fótbolta, verða sífellt lélegri sama hvað hann æfi sig. Vinir og vandamenn standa fyrir tónleikum til styrktar Mikael í kvöld. Innlent 15.9.2023 09:02 Þingmanni sparkað úr leikhúsi: „Veistu ekki hver ég er?“ Lauren Boebert, fulltrúadeildarþingmanni í Bandaríkjunum, var sparkað úr leikhúsi í Denver í gærkvöldi fyrir að hafa reykt rafsígarettu, verið í símanum og með háreysti. Erlent 15.9.2023 08:36 Telja sig hafa komist að því hvers vegna heilafrumurnar deyja Vísindamenn í Bretlandi og Belgíu telja sig hafa komist að því af hverju heilafrumur deyja í Alzheimersjúklingum. Dauði heilafrumanna hefur verið ráðgáta í marga áratugi en vonir eru bundnar við að uppgötvunin greiði fyrir þróun nýrra lyfja við sjúkdómnum. Erlent 15.9.2023 08:30 Kirkjugarðurinn að fyllast og verið að undirbúa næstu skref Bæjaryfirvöld í Fjallabyggð skoða nú hvar best sé að koma fyrir nýjum kirkjugarði í Ólafsfirði þar sem sá gamli er við það að fyllast. Stækkunarmöguleikar eru ekki fyrir hendi þar sem garðurinn er staðsettur í miðjum bænum. Innlent 15.9.2023 08:01 Segir frávik eiga sér eðlilegar skýringar Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir að frávik við veiðar á langreyði, sem olli því að Matvælastofnun stöðvaði tímabundið veiðar Hvals 8, hafi orðið vegna bilunar á spili. Innlent 15.9.2023 07:42 Hunter Biden ákærður Alríkissaksóknarar hafa gefið út ákæru á hendur Hunter Biden, syni Joe Biden Bandaríkjaforseta, þar sem hann er sagður hafa komist ólöglega yfir skotvopn í október árið 2018, eftir að hafa logið til um að neyta ekki né vera háður fíkniefnum. Erlent 15.9.2023 07:10 Enn einn yfirmaður lögreglu sendur í leyfi Margeir Sveinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er kominn í leyfi frá störfum. Þetta staðfestir embættið í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu. Hann er þriðji stjórnandi embættisins sem sendur er í leyfi á innan við ári. Innlent 15.9.2023 07:01 Munu mögulega sæta aðgerðum af hálfu erlendra ríkja Utanríkisráðuneytið segir ekki útilokað að erlend ríki muni grípa til aðgerða gegn tveimur Íslendingum sem tóku þátt í „kosningaeftirliti“ í Kherson á dögunum, einu þeirra svæða sem Rússar hafa hernumið í Úkraínu. Innlent 15.9.2023 06:48 Leitin að sökudólgum hafin í Líbíu Fimm dögum eftir að flóð léku íbúa norðausturhluta Líbíu grátt eru lík enn að finnast á víð og dreif. Leitin að sökudólgum er hafin og Sameinuðu þjóðirnar segja að hægt hefði verið að koma í veg fyrir hamfarirnar. Erlent 14.9.2023 23:54 Djúpadalsbóndi segir Teigsskóg snjóakistu Bóndinn sem býr næst Teigsskógi varar við miklum snjóþyngslum þar og mælist til að Hjallahálsi verði haldið sem vetrarvegi. Í Vesturbyggð óttast menn að þurfa að aka um Ódrjúgsháls í nokkur ár enn og krefst bæjarstjórinn þess að framkvæmdum verði ekki seinkað. Innlent 14.9.2023 22:45 Borgar ekki fjölskyldunum sem hann hrellti en spreðar peningum Alex Jones, samsæringur, hefur ekki greitt fjölskyldum barna sem myrt voru í Sandy Hook árásinni árið 2012 krónu. Hann spreðar þó peningum sínum og eyddi til að mynda 93 þúsund dölum í júlí en það samsvarar um 12,8 milljónum króna. Jones var í fyrra dæmdur til að greiða fjölskyldunum tæplega einn og hálfan milljarð dala í skaðabætur. Erlent 14.9.2023 22:28 „Ég sat bara og grét yfir þessu í gærkvöldi“ Hjónin Birta Árdal Bergsteinsdóttir og Othman Karoune hafa síðustu daga staðið fyrir styrktarsöfnun vegna jarðskjálftans í Marokkó fyrir tæpri viku. Svo vel hefur gengið að Othman fór í fyrradag með hjálpargögn í þorp upp í fjöllum. Söfnunin er enn opin. Innlent 14.9.2023 21:59 Hvalur 8 getur haldið til veiða aftur eftir innleiðingu úrbóta Hvalur 8 fær ekki að halda aftur út til veiða nema úrbætur verði innleiddar sem tryggi að ekki líði langt á milli skota, þurfi að skjóta oftar en einu sinni. Veiðar skipsins voru stöðvaðar tímabundið í dag. Innlent 14.9.2023 21:59 „Ég held að þetta sé verst fyrir krakka“ Notkun einnota rafretta hefur aukist verulega síðustu ár og sífellt fleiri skilja þær eftir í náttúrunni eftir notkun. Einn helsti plokkari landsins segir retturnar hafa áhrif á umhverfið sem og þá sem finna þær á víðavangi. Innlent 14.9.2023 21:00 Óttast að allt logi í verkföllum eftir áramót Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, óttast að verkföll verði tíð á næsta ári og að stjórnvöld þurfi að koma að gerð kjarasamninga. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins, segir að semja þurfi af skynsemi. Innlent 14.9.2023 20:43 Hauskúpan var mögulega notuð sem öskubakki Hauskúpan sem fannst í Ráðherrabústaðnum í sumar er líklegast af smávaxinni konu og var mögulega notuð sem öskubakki. Innlent 14.9.2023 20:01 Hvalur 8 og Hvalur 9 báðir á landleið með nýveidda hvali Báðir hvalbátarnir eru núna á leið til hafnar í Hvalfirði með nýveidda hvali, sem skotnir voru í dag. Hvalur 8 er væntanlegur að bryggju í hvalstöðinni í nótt með eina langreyði. Hvalur 9 er svo væntanlegur þangað í fyrramálið með tvær langreyðar. Eftir því sem fréttastofa kemst næst veiddi áhöfn Hvals 8 sinn hval fyrir hádegi. Innlent 14.9.2023 18:49 Blöskrar umfjöllun um pistil Páls í Morgunblaðinu: „Svona gera menn ekki“ Rektor Listaháskólans hefur beðið Morgunblaðið að birta ekki viðtal við sig sem átti að birta undir merki Dagmála eftir helgi. Blaðið birti í Staksteinum sínum í dag umfjöllun um pistil bloggarans Páls Vilhjálmssonar. Pistilinn kallar formaður Viðreisnar falsfréttir. Innlent 14.9.2023 18:39 Þingmenn fjögurra flokka vilja banna hvalveiðar Þingmenn stjórnarandstöðu vilja banna hvalveiðar og hafa lagt fram frumvarp þess efnis. Lagt er til að hvalir verði færðir undir verndarvæng villidýralaga í frumvarpinu. Innlent 14.9.2023 18:35 Bjarni Fel er látinn Bjarni Felixson, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta og íþróttafréttamaður, er látinn. Bjarni, sem var þekktur sem Rauða ljónið, var 86 ára gamall og lést í Danmörku, þar sem hann var að sækja jarðarför vinar síns. Innlent 14.9.2023 18:24 Kvöldfréttir Stöðvar 2 Matvælastofnun hefur stöðvað tímabundið veiðar á hvalveiðiskipinu Hvalur 8 vegna alvarlegra brota á velferð dýra. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við forstjóra MAST um málið í beinni. Innlent 14.9.2023 18:00 Námsefni tekið úr samhengi og stillt upp á villandi hátt Mikil umræða hefur átt sér stað undanfarið varðandi hinsegin- og kynfræðslu í grunnskólum. Borið hefur á því að villandi og oft röngum upplýsingum sé dreift um samfélagsmiðla, námsefni tekið úr samhengi og því stillt upp á vafasaman hátt. Innlent 14.9.2023 16:56 Fagnar innilega en spyr hvers vegna Hvalur 9 var ekki stöðvaður Valgerður Árnadóttir, talsmaður Hvalavina, fagnar því að Matvælastofnun hafi tekið ákvörðun um að stöðva tímabundið veiðar Hvals 8. Hún segist vona að þetta verði til þess að hinn hvalveiðibáturinn, Hvalur 9 verði einnig stöðvaður. Ákvörðunin hafi alls ekki verið fyrirséð. Innlent 14.9.2023 16:47 Viðburðalítið viðvaranasumar Sumarið sem líður hefur verið fremur viðburðalítið hvað varðar veðurviðvaranir, en einungis sjö gular viðvaranir hafa verið gefnar út þetta sumarið og þær voru allar vegna vinds. Síðustu fimm sumur hafa 36 viðvaranir verið gefnar út að jafnaði. Veður 14.9.2023 15:49 « ‹ 331 332 333 334 ›
„Ég er fréttamaður en ekki einhver spákelling“ Landsmenn minnast íþróttafréttamannsins og knattspyrnukappans fyrrverandi Bjarna Felixsonar með mikilli hlýju. Bjarni var fastagestur á skjám og í útvarpi landsmanna um árabil. Hann tók hlutverk sitt alvarlega þótt alltaf hafi verið stutt í húmorinn. Liverpool birti mynd af Bjarna Fel í gær á tímamótadegi í sögu félagsins. Innlent 15.9.2023 11:15
Sá sem varað var við hlaut þungan dóm fyrir brot gegn barni Miðlæg rannsóknardeild lögreglu hefur til rannsóknar mál karlmanns sem skólastjórnendur í Kársnesskóla vöruðu við á þriðjudaginn. Samkvæmt heimildum fréttastofu er til skoðunar hvort maðurinn hafi gerst sekur um blygðunarsemisbrot í vesturhluta Kópavogs með því að fróa sér í bíl í bænum. Innlent 15.9.2023 11:00
Guðni og Eliza fagna fimmtíu árum með Karli Gústaf Karl XVI. Gústaf Svíakonungur fagnar í dag hálfrar aldar krýningarafmæli og eru forsetahjón Íslands ásamt öðrum norrænum þjóðhöfðingjum í Svíþjóð í tilefni af því. Erlent 15.9.2023 10:57
Háskóli Íslands fær háa sekt vegna eftirlitsmyndavéla Persónuvernd hefur sektað Háskóla Íslands um eina og hálfa milljón króna eftir að kvartað var yfir rafrænni vöktun af hálfu skólans. Innlent 15.9.2023 10:04
Segir eiginmanninn ekki hafa komið hreint fram vegna hlutabréfaviðskipta Erna Solberg, leiðtogi norska Hægriflokksins og fyrrverandi forsætisráðherra, segir að eiginmaður sinn, Sindre Finnes, hafi ekki komið hreint fram við sig eða aðra vegna hlutabréfaviðskipta hans í forsætisráðherratíð hennar. Erlent 15.9.2023 09:08
Bein útsending: Fyrri dagur Fundar fólksins Fundur fólksins hefst í Vatnsmýrinni klukkan 9:30 þegar að meðal annars Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Steiney Skúladóttir leikkona flytja svokallaða lýðræðisgusu eða setningarræðu. Innlent 15.9.2023 09:02
Hræðist framtíðina og hefur beðið um frið Móðir ellefu ára drengs með ólæknandi taugahrörnunarsjúkdóm og krabbamein segir það hafa gert honum erfiðara fyrir hvað hann sé klár. Hann geti því reiknað út hvað bíði hans. Það sé hræðilegt að horfa upp á drenginn sinn, sem þrái að verða betri í fótbolta, verða sífellt lélegri sama hvað hann æfi sig. Vinir og vandamenn standa fyrir tónleikum til styrktar Mikael í kvöld. Innlent 15.9.2023 09:02
Þingmanni sparkað úr leikhúsi: „Veistu ekki hver ég er?“ Lauren Boebert, fulltrúadeildarþingmanni í Bandaríkjunum, var sparkað úr leikhúsi í Denver í gærkvöldi fyrir að hafa reykt rafsígarettu, verið í símanum og með háreysti. Erlent 15.9.2023 08:36
Telja sig hafa komist að því hvers vegna heilafrumurnar deyja Vísindamenn í Bretlandi og Belgíu telja sig hafa komist að því af hverju heilafrumur deyja í Alzheimersjúklingum. Dauði heilafrumanna hefur verið ráðgáta í marga áratugi en vonir eru bundnar við að uppgötvunin greiði fyrir þróun nýrra lyfja við sjúkdómnum. Erlent 15.9.2023 08:30
Kirkjugarðurinn að fyllast og verið að undirbúa næstu skref Bæjaryfirvöld í Fjallabyggð skoða nú hvar best sé að koma fyrir nýjum kirkjugarði í Ólafsfirði þar sem sá gamli er við það að fyllast. Stækkunarmöguleikar eru ekki fyrir hendi þar sem garðurinn er staðsettur í miðjum bænum. Innlent 15.9.2023 08:01
Segir frávik eiga sér eðlilegar skýringar Kristján Loftsson, forstjóri Hvals hf., segir að frávik við veiðar á langreyði, sem olli því að Matvælastofnun stöðvaði tímabundið veiðar Hvals 8, hafi orðið vegna bilunar á spili. Innlent 15.9.2023 07:42
Hunter Biden ákærður Alríkissaksóknarar hafa gefið út ákæru á hendur Hunter Biden, syni Joe Biden Bandaríkjaforseta, þar sem hann er sagður hafa komist ólöglega yfir skotvopn í október árið 2018, eftir að hafa logið til um að neyta ekki né vera háður fíkniefnum. Erlent 15.9.2023 07:10
Enn einn yfirmaður lögreglu sendur í leyfi Margeir Sveinsson, yfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, er kominn í leyfi frá störfum. Þetta staðfestir embættið í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu. Hann er þriðji stjórnandi embættisins sem sendur er í leyfi á innan við ári. Innlent 15.9.2023 07:01
Munu mögulega sæta aðgerðum af hálfu erlendra ríkja Utanríkisráðuneytið segir ekki útilokað að erlend ríki muni grípa til aðgerða gegn tveimur Íslendingum sem tóku þátt í „kosningaeftirliti“ í Kherson á dögunum, einu þeirra svæða sem Rússar hafa hernumið í Úkraínu. Innlent 15.9.2023 06:48
Leitin að sökudólgum hafin í Líbíu Fimm dögum eftir að flóð léku íbúa norðausturhluta Líbíu grátt eru lík enn að finnast á víð og dreif. Leitin að sökudólgum er hafin og Sameinuðu þjóðirnar segja að hægt hefði verið að koma í veg fyrir hamfarirnar. Erlent 14.9.2023 23:54
Djúpadalsbóndi segir Teigsskóg snjóakistu Bóndinn sem býr næst Teigsskógi varar við miklum snjóþyngslum þar og mælist til að Hjallahálsi verði haldið sem vetrarvegi. Í Vesturbyggð óttast menn að þurfa að aka um Ódrjúgsháls í nokkur ár enn og krefst bæjarstjórinn þess að framkvæmdum verði ekki seinkað. Innlent 14.9.2023 22:45
Borgar ekki fjölskyldunum sem hann hrellti en spreðar peningum Alex Jones, samsæringur, hefur ekki greitt fjölskyldum barna sem myrt voru í Sandy Hook árásinni árið 2012 krónu. Hann spreðar þó peningum sínum og eyddi til að mynda 93 þúsund dölum í júlí en það samsvarar um 12,8 milljónum króna. Jones var í fyrra dæmdur til að greiða fjölskyldunum tæplega einn og hálfan milljarð dala í skaðabætur. Erlent 14.9.2023 22:28
„Ég sat bara og grét yfir þessu í gærkvöldi“ Hjónin Birta Árdal Bergsteinsdóttir og Othman Karoune hafa síðustu daga staðið fyrir styrktarsöfnun vegna jarðskjálftans í Marokkó fyrir tæpri viku. Svo vel hefur gengið að Othman fór í fyrradag með hjálpargögn í þorp upp í fjöllum. Söfnunin er enn opin. Innlent 14.9.2023 21:59
Hvalur 8 getur haldið til veiða aftur eftir innleiðingu úrbóta Hvalur 8 fær ekki að halda aftur út til veiða nema úrbætur verði innleiddar sem tryggi að ekki líði langt á milli skota, þurfi að skjóta oftar en einu sinni. Veiðar skipsins voru stöðvaðar tímabundið í dag. Innlent 14.9.2023 21:59
„Ég held að þetta sé verst fyrir krakka“ Notkun einnota rafretta hefur aukist verulega síðustu ár og sífellt fleiri skilja þær eftir í náttúrunni eftir notkun. Einn helsti plokkari landsins segir retturnar hafa áhrif á umhverfið sem og þá sem finna þær á víðavangi. Innlent 14.9.2023 21:00
Óttast að allt logi í verkföllum eftir áramót Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, óttast að verkföll verði tíð á næsta ári og að stjórnvöld þurfi að koma að gerð kjarasamninga. Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífisins, segir að semja þurfi af skynsemi. Innlent 14.9.2023 20:43
Hauskúpan var mögulega notuð sem öskubakki Hauskúpan sem fannst í Ráðherrabústaðnum í sumar er líklegast af smávaxinni konu og var mögulega notuð sem öskubakki. Innlent 14.9.2023 20:01
Hvalur 8 og Hvalur 9 báðir á landleið með nýveidda hvali Báðir hvalbátarnir eru núna á leið til hafnar í Hvalfirði með nýveidda hvali, sem skotnir voru í dag. Hvalur 8 er væntanlegur að bryggju í hvalstöðinni í nótt með eina langreyði. Hvalur 9 er svo væntanlegur þangað í fyrramálið með tvær langreyðar. Eftir því sem fréttastofa kemst næst veiddi áhöfn Hvals 8 sinn hval fyrir hádegi. Innlent 14.9.2023 18:49
Blöskrar umfjöllun um pistil Páls í Morgunblaðinu: „Svona gera menn ekki“ Rektor Listaháskólans hefur beðið Morgunblaðið að birta ekki viðtal við sig sem átti að birta undir merki Dagmála eftir helgi. Blaðið birti í Staksteinum sínum í dag umfjöllun um pistil bloggarans Páls Vilhjálmssonar. Pistilinn kallar formaður Viðreisnar falsfréttir. Innlent 14.9.2023 18:39
Þingmenn fjögurra flokka vilja banna hvalveiðar Þingmenn stjórnarandstöðu vilja banna hvalveiðar og hafa lagt fram frumvarp þess efnis. Lagt er til að hvalir verði færðir undir verndarvæng villidýralaga í frumvarpinu. Innlent 14.9.2023 18:35
Bjarni Fel er látinn Bjarni Felixson, fyrrverandi landsliðsmaður í fótbolta og íþróttafréttamaður, er látinn. Bjarni, sem var þekktur sem Rauða ljónið, var 86 ára gamall og lést í Danmörku, þar sem hann var að sækja jarðarför vinar síns. Innlent 14.9.2023 18:24
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Matvælastofnun hefur stöðvað tímabundið veiðar á hvalveiðiskipinu Hvalur 8 vegna alvarlegra brota á velferð dýra. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður rætt við forstjóra MAST um málið í beinni. Innlent 14.9.2023 18:00
Námsefni tekið úr samhengi og stillt upp á villandi hátt Mikil umræða hefur átt sér stað undanfarið varðandi hinsegin- og kynfræðslu í grunnskólum. Borið hefur á því að villandi og oft röngum upplýsingum sé dreift um samfélagsmiðla, námsefni tekið úr samhengi og því stillt upp á vafasaman hátt. Innlent 14.9.2023 16:56
Fagnar innilega en spyr hvers vegna Hvalur 9 var ekki stöðvaður Valgerður Árnadóttir, talsmaður Hvalavina, fagnar því að Matvælastofnun hafi tekið ákvörðun um að stöðva tímabundið veiðar Hvals 8. Hún segist vona að þetta verði til þess að hinn hvalveiðibáturinn, Hvalur 9 verði einnig stöðvaður. Ákvörðunin hafi alls ekki verið fyrirséð. Innlent 14.9.2023 16:47
Viðburðalítið viðvaranasumar Sumarið sem líður hefur verið fremur viðburðalítið hvað varðar veðurviðvaranir, en einungis sjö gular viðvaranir hafa verið gefnar út þetta sumarið og þær voru allar vegna vinds. Síðustu fimm sumur hafa 36 viðvaranir verið gefnar út að jafnaði. Veður 14.9.2023 15:49