Innlent

Hestur losnaði í ís­lenskri flug­vél og kom öllu í upp­nám

Jón Þór Stefánsson skrifar
Vélin var á vegum íslenska flugfélgasins Air Atlanta. Myndin er úr safni.
Vélin var á vegum íslenska flugfélgasins Air Atlanta. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Flugvél Air Atlanta Icelandic þurfti að snúa við í loftinu þegar að hestur, sem verið var að flytja í lest vélarinnar losnaði og olli vandræðum.

Vélin, sem er af gerðinni Boeing 747, var á leið frá New York-borg til Belgíu og hafði verið um það bil níutíu mínútur í loftinu.

Atvikið átti sér stað síðasta fimmtudag, samkvæmt BBC sem greinir frá atvikinu, en fram kemur í grein miðilsins að óljóst sé hvernig hestinum tókst að sleppa.

„Við erum með lifandi dýr, hest, um borð í vélinni. Hestinum tókst að sleppa,“ er haft eftir flugmanni vélarinnar. „Við getum ekki tryggt öryggi hestsins.“

Þá á hann að hafa sagt að ástand vélarinnar væri í lagi, en lausagangur hestsins væri vissulega áhyggjuefni.

Hægt var að lenda vélinni aftur á JFK-flugvellinum í New York. Hesturinn var tjóðraður að nýju og síðan var fyllt á bensíntankinn og flogið aftur af stað og lenti nokkrum klukkustundum síðar í Liege í Belgíu án frekari vandræða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×