Innlent

Baltasar sleginn yfir hestamálinu

Jón Ísak Ragnarsson skrifar
Baltasar Kormákur er einn leikstjóra og framleiðanda þáttanna. Hann segir málið leiðinlegt enda hafi þjálfararnir haft allra bestu meðmæli.
Baltasar Kormákur er einn leikstjóra og framleiðanda þáttanna. Hann segir málið leiðinlegt enda hafi þjálfararnir haft allra bestu meðmæli. Vísir/Vilhelm

Baltasar Kormáki og hans teymi var verulega brugðið þegar þeim barst veður af hrottafenginni meðferð hesta sem verið var að þjálfa fyrir kvikmyndaverkefni þeirra. Hann segir þjálfarana hafa verið rekna um leið og upp komst um málið.

Fyrr í dag var greint frá því að spænskir hestaþjálfarar sem voru við störf í kvikmyndaverkefni hérlendis hefðu verið gripnir við harkalega meðferð hrossa sem vakti hörð viðbrögð hestamannasamfélagsins. Sjá hér.

Verið var að þjálfa hestana fyrir kvikmyndatökur. Kvikmyndaverkefnið sem um ræðir er þáttaröðin King and Conqueror sem verið er að framleiða fyrir BBC og CBS. Baltasar Kormákur er leikstjóri fyrsta þáttarins og einn framleiðenda þáttaraðarinnar. Hann segir að öllum sem koma að verkefninu hafi verið verulega brugðið þegar upp komst um þjálfunaraðferðirnar. „Við vorum auðvitað í miklu sjokki og við rákum þetta fólk strax. Um leið og ég fékk veður af þessu í gær var þetta fólk kallað inn og rekið. Þetta eru sjö manns,“ segir Baltasar.

Myndband af harkalegum þjálfunaraðferðum Spánverjanna, sem sjá má að ofan, fór í dreifingu á samfélagsmiðlum í gær. Baltasar segist hafa séð myndbandið í gærkvöldi um sexleytið og þjálfararnir hafi verið reknir klukkan sjö. Búið var að reka mennina þegar MAST stöðvaði starfsemina klukkan níu. 

Margrómaðir þjálfarar

Baltasar segir að þjálfararnir hafi verið með bestu meðmæli sem hægt er að fá, þeir hafi til að mynda starfað við framleiðslu Game of Thrones og Gladiator. Framleiðendurnir stóðu í þeirri trú að þeir væru að fá toppfólk í verkefnið. Þjálfararnir hafi svo margbrotið reglur bæði MAST og reglur framleiðandans. Baltasar segir svo að hann hafi sjálfur verið með hesta í 40-50 ár og svona meðferð sé eitthvað sem hann standi alls ekki fyrir. Honum þykir málið mjög leiðinlegt, enda hafi hann brugðist við um leið og fréttir af þessu bárust.


Tengdar fréttir

Hesta­mis­þyrmingar fyrir ís­lenska kvik­mynda­fram­leiðslu

Matvælastofnun hefur stöðvað tímabundið sérstaka þjálfun á hestum til þátttöku í kvikmyndaframleiðslu vegna hrottalegrar meðferðar. Alvarleg atvik sjást á myndbandi sem er í dreifingu á Facebook. Spænskir atvinnumenn með mikla reynslu af hestaþjálfun voru fengnir í verkið, en í myndbandinu sjást þeir berja hestana í hausinn og sýna mjög harkalega reiðmennsku. Búið er að reka þjálfarana og alla sem komu að málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×