Innlent

Bjart­sýn á að samningar náist

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabanka Íslands í dag.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabanka Íslands í dag. Vísir/Vilhelm

Katrín Jakobsdóttir forætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabanka Íslands sem fór fram í Hörpu í dag. Í ávarpi sínu segist hún vera bjartsýn á að hópar á almennum vinnumarkaði og starfsfólk hins opinbera muni fylgja á eftir og gera langtímakjarasamninga á borð við þá sem gerðir voru af aðilum á vinnumarkaði við Samtök atvinnulífsins í mars.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu. Þar kemur fram að Katrín hafi farið yfir stöðu efnahagsmála og verðbólu í ávarpi sínu. Þau séu meginviðfangsefni hagstjórnar hér á landi eins og víða annars staðar.

„Verðbólga hafi hjaðnað og þá muni nýgerðir langtímakjarasamningar á almennum vinnumarkaði koma til með að eiga mikilvægan þátt í að skapa forsendur fyrir minnkandi verðbólgu og lækkun vaxta á næstunni,“ kemur fram í tilkynningunni.

Katrín segist trúa því að þær aðgerðir sem ríki og sveitarfélög hafi ákveðið að ráðast í til að styðja við samningana muni skila sér í bættum lífskjörum og kaupmætti launafólks.

„Samhliða því að verðbólgan færis aftur í átt að markmiði,“ bætir hún við.

Hún fjallaði einnig um eldsumbrotin á Reykjanesskaga og þær margvíslegu efnahagslegu aðgerðir sem ráðist hefur verið í til að styðja við íbúa Grindavíkur. Um sé að ræða fordæmalitla stöðu og ýmis viðfangsefni fram undan sem greiða þurfi úr.

„Forsætisráðherra kom einnig inn á mikilvægi þess að koma á fót innlendu greiðslumiðlunarkerfi. Slíkt skapi bæði ávinning fyrir neytendur og tryggi öryggi og viðnámsþrótt kerfisins en forsætisráðherra mælti fyrir frumvarpi þess efnis á Alþingi í febrúar sl.“ segir í tilkynningunni.

„Þá vék hún máli sínu að mikilvægi þess að erlendar fjárfestingar í mikilvægum innviðum og annarri samfélagslega mikilvægri starfsemi hér á landi séu í samræmi við þjóðaröryggi. Frumvarp þess efnis var lagt fyrir Alþingi fyrr á árinu sem forsætisráðherra mælti fyrir í mars.“

Lesa má ávarpið í heild sinni á síðu Stjórnarráðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×