Viðskipti innlent

Reynslunni ríkari og opnar Wil­son‘s Pizza á ný

Atli Ísleifsson skrifar
Vilhelm Einarsson er stofnandi Wilson‘s Pizza.
Vilhelm Einarsson er stofnandi Wilson‘s Pizza. Aðsend

Wilson‘s Pizza mun opna aftur á Íslandi á morgun eftir níu ára fjarveru á markaði. Staðurinn verður staðsettur í Minigarðinum í Skútuvogi í Reykjavík.

Greint er frá tíðindunum í tilkynningu þar sem fram kemur að Wilson's Pizza hafi fyrst opnað í Gnoðarvogi í Reykjavík þann 13. maí 2005. 

Stofnandinn hafi verið tvítugur bakarasonur frá Akureyri, Vilhelm Einarsson. „Nafnið Wilsons´s Pizza var engin tilviljun, enda var hann Vilhelm alltaf kallaður Wilson og er það enn. Stöðunum fjölgaði ört og árið 2013 voru fimm Wilson’s Pizza staðir á höfuðborgarsvæðinu. Eitt af aðalsmerkjum Wilson’s Pizza var lágt verð og litla akureyrska Pepperoníið sem umheimurinn þekkir sem Chicago Pepperoni. Brauðstangir Wilson’s Pizza eru án efa einnig eitt af aðalsmerkjum vörumerkisins og ekki má gleyma Wilson’s sósunni,“ segir í tilkynningunni.

Haft eftir Vilhelm að hann hafi ekki verið viss um að það væri góð hugmynd að fara aftur í að opna Wilson´s Pizza. „En meðeigendur mínir í Minigarðinum voru alveg sannfærðir um að það væri tækifæri í að endurvekja Wilson‘s“, segir Vilhelm.

„Það eru blendnar tilfinningar sem tengjast þessum tíma. Ég var ungur þegar ég stofnaði Wilson‘s, ekki nema 20 ára og fór alveg framúr mér í fjölgun staða sem varð staðnum að falli á sínum tíma. Um leið og ég elska þennan tíma, þá var þetta mjög erfiður tími að þurfa að loka stöðunum sem ég hafði gefið allt mitt og allan minn tíma“, bætir Vilhelm við en er þó mjög spenntur fyrir opnuninni og viðtökum fólks.

„Í dag eru allt aðrar aðstæður í mínu lífi, ég er reynslunni ríkari og veit mun betur hvað ég er að fara útí. Ég hef fengið virkilega skemmtileg viðbrögð hjá þeim sem hafa heyrt af þessum áformum og ekki laust við að það sé smá fiðringur í maganum.“ segir Vilhelm.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×