Innlent

Seðla­bankinn geti ekki annað en lækkað vexti

Heimir Már Pétursson skrifar
Forystufólk breiðfylkingarinnar; Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Hilmar Harðarson formaður Samiðnar skrifa undir tímamóta kjarasamninga til fjögurra ára hinn 3. mars.
Forystufólk breiðfylkingarinnar; Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins, Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar og Hilmar Harðarson formaður Samiðnar skrifa undir tímamóta kjarasamninga til fjögurra ára hinn 3. mars. Vísir/Vilhelm

Formaður Starfsgreinasambandsins segir Seðlabankann ekki geta annað en lækkað vexti um að minnsta kosti hálft prósentustig nú þegar verðbólga mælist sex prósent. Verkalýðshreyfingin hafi farið að tilmælum bankans um hógværa kjarasamninga og nú væri komið að Seðlabankanum.

Hagstofan greindi frá því í morgun að verðbólga síðustu tólf mánuði væri 6 prósent. Verðbólga hefur ekki verið minni frá því í janúar-febrúar 2022 og minnkar um 0,8 prólsentustig frá því í mars. Verðbólgan hefur með örfáum undantekningum verið á niðurleið frá því í janúar í fyrra þegar hún varð mest í 10,2 prósentum. 

Seðlabankinn hefur engu að síður haldið meginvöxtum sínum óbreyttum í 9,25 prósentum frá því í ágúst 2023, eða í átta mánuði, vegna mikillar þenslu í þjóðfélaginu.

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segir hógværa kjarasamninga nú hafa skilað minni verðbólgu. Seðlabankinn hljóti því að lækka meginvexti sína hinn 8. maí um að minnsta kosti 0,5 prósentur.Stöð 2/Einar

Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins segir áframhaldandi hjöðnun verðbólgunnar sýna að hóflegir kjarasamningar á almenna vinnumarkaðnum séu að skila árangri.

„Seðlabankinn mun ekki geta annað en lækkað vexti,  og að mínum dómi um ekki minna en 0,50 punkta, við næstu stýrivaxtaákvörðun,“ segir Vilhjálmur. Seðlabankinn hafi verið að bíða eftir því að verðbólgan minnkaði og nú hafi það raungerst. 

Næsti vaxtaákvörðunardagur Seðlabankans er eftir hálfan mánuð eða hinn 8. maí. Peningastefnunefnd ákvað að halda vöxtunum óbreyttum hinn 20. mars síðast liðinn, skömmu eftir að skrifað var undir kjarasamninga. Sagði þá að spennan eða þenslan í efnahagslífinu og verðbólguvæntingar væru enn of mikil.

Vilhjálmur segir hins vegar að nú sé komið að Seðlabankanum að standa við sitt eftir mjög hófstillta kjarasamninga.

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hefur allt frá því í ágúst í fyrra sagt þenslu og verðbólguvæntingar of mikla til að hægt væri að lækka vexti.Stöð 2/Arnar

„Við fórum algerlega eftir því sem Seðlabankinn bað um. Nú er boltinn enn og aftur hjá honum og nú þarf hann að sýna í verki að hann skili lækkun stýrivaxta við næstu ákvörðun sína,“ segir formaður Starfsgreinasambandsins. Verðbólga mældist enn minni án húsnæðisliðarins eða 3,9 prósent.

„Það er mjög mikilvægt að þessi árangur sem við höfum náð nú þegar haldi áfram. Að verslun og þjónusta og allir aðilar haldi aftur af verðlagi. Svo skiptir líka máli að þeir kjarasamningar sem eftir eru, til dæmis hjá hinu opinbera, fylgi þeirri línu og klári þá samninga,“ sagði Vilhjálmur Birgisson.


Tengdar fréttir

Verðhækkanir á húsnæði framundan

Byggja þarf helmingi meira en nú er gert til að mæta húsnæðisþörf og hagfræðingur býst við miklum verðhækkunum á næstunni vegna þessa. Háir stýrivextir hafa hægt á uppbyggingu og samdráttur í framkvæmdum á milli ára nemur þriðjungi.

Núverandi staða bjóði upp á stýrivaxtalækkun

Varaseðlabankastjóri fjármálastöðugleika telur að hagkerfið sé komið á þann stað að Seðlabankinn geti byrjað að lækka stýrivexti. Ákvörðun sín um að hætta í bankanum tengist þó ekki því að hann var ósammála peningastefnunefnd. Honum hafi einfaldlega boðist spennandi starf. 

Seðlabankinn dregur úr útlánagetu bankanna

Ákvörðun Seðlabankans um að auka bindiskyldu bankanna dregur úr peningamagni í umferð og getu bankanna til útlána. Seðlabankinn setur aukna bindiskyldu í beint samhengi við kostnaðinn við að eiga mikinn gjaldeyrisforða.

Þetta eru lykilatriðin í nýjum kjarasamningi

Nú klukkan fimm hefst undirskrift fulltrúa Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins á tímamótasamningi til fjögurra ára. Samningarnir eru merkilegir vegna hóflegra launahækkana og óvenju langs gildistíma sem er fjögur ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×