Fjölnir tryggði sér sæti Olís deildinni á næsta tímabili Ágúst Orri Arnarson skrifar 2. maí 2024 20:13 Viktor Berg Grétarsson skoraði 4 mörk í leiknum. facebook / fjölnir handbolti Fjölnir tryggði sér sæti í Olís deild karla á næsta tímabili með 24-23 sigri gegn Þór í oddaleik umspilsins í Grill 66 deildinni.
Um oddaleik var að ræða sem fór fram í Fjölnishöllinni við Egilshöll. Fjölnir vann fyrsta leikinn eftir framlengingu, tapaði svo tveimur í röð en sótti sigur síðast fyrir norðan og knúði fram oddaleik. Gestirnir frá Akureyri skoruðu fyrsta mark leiksins og voru við völd allan fyrri hálfleikinn en heimamenn Fjölnis héldu vel í og hleyptu þeim aldrei langt undan. Þór var þremur mörkum yfir, 11-14, þegar flautað var til hálfleiks. Fjölnir vann á forystuna í seinni hálfleik og leiddi með fjórum mörkum, 22-18, þegar tæpar tíu mínútur voru eftir. Þórsarar áttu frábæran endasprett og jöfnuðu leikinn, 22-22, þegar rétt rúmlega fjórar mínútur voru til leiksloka. Alex Máni Oddnýjarson tók sig þá til og kom Fjölni aftur marki yfir, Björgvin Páll Rúnarsson tryggði svo sigurinn með 24. marki Fjölnis þegar þrettán sekúndur voru eftir af leiknum. Þórsarar minnkuðu muninn í eitt mark eftir að leiktímanum lauk en sitja eftir með sárt ennið og þurfa að reyna aftur að ári.
Handbolti Olís-deild karla Fjölnir Mest lesið Kane skrifaði undir samning á lokahófi Grindavíkur Körfubolti Tveir Færeyingar til silfurliðsins Handbolti Uppgjör: FH - Fram 3-3 | Ótrúleg endurkoma Fram í Krikanum Íslenski boltinn „Veit ekki hvaðan þetta kom allt frá okkur“ Íslenski boltinn „Eftir að við fengum á okkur fyrsta markið slökktum við á okkur“ Íslenski boltinn Pressa Þjóðverja bar loks árangur Fótbolti Fyrstu sigrar Aftureldingar og Þróttar Íslenski boltinn Benedikt tekinn við Stólunum Körfubolti Njarðvíkingar rústuðu Þórsurum Íslenski boltinn Hnéskel Kristófers fór í tvennt Körfubolti Fleiri fréttir Tveir Færeyingar til silfurliðsins Íslandsmeistarinn Aron er hvergi nærri hættur Gummi Gumm velur Höllu Hrund í liðið sitt Magdeburg meistari eftir stórsigur í Mannheim Guðjón Valur kom Gummersbach í Evrópukeppni Óðinn og félagar náðu ekki að tryggja sér titilinn Mikkel eftir tapið á móti liði Gumma Gumm: Þurfum að horfa inn á við Guðmundur orðlaus „Mig langaði bara ógeðslega mikið að verða Íslandsmeistari“ „Hann er bara svindkall í þessari deild“ „Ég held að ég hafi sjaldan verið jafn glaður“ Uppgjör: Afturelding - FH 27-31 | FH-ingar Íslandsmeistarar Twitter um langþráðan FH-titil: „Það sem ég elska þetta“ Erfitt kvöld hjá okkar mönnum Strákarnir hans Guðmundar knúðu fram oddaleik Sigvaldi og Bjarki Már meistarar Strákarnir okkar með Slóveníu, Kúbu og Grænhöfðaeyjum í riðli á HM Afturelding getur knúið fram oddaleik í kvöld „Stórkostlegt fyrir íslenskt íþróttalíf“ Tryggvi Þórisson sænskur meistari með Sävehof Tinna Sigurrós í Stjörnuna Tjörvi til Bergischer Ekki tilbúinn að ræða hversu margir kveðja Val Utan vallar: Þegar góðu gæjarnir koma fyrstir í mark Ómar Ingi með fjörutíu mörk í síðustu þremur leikjum „Gerist ekki grátlegra“ „Finnst þetta geðveikur sigur“ „Geggjað að sjá Símon setja hann í lokin“ Hetjan Símon: „Helvítis léttir“ Uppgjörið: FH-Afturelding 27-26 | FH-ingar tóku forystuna með síðasta skoti leiksins Sjá meira