Viðskipti innlent

Ráðin for­stöðu­kona Nýrra orku­kosta

Atli Ísleifsson skrifar
Harpa Pétursdóttir hefur frá árinu 2022 starfað hjá Orku náttúrunnar sem stjórnandi haghafa og stjórnsýslu og setið í framkvæmdastjórn félagsins.
Harpa Pétursdóttir hefur frá árinu 2022 starfað hjá Orku náttúrunnar sem stjórnandi haghafa og stjórnsýslu og setið í framkvæmdastjórn félagsins. Orkuveitan

Harpa Pétursdóttir hefur verið ráðin forstöðukona Nýrra orkukosta hjá Orkuveitunni og hefur hún þegar hafið störf. Um er að ræða nýja einingu hjá Orkuveitunni sem er hluti af sviði Rannsókna og nýsköpunar.

Í tilkynningu frá Orkuveitunni segir að Rannsóknir og nýsköpun sinni því hlutverki að gæta auðlinda og framtíðar auðlindaöflun til að komandi kynslóðir geti búið við sömu lífsgæði og við gerum í dag. 

„Nýir Orkukostir vinna markvisst að stefnuáherslunni Aukið framboð og sjálfbærar lausnir. Einingin er því forystuafl í orkuskiptum og þróun í átt að kolefnishlutlausri framtíð.

Reynsla úr orkugeiranum

Harpa Pétursdóttir er lögfræðingur að mennt frá Háskólanum í Reykjavík. Hún hefur starfað í orkugeiranum frá árinu 2010 þegar hún hóf störf hjá Orkustofnun. Þar starfaði hún sem lögfræðingur um níu ára bil, annars vegar sem verkefnisstjóri og lögfræðingur raforkueftirlits og hins vegar sem lögfræðingur auðlindanýtingar stofnunarinnar.

Frá árinu 2022 hefur Harpa starfað hjá Orku náttúrunnar, einu af dótturfélögum Orkuveitunnar, sem stjórnandi haghafa og stjórnsýslu og setið í framkvæmdastjórn félagsins.

Harpa hefur einnig reynslu af orkumálum frá störfum sínum hjá lögmannsstofunni BBA Legal þar sem hún sinnti orkumálum fyrir hönd stofunnar. Harpa hefur jafnframt sinnt stundakennslu við lagadeildir Háskóla Íslands og Háskólans á Bifröst auk þess sem hún hefur setið í ýmsum nefndum og stjórnum. Harpa stofnaði árið 2016 félagið Konur í orkumálum og var stjórnarformaður þess í 6 ár. Hún er jafnframt varaformaður Nordic Energy Equality Network. Þá er Harpa Viðurkenndur stjórnarmaður og hefur öðlast verðbréfaréttindi,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×