Innlent

Úr 256 pakkningum á mánuði upp í sex þúsund

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Eftirspurn eftir Ozempic hefur aukist verulega víða um heim eftir að erlendar stjörnur og áhrifavaldur hömpuðu því sem undralyfi sem gerði þeim kleift að léttast hratt.
Eftirspurn eftir Ozempic hefur aukist verulega víða um heim eftir að erlendar stjörnur og áhrifavaldur hömpuðu því sem undralyfi sem gerði þeim kleift að léttast hratt. Vísir/EPA

Sprenging hefur orðið í sölu á megrunarlyfinu Ozempic hér á landi síðustu ár. Seldar pakkningar af lyfinu voru tuttugu og þrisvar sinnum fleiri á mánuði í fyrra en árið 2019. Forstjóri Lyfjastofnunar telur að minnsta kosti tíu þúsund manns noti lyfið á Íslandi.

Ozempic er í grunninn sykursýkilyf en hefur í auknum mæli verið notað til að stuðla að þyngdartapi. Samkvæmt tölum frá Lyfjastofnun hefur sala á Ozempic, sem og megrunarlyfinu Saxenda, aukist gríðarlega síðustu ár. Tölur yfir seldar pakkningar af Ozempic ná aftur til febrúar 2019; það ár seldust 2816 pakkningar af Ozempic, eða um 256 á mánuði. Í fyrra seldust um 71.699 pakkningar, eða tæplega 6000 á mánuði, og sala því rúmlega tuttugufaldast. Svipaða sögu er að segja af Saxenda; árið 2018 seldust 427 pakkningar en í fyrra voru þær 23.126.

Rúna Hvannberg forstjóri Lyfjastofnunar segir þessa þróun sambærilega við þá sem orðið hefur erlendis. Lyfjastofnun heldur ekki utan um fjölda þeirra sem eru á Ozempic en Rúna telur ljóst að þeim hafi fjölgað.

„Síðast þegar við skoðuðum þetta voru um 8000 sjúklingar á þessu. Við höldum að þeir séu komnir upp í einhver 10.000, allavega. Þetta er aukning alls staðar. Það er mikil eftirspurn eftir þessum lyfjum og úrlausnum hvað varðar þyngdarstjórnun og líka sykursýki týpu 2.“

Er þetta eðlilegt, að svona sprenging verði í notkun á svona lyfi? 

„Það má alltaf spyrja sig að því. Þessum lyfjum er náttúrulega ávísað af læknum og þeir telja að þeirra sé þörf. Eins og við segjum þá er eftirpsurn, það hefur verið mikil þyngdaraukning.“

Greint var frá því í gær að Ozempic og Wegovy, annað megrunarlyf, virðast draga verulega úr líkum á hjartaáfalli, samkvæmt nýrri rannsókn. Rúna segir ekki tímabært að draga nokkra ályktun af þeirri rannsókn. Þá eigi enn þá ýmislegt eftir að koma í ljós varðandi hina auknu notkun á lyfjunum.

„Oft kemur líka til viðbótar jákvætt, en líka neikvætt. Það er alltaf þessi ábati og áhætta að nota lyf. Og það kemur mest í ljós þegar mjög margir fara að nota þau, þá skýrast þessar línur,“ segir Rúna.


Tengdar fréttir

„Ég hef engan hag af því að ávísa þessum lyfjum“

Sérfræðilæknir sem þegið hefur hæstu greiðslurnar hér á landi frá danska lyfjafyrirtækinu Novo Nordisk sem framleiðir sykursýkis-og þyngdarstjórnunarlyf segist engan hag hafa af því að ávísa lyfjunum. Embætti landlæknis segist ekki geta lagt mat á hvort viðeigandi sé af heilbrigðisstarfsmönnum að þiggja slíkar greiðslur.

Kostnaður SÍ vegna offitulyfja tæpir tveir milljarðar á árinu

Kostnaður Sjúkratrygginga Íslands (SÍ) vegna sykursýkislyfja sem einnig eru notuð til þyngdarstjórnunar hefur tólffaldast á síðustu fimm árum. Það segir í tilkynningu frá stofnuninni en kostnaður á þessu ári er nær tveir milljarðar. Sviðsstjóri segir stofnunina ekki sjá fram á að breyta reglum um niðurgreiðslu. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×