Skoðun

Viltu koma í ferða­lag?

Guðmundur Björnsson skrifar

Ferðamál, ferðamennska og ferðamálafræði hefur verið ástríða mín lengi, og ég trúi því að nám í ferðamálafræði sé lykillinn að því að skilja ferðaþjónustuna og ferðamennsku og hvernig hún getur haft jákvæð áhrif á samfélagið okkar. Ferðamálafræði býður upp á einstakt tækifæri til að kafa djúpt í þessa spennandi og þverfaglegu námsgrein.

Ferðamálafræði – fyrir hverja?

Ef þú hefur áhuga á ferðamennsku og vilt skilja hvers vegna fólk ferðast og hvernig við getum byggt upp ferðamannastaði í sátt við umhverfi og menningu, þá er ferðamálafræði fyrir þig. Námið hentar líka þeim sem vilja efla nýsköpun og vöruþróun í ferðaþjónustu, hafa gaman af því að skipuleggja og vilja vinna fjölbreytt verkefni undir handleiðslu helstu sérfræðinga landsins. Það er einnig frábær valkostur fyrir þá sem langar í krefjandi og skemmtilegt framtíðarstarf.

Hvað lærir maður í ferðamálafræði?

Námið er fjölbreytt og tengir saman náttúru- og umhverfisfræði, félagsvísindi, viðskiptafræði og skipulagsfræði. Mikilvægur hluti námsins er að skoða áhrif ferðamennsku á umhverfi, menningu og hagkerfi og samspil þeirra. Nemendur fá tækifæri til að vinna með fyrirtækjum og stoðkerfi ferðaþjónustunnar, með sérstaka áherslu á starfsþróun og möguleika til starfsþjálfunar.

Nýsköpun og sjálfbærni í ferðaþjónustu

Nýsköpun er lykillinn að því að þróa ferðaþjónustu sem er bæði arðbær og sjálfbær. Í náminu eru nemendur þjálfaðir í að nýta nýjustu tækni og hugmyndafræði til að þróa þjónustu sem uppfyllir þarfir ferðamanna á vistvænan hátt. Ferðamennska hefur bæði jákvæð og neikvæð áhrif á umhverfi, og það er okkar hlutverk að lágmarka neikvæðu áhrifin með sjálfbærri þróun. Nemendur í ferðamálafræðum læra að greina áhrif ferðamennsku á umhverfi og þróa lausnir til að vernda náttúruna á sama tíma og við stuðlum að efnahagslegum og félagslegum ávinningi.

Öryggismál í ferðaþjónustu

Öryggi ferðamanna er grundvallaratriði í ferðaþjónustu. Því læra nemendur um mikilvægi öryggisáætlana, áhættumat og viðbragðsáætlanir í tilfelli neyðarástands. Kennsla í öryggismálum felur í sér þjálfun í viðbrögðum við náttúruhamförum, slysavörnum og heilsufarslegum áskorunum. Sérstök áhersla er lögð á gerð öryggisáætlana, öryggismenningu og öryggi í náttúruferðum, þar sem farið er yfir hvernig hægt er að vernda bæði ferðamenn og náttúruna sjálfa.

Þjálfun og framtíðarhorfur

Nám í ferðamálafræðum undirbýr nemendur fyrir fjölbreytt störf í ferðaþjónustunni. Námið leggur áherslu á nýsköpun, þjónustuþróun og neytendavernd, sem eru lykilatriði í samkeppni innan ferðaþjónustunnar. Nemendur fá þjálfun í sjálfstæðum vinnubrögðum en einnig í því að vinna með öðrum. Kennarar leggja mikið upp úr því að vera aðgengilegir og stuðningsríkir, sem stuðlar að góðu sambandi milli nemenda og kennara. Félagslífið innan deildarinnar er einnig öflugt, með fjölbreyttum viðburðum og starfsemi sem stuðlar að sterku samfélagi.

Lokaorð

Ferðamálafræði veitir nemendum dýrmæta þekkingu á nýsköpun, áhrifum ferðamennsku á umhverfi og sjálfbærni, og öryggismálum. Þetta nám undirbýr nemendur fyrir krefjandi störf í ferðaþjónustunni þar sem þeir geta stuðlað að vistvænni og öruggari ferðaþjónustu á Íslandi og um allan heim.

Ég hvet alla sem hafa áhuga á þessum málum að skoða þetta nám í HÍ nánar og taka þátt í þessu spennandi ferðalagi.

Höfundur er kennari í ferðamálafræðum við Háskóla Íslands.




Skoðun

Sjá meira


×