Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 16. maí 2024 11:59 Um afmælisár er að ræða og hátíðin því sérlega glæsileg í ár. Iceland Airwaves hefur kynnt 22 nýja tónlistarmenn sem bætast við hóp þeirra flytjenda sem koma fram á tónlistarhátíðinni. Hátíðin fer fram 7.- 9. nóvember 2024 í miðbæ Reykjavíkur í 25. sinn.
Í tilkynningu frá aðstandendum segir að fyrst beri að nefna dúettinn Overmono frá Wales, rafhljómsveit bræðranna Tom og Ed Russell, sem eru þekktir fyrir sína mögnuðu tónleika og hafa verið aðalnúmer á tónlistarhátíðum um allan heim. Platan þeirra, Good Lies, sem kom út í fyrra frá útgáfufyrirtækinu XL hefur borið hróður þeirra enn víðar. Á hinum endanum, en ekki síður dansvænt, kemur hin ástsæla indie-rokksveit The Vaccines frá Englandi. Þeir senda sífellt frá sér ný lög sem við elskum og hafa það orðspor að halda eingöngu eftirminnilega tónleika og er því um að ræða gríðarlega spennandi viðbót. Alice Longyu Gao, English Teacher, Personal Trainer og Benefits Iceland Airwaves stígur inn í heim hyper-popptónlistar með því að bjóða velkomna kínversku söngkonuna, lagahöfundinn, flytjandann og plötusnúðinn Alice Longyu Gao, sem gerir þessa dagana út frá New York. Kraftmikil og forvitnileg sköpun Alice er kærkomin viðbót í afmælisútgáfu hátíðarinnar. Við tilkynnum einnig hinn dularfulla breska danstónlistarmann Lynks sem fer jafnan huldu höfði. Manneskjan á bakvið grímuna býður upp á áhyggjulaust og ómótstæðilegt popp ásamt dönsurunum sínum. Einnig mæta nýliðar sem eru að springa út þessa dagana; kvartettinn English Teacher kemur frá Leeds til að heilla Airwaves gesti. Þeirra fyrsta plata, This Could Be Texas, komst á topp 10 plötulistans í Englandi og fór hljómsveitin hratt frá því að vera best geymda leyndarmálið yfir í að vera á allra vörum. Sérstakt lof fær sveitin fyrir heillandi og hrífandi framkomu á tónleikum. Við hlið þeirra má finna hollensku indie-rokksveitina Personal Trainer frá Amsterdam, sem þrátt fyrir síbreytilega liðsskipan hefur haldið stöðugleika sínum með grípandi og taktföstum melódíum. Frá pönksenunni koma Benefits. Þau koma frá Teesside og eru þekkt fyrir að segja sinn hug umbúðalaust og leggja allt í sölurnar á tónleikum sínum. Post-punk og margmiðlunarhópurinn cumgirl8 frá New York mætir einnig. Sköpun þeirra er einstök og nær yfir tónlist, kvikmyndir og tísku. Fjórmenningarnir hafa fetað hina þunnu línu á milli einlægni og ádeilu en í kjarnanum er list þeirra bæði frelsandi og stuðandi. Mæta frá Brighton Lambrini Girls frá Brighton koma einnig fram á hátíðinni; rafmögnuð og ögrandi hljómsveit frá Brighton sem hefur verið að æsa upp áhorfendur hvar sem þær koma. Með söngrödd sem gefur aldrei eftir og samsvarandi tónlist hefur þríeykið opnað sér leið að hjörtum pönkunnenda með sínu beinskeitta viðhorfi. Annar breskur tónlistarmaður sem mun mæta til Reykjavíkur í nóvember er hinn virti Wu-Lu frá Suður-London. Hér er um að ræða verkefni fjöllistamannsins Miles Romans-Hopcraft. Listamaðurinn og pródúsentinn hefur verið afkastamikill þvert á tónlistarsenur í London og heldur áfram að skapa, þróa og tjá sig ásamt fjölda samstarfsmanna og vina í geiranum. Gabríel Ólafs Samhliða því að draga að sér mest spennandi flytjendur samtímans frá öllum heimshornum, eins og því er lýst í tilkynningunni, lítur Iceland Airwaves ávallt innávið með úrvali innlendra tónlistarmanna. Þar á meðal er Gabríel Ólafs, píanóleikari, tónskáld og útsetjari sem er á mála hjá Decca Records í Bandaríkjunum og meðstofnandi Reykjavik Orkestra. Gabríel er þekktur fyrir að sækja innblástur víða að, allt frá raftónlist til norrænna hefða og náttúrunnar. Einnig stígur á stokk Elín Hall, rísandi poppstjarna og leikkona sem fylgir eftir plötu sinni, Heyrist í mér, sem var unnin í samstarfi við Árna Hjörvar úr The Vaccines.
Airwaves Tónlist Tónleikar á Íslandi Mest lesið Erna Ómars er borgarlistamaður Reykjavíkur Menning Segir brjóst myndast við mikla bjórdrykkju Lífið Þetta höfðu netverjar að segja um kappræðurnar Lífið Frambjóðendum gekk misvel í hraðaspurningum Lífið Herra Hnetusmjör og Sara selja íbúðina Lífið Af vængjum fram: Grínaðist alltaf með að láta húðflúra einstefnuskilti á rassgatið Lífið Kjúklinganaggar hollu stjúpunnar Lífið Hugsar vel um sig til að vera aðlaðandi fyrir Línu Makamál Sigga á Grund er fyrsti heiðursborgari Flóahrepps Lífið „Aldrei verið jafn stolt af mér“ Tónlist Fleiri fréttir „Aldrei verið jafn stolt af mér“ Páll Óskar og Skrattar í fyrsta sinn á sama sviði „BOY BYE“ við þá röngu en „BOY HÆ“ við þann rétta Bauð pabba að syngja með sér um íslensku sumargaslýsinguna Bashar Murad kemur fram á endalokum LungA „Við ætlum bókstaflega að rífa þakið af húsinu“ Rífandi stemning og valdefldar tónlistarkonur Tónleikum Nicki Minaj aflýst vegna fíkniefnahandtöku Segir skásta staðinn í bænum í kirkjugarðinum Iceland Airwaves kynnir 22 ný bönd til leiks „Þægileg blanda af von og trega“ Kom fram sem stórstjarna „Drull sama hvað einhver apaköttur segir“ Laufey tók lagið hjá Jimmy Fallon „Svo hræðilega óyfirstíganlegt að ég þurfti að rífa plásturinn af“ „Þetta styrkti mig rosalega en þetta braut mig líka“ Gítarleikarinn Duane Eddy er látinn MANOWAR til Íslands í fyrsta sinn Sjá meira