Forsetaáskorunin: Lærbraut sig út í móa og beið lengi eftir aðstoð Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 25. maí 2024 19:01
Geir og Jóhanna lýsa yfir stuðningi við Höllu Hrund Tveir fyrrverandi forsætisráðherrar, Geir H. Haarde og Jóhanna Sigurðardóttir, hafa lýst yfir stuðningi við Höllu Hrund Logadóttur til embættis forseta Íslands. Innlent 25. maí 2024 18:59
Pólítísk aflúsun Þar sem ég er á laugardagsmorgni að renna yfir morgunfréttirnar á vefmiðlum landsins sé ég auglýsingu frá einum forsetaframbjóðandanum þar sem hann selur sig út á að hafa aldrei tengst pólitískum öflum. Mér finnst þetta athyglisverð leið til að ná athygli kjósenda og um leið örlítið sorglegt að hún skuli virka. En traustið til stjórnmálanna er laskað og því ekki óvænt að frambjóðandi í fylgisleit reyni að nýta sér það. Skoðun 25. maí 2024 18:30
Að vaxa inn í framtíðina Engin(n) er forsniðin(n) í forsetaembættið. Það er hægt að láta líta svo út, með fáguð svör á reiðum höndum, úr mælskukeppni stjórnmálabaráttunnar sem hefur þynningaráhrif á hugsunina, ellegar úr söluræðum viðskiptalífins sem setur mannlífi þröngar skorður. Það þarf að hyggja að því sem í fólki býr, því þar eru möguleikarnir og vísir að framtíðinni. Skoðun 25. maí 2024 18:01
Enginn kemst sjálfkrafa í könnunarhóp Prósents Framkvæmdastjóri rannsóknafyrirtækisins Prósents segir að þrátt fyrir að boðið sé upp á að fólk skrái sig sjálft í könnunarhóp sem skoðanakannanir eru lagðar fyrir komist enginn þangað inn sjálfkrafa. Möguleikinn sé til staðar til að ná til hópa sem erfitt sé annars fá í hópinn. Innlent 25. maí 2024 15:30
Þrjátíu og fimm kílómetrar í kjörstað Mývetningar eru margir hverjir afar ósáttir með tilætlaða framkvæmd forsetakosninga í Þingeyjarsveit. Aðeins einn kjörstaður verður í sveitinni og verður hann í Félagsheimilinu Breiðumýri nálægt Laugum. Ragnheiður Jóna Grétarsdóttir, íbúi á svæðinu segir segir fólk ekki ánægt. Innlent 25. maí 2024 13:52
A Letter of Encouragement for Voters of Foreign Origin. I decided to pen an op-ed in English to bridge words of encouragement to voters of foreign origin who maybe are not included in election discourse, due to language. I realize many of us learning Icelandic of a second language are often left out or only partially included. Skoðun 25. maí 2024 13:31
Enginn einn frambjóðandi augljós keppinautur Katrínar Prófessor í stjórnmálafræði segir nokkuð flókna stöðu vera að málast upp í aðdraganda forsetakosninga. Enginn einn frambjóðandi hafi markað sér stöðu sem augljós keppinautur Katrínar Jakobsdóttur. Innlent 25. maí 2024 13:16
Sameiningaraflið Katrín Jakobsdóttir Hinn 1. júní nk. kjósum við sjöunda forseta lýðveldisins. Eins og áður í forsetakosningum standa kjósendur frammi fyrir mörgum góðum – en vissulega þó misgóðum – kostum. Skoðun 25. maí 2024 13:00
Til óákveðinna kjósenda Nú er bara vika til kjördags í forsetakosningum og margir málsmetandi menn, konur og kvár búin að upplýsa almúgann um hvaða frambjóðandi verður svo heppinn að fá þeirra atkvæði. Skoðun 25. maí 2024 08:30
Af vængjum fram: „Ég er að breytast í dreka hérna með þér“ Halla Hrund Logadóttir forsetaframbjóðandi segir það magnaða lífseynslu að vera í forsetaframboði. Hún segist læra mikið af kappræðunum og var hvergi bangin þegar hún fékk sterkasta vænginn allt of snemma og þakkar það reynslu sinni frá Bandaríkjunum. Lífið 25. maí 2024 07:01
Forsetaáskorunin: Innbrotsþjófurinn reyndist vera mamman Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 24. maí 2024 19:01
Katrín að taka afgerandi forystu Katrín Jakobsdóttir mælist með 27 prósent fylgi fyrir komandi forsetakosningar í nýjasta þjóðarpúlsi Gallup. Það er talsvert meira en aðrir frambjóðendur, en enginn annar nær yfir tuttugu prósent. Innlent 24. maí 2024 16:51
Stöndum í lappirnar! Við sem fylgjum Höllu Tómasdóttur forsetaframbjóðanda erum kát þessa dagana. Þvílíkur meðbyr og kúvending sem átt hefur sér stað allt frá fyrstu kappræðunum á RÚV. Skoðun 24. maí 2024 15:22
Stofutónleikar Bubba og Víkings Heiðars til stuðnings Katrínu Bubbi Morthens og Víkingur Heiðar gefa út stofutónleika til stuðnings Katrínu Jakobsdóttur. Lífið 24. maí 2024 15:12
Telur víst að sala á Landsvirkjun komi á borð næsta forseta Halla Hrund Logadóttir hefur verið að gefa eftir í síðustu skoðanakönnunum. Hún hefur verið að slást við Katrínu Jakobsdóttur um toppsætið en í gær gerðist það að nafna hennar Tómasdóttir skaust upp fyrir hana. Innlent 24. maí 2024 15:03
Gjöf sem gefur Fjölmenn kynslóð eftirstríðsáranna nær nú hefðbundnum eftirlaunaaldri. Meðalaldur og lífslíkur aukast og því fylgja ýmsar breytingar sem huga verður að. Hvernig gerum við eftirlaunaárin innihaldsrík og gefandi? Pabbi varði síðustu árunum sem húsvörður í Sunnuhlíð í Kópavogi. Skoðun 24. maí 2024 14:00
Vegna hvers kýs ég Katrínu Í fyrsta lagi vann ég með henni fyrir allmörgum árum í nefnd. Það voru haldnir margir fundir og hún var alltaf undirbúin og tilbúin að ræða málin þótt við værum ósammála. Það var einfaldlega einstaklega gott að vinna með henni og það var auðséð að þarna fór greind kona og vel að sér. Hún var ekki orðin ráðherra þegar þetta var. Skoðun 24. maí 2024 13:45
Verðmæti Döff kjósenda Á kjördag sitja allir við sama borð, ungir sem aldnir, Döff sem heyrandi, ófatlaðir sem fatlaðir. Samfélagið er eitthvað sem við öll mótum og byggjum upp saman. Með atkvæði þínu ertu að hafa áhrif á framtíðina. Þú velur þann flokk sem þér finnst bestur og sem þú telur þjóna hagsmunum þínum og þjóðarinnar best. Skoðun 24. maí 2024 12:45
Afhverju viltu fá trúð á Bessastaði? Ég þekki konu á níræðisaldri sem býr í þjónustuíbúðakjarna fyrir eldri borgara. Á dögunum sat þessi kona að snæða hádegisverð með öðrum konum sem búa í sama húsi og að sjálfsögðu báru forsetakosningarnar á góma. Þegar það kom að minni konu að segja hvern hún hyggst kjósa þann 1. Júní sagði hún Jón Gnarr. Hinar konurnar hváðu og spurðu: Afhverju viltu fá trúð á Bessastaði? Og hún svaraði: Æ af því að hann er svo einlægur eitthvað, fyndinn og góður við dýr og menn. Er það ekki það sem við viljum? Skoðun 24. maí 2024 12:16
Heldur þann besta en þann næstbesta! Nú dynja á okkur skoðanakannanir og umfjallanir um þær, en fjölmiðlar gera sér mikinn mat úr þeim. Það vonda er að þessar kannanir virðast ætla ýta sumum út í þá vitleysu að kjósa á einhvern hátt taktískt, þ.e.a.s. ekki með einum frambjóðanda, heldur gegn öðrum. Skoðun 24. maí 2024 12:01
Vonar að þetta dugi til Halla Tómasdóttir segir ljóst að frammistaða hennar í kappræðum hafi haft mikil áhrif á fylgi hennar. Hún mælist nú önnur í skoðanakönnunum með rúmlega 18 prósent fylgi, en mældist aðeins með um 5 prósent fylgi fyrr í mánuðinum. Innlent 24. maí 2024 11:49
Halla Hrund; vörður auðlinda og nýsköpunar Í komandi forsetakosningum þurfum við ekki einungis að velja glæsilegan og verðugan fulltrúa og rödd þjóðarinnar; ekki einungis manneskju með djúpan skilning á þjóðlífi og pólitík; heldur er ekki síður mikilvægt að velja einstakling með þekkingu og skilning á auðlindum þjóðarinnar og mikilvægi verndunar og nýtingar þeirra í þágu komandi kynslóða. Skoðun 24. maí 2024 11:01
Halla Hrund, Halla Tómasdóttir eða Katrín Jakobsdóttir? Gunnar Smári og Samstöðin gera þessum forsetakosningum best skil að mínu mati Ég hef m.a. séð viðtölin við Höllu Hrund Logadóttur og Höllu Tómasdóttur. Katrín Jakobsdóttir virðist ekki vilja taka þátt í þessum samtölum á Samstöðinni. Gunnar Smári hefur að mér virðist kosið í þessum viðtölum að lofa frambjóðendum svolítið að eiga þessar stundir með honum á þeirra eigin forsendum og látið okkur áhorfendum um að lesa á milli línanna. Skoðun 24. maí 2024 09:31
Af vængjum fram: Borðaði vængi með hníf og gaffli og sagðist vera saddur Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi líkir því við að spila á fiðlu á Titanic meðan skipið sekkur að fá sér kjúklingavængi á tímum líkt og þessum þegar kjarnorkusprengja gæti skollið á Íslandi hvenær sem er. Hann segir ekki eðlilegt að sitja undir ásökunum um að vera svikahrappur vegna happdrættis sem sé framkvæmt með leyfi frá sýslumanni og úrdráttur þess undir opinberu eftirliti. Lífið 24. maí 2024 07:00
Halla Hrund - Þarf fólk eins og þig, fyrir fólk eins og mig? Ef dimmir í lífi mínu um hríð eru bros þín og hlýja svo blíð. Og hvert sem þú ferð og hvar sem ég verð þarf fólk eins og þig, fyrir fólk eins og mig – texti: Rúnar Júlíusson- Skoðun 24. maí 2024 07:00
Augljóst að fylgið er enn á verulegri hreyfingu Fylgi við forsetaframbjóðendur er enn á verulegri hreyfingu nú þegar rúm vika er til kosninga, að mati prófessors í stjórnmálafræði. Hann segir mjög athyglisvert að forystusauðurinn Katrín Jakobsdóttir mælist aðeins með fjórðungsfylgi. Innlent 23. maí 2024 23:08
Halla T skýst upp í annað sæti en Katrín leiðir Halla Tómasdóttir skýst upp í annað sæti forsetaframbjóðenda í nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Katrín Jakobsdóttir er aftur á móti með afgerandi forystu og marktækur munur er á fylgi hennar og Höllu. Innlent 23. maí 2024 19:11
Forsetaáskorunin: Álíka nagli og Jason Statham Vísir stendur fyrir Forsetaáskoruninni 2024, þar sem skorað er á forsetaframbjóðendur að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum. Lífið 23. maí 2024 19:00
Halla orðin vinsælasta plan B Tæplega fjórðungur landsmanna myndi kjósa Höllu Tómasdóttur ef þeirra fyrsti kostur væri ekki í boði. Þrisvar sinnum fleiri setja hana sem sitt plan B nú en fyrir mánuði. Á sama tíma og flestir myndu kjósa Katrínu eru enn fleiri sem geta ekki hugsað sér hana sem forseta. Innlent 23. maí 2024 19:00