Beðnir um að loka gluggum vegna býflugna í milljónatali Fimm milljónir býflugna sluppu úr búrum sínum í gær þegar bíll sem var að flytja þær rann til á veginum í kanadísku borginni Burlington. Bílstjórar voru beðnir um að loka gluggum sínum og gangandi vegfarendur voru varaðir við. 31.8.2023 22:14
„Hvaða ráðherra notar símaveski?“ Ráðherrar lögðu síma sína til hliðar áður en ríkisstjórnarfundur hófst á Egilsstöðum í dag. Mynd af símunum vakti nokkra athygli á samfélagsmiðlum í dag. Upp spratt umræða um hvaða ráðherrar ættu hvaða síma. 31.8.2023 21:43
Áttaði sig á því að börnin höfðu ekki fengið sömu upplifanir Haraldur Þorleifsson, athafnamaður og forsprakki verkefnisins Römpum upp Ísland, vígði ramp númer átta hundruð á Egilsstöðum í dag. Hann segist hlakka til að geta sýnt börnunum sínum Ísland, það hafi ekki verið auðvelt áður en verkefnið hófst. 31.8.2023 20:38
Tapið minna og sölutekjur meiri en í fyrra Tap íslenska líftæknilyfjafélagsins Alvotech á fyrri helmingi þessa árs nemur 86,9 milljónum dollara, það samsvarar rúmum ellefu milljörðum í íslenskum krónum. Það er talsvert minna tap en á síðasta ári þegar tapið var 184,5 milljónir dollara. Þá voru sölutekjur félagsins næstum sexfalt meiri í ár en í fyrra. 30.8.2023 22:12
Fraus aftur í miðri setningu Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild bandaríska þingsins, fraus í miðri setningu á blaðamannafundi í Kentucky ríki í dag. Um mánuður er liðinn síðan McConnell gerði slíkt hið sama á öðrum blaðamannafundi. 30.8.2023 21:38
„Fiskarnir bera augljós merki um að vera eldislaxar“ Óttast er að eldislax gangi upp fjölda laxveiðiáa á Norðvesturlandi eftir slysasleppingar úr sjókvíeldum. Hafrannsóknarstofnun segir líklega strokulaxa hafa sést í teljurum í ám og birti í dag mynd af þessum lax sem veiddist í Laugardalsá í síðustu viku og er talinn vera eldislax. 30.8.2023 20:56
„Af því verður maður ríkastur“ Þýskur listmálari og íslenskur æðarbóndi sem skilja ekki tungumál hvors annars láta það ekki setja stein í götu vinskaparins. Síðan þeir kynntust hefur æðarbóndinn orðið að aðalgagnrýnanda listmálarans sem lætur nú ekkert frá sér nema bóndinn sé búinn að sjá það. 20.8.2023 09:00
Dælan hefur göngu sína Þátturinn Dælan hefur gengu sína á Gametíví í kvöld. Um er að ræða þátt sem er að stærstum hluta stjórnað af þeim sem sjáum um útvarpsþáttinn Grjótið á FM957. 16.8.2023 17:21
Ariana Katrín nýr verkefnastjóri miðlunar Ariana Katrín Katrínardóttir hefur verið ráðin í starf verkefnastjóra miðlunar Listasafns Reykjavíkur. Katrín mun annast samstarf við skóla, móttöku skólahópa og aðra miðlun til barna, ungmenna og fjölskyldna. 16.8.2023 14:34
„Við erum ekki að biðja um neina aukningu“ Óperustjóri Íslensku óperunnar segir stofnunina ekki vera að biðja um meira en hún hefur áður fengið. Upphæð sem menningar- og viðskiptaráðuneyti nefndi í gær sé misvísandi og dugi ekki til að halda rekstrinum gangandi. 16.8.2023 12:00