Skoðun

Af hverju bara hálft skref á­fram?

Gísli Rafn Ólafsson skrifar

Frumvarp háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um breytingar á Menntasjóði námsmanna eru skref í rétta átt fyrir námsmenn, en langt frá því skrefi sem þarf að taka til að uppfylla markmið sjóðsins, að tryggja námsmönnum tækifæri til náms, óháð efnahag og stöðu.

Frumvarp ráðherra kemur í kjölfar svartrar skýrslu um þær miklu breytingar sem áttu sér stað þegar Menntasjóðurinn tók við hlutverki Lánasjóðs íslenskra námsmanna. Í frumvarpinu felast tvær megin breytingar. Annars vegar er ábyrgðamannakerfið lagt niður, nokkuð sem kallað hefur verið eftir mjög lengi, og hins vegar er nemendum gert kleift að skipta um nám eftir fyrsta námsárið, án þess að það komi niður á upphæð námsstyrks sem nemandi getur fengið. Með fram þessu tilkynnti ráðherra einnig um hækkun á frítekjumarki, en sú breyting kallar ekki á lagabreytingar.

Allt eru þetta góðar og mikilvægar breytingar, en því miður ganga þær alls ekki nógu langt til þess að bæta kjör nemenda. Ef horft er til krafna námsmanna (eitthvað sem ætti að teljast sjálfsagt þegar lögum um menntasjóð þeirra er breytt) er ljóst að mikið meira þarf til. Í fyrsta lagi þarf að hækka framfærsluviðmið til muna svo að nemendur geti stundað fullt nám, án þess að hafa sífelldar áhyggjur af því að ná endum saman og neyðast til að vinna öll kvöld og helgar til þess eins að geta lifað námsárin af. Í öðru lagi þarf að afnema, eða stórhækka, frítekjumörk svo að þau sem velja að vinna haldi enn rétti sínum til námslána og styrkja. Sannleikurinn er sá að flestir nemendur sem vinna 50-100% vinnu með námi yfir veturinn fá svo mikla skerðingu á námsláni að það tekur því ekki fyrir þau að sækja um lán. Þetta er eitt af því sem skýrir hvers vegna mun færri sækja um lán hjá Menntasjóðnum en vonir stóðu til um.

Einnig er mikilvægt að nemendum sé gefið aukið svigrúm þegar kemur að því að klára nám sitt. Í mörgum námsgreinum eru stórir áfangar sem spanna 10 einingar, eða þriðjung náms á önn. Fall í slíkum áfanga þýðir í dag að engin námslán eru greidd út fyrir þá önn, þrátt fyrir að nemandi standist öll önnur námskeið á önninni. Nemendum er í raun ekki gefið neitt svigrúm til að mistakast eða læra af mistökum sínum. Þessi ríka krafa um námsárangur skapar því mikið stress, álag og áhyggjur fyrir nemendur sem mega þannig ekki klikka á neinu fagi.

Allt eru þetta atriði sem við Píratar lögðum fram fyrr í vetur í okkar eigin frumvarpi um bætta stöðu námsmanna. Þar sem litlar líkur eru á því að okkar mál fái þinglega meðferð, frekar en önnur þingmannamál, þá höfum við lagt fram sambærilegar breytingartillögur við frumvarp ráðherra sem nú liggur inni í allsherjar- og menntamálanefnd þingsins. Það er von okkar að þingmenn stjórnarflokkanna hafi í huga að þessar tillögur eru allar komnar frá námsmönnum sjálfum, við erum bara sendiboðinn með skilaboðin. Það er nauðsynlegt að þessum tillögum sé tekið með opnum hug, því framfaraskref til námsmanna í dag eru lykilatriði fyrir hagsæld Íslands til framtíðar.

Höfundur er þingmaður Pírata í Suðvesturkjördæmi.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Skoðun

Sjá meira


×