Innlent

Kosið um sam­einingu Húna- og Skaga­byggðar í júní

Kjartan Kjartansson skrifar
Blönduós yrði stærsta byggðin í sameinuðu sveitarfélagi Húna- og Skagabyggða.
Blönduós yrði stærsta byggðin í sameinuðu sveitarfélagi Húna- og Skagabyggða. Vísir/Helena

Sveitarstjórnir Húnabyggðar og Skagabyggðar samþykktu að halda atkvæðagreiðslu um sameiningu sveitarfélaganna í dag. Atkvæðagreiðslan stendur yfir í tvær vikur í júní.

Atkvæðagreiðslan fer fram í samræmi við tillögu samstarfsnefndar sem sveitarfélögin skipuðu um sameiningaráformin í janúar. Hún komst að þeirri niðurstöðu að það væri framfaraskref að sameina sveitarfélögin í eitt. 

„Þannig verður til öflugt sveitarfélag með aukinn slagkraft, sterkari rekstrargrundvöll og tækifæri til þess að bæta þjónustu við íbúa,“ að því er kemur fram í fundargerð sveitarstjórnar Húnabyggðar frá því í dag.

Jafnframt var samþykkt að atkvæðagreiðslan færi fram dagana 8. til 22. júní og að kosningaaldur miðist við sextán ár.

Þetta er að vissu leyti í annað skiptið á nokkrum árum sem atkvæði eru greidd um sameiningu sveitarfélaganna. Íbúar Skagabyggðar felldu tillögu um sameiningu sveitarfélaganna í Austur-Húnavatnssýslu sumarið 2021. Af þeim sjötíu sem voru þá á kjörskrá greiddu 29 atkvæði gegn sameiningu en 24 með.

Í kjölfar þeirrar atkvæðagreiðslu sameinuðust Blönduós og Húnavatnshreppur í nýtt sveitarfélag, Húnabyggð. 



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×