Handbolti

Segja Ís­land hafa skorað fimm­tíu án þess að svitna

Sindri Sverrisson skrifar
Óðinn Þór Ríkharðsson fagnar einu af fimmtíu mörkum Íslands á miðvikudaginn.
Óðinn Þór Ríkharðsson fagnar einu af fimmtíu mörkum Íslands á miðvikudaginn. vísir/Hulda Margrét

Eistlendingar viðurkenna að nær ómögulegt sé fyrir þá að slá út Íslendinga í umspilinu um sæti á HM í dag, enda fór fyrri leikur liðanna 50-25 í Laugardalshöll.

Það er því formsatriði fyrir Ísland að klára seinni leikinn í Tallinn í dag en hann hefst klukkan 15 og verður í beinni textalýsingu á Vísi og sýndur á RÚV.

Ísland var strax í hálfleik komið 14 mörkum yfir í leiknum á miðvikudaginn, og nýtti þá 26 af 27 skotum sínum. Eistum þótti íslenska liðið fá að skora fullauðveldlega og þeir ætla sér að gera betur í leiknum í dag.

„Við héldum okkur ekki við það sem lagt var upp með. Það vantaði sérstaklega mikið upp á í vörninni, þar sem var mikill skortur á baráttu,“ sagði Martin Noodla, þjálfari Eistlands.

Fyrirliðinn Karl Roosna og Dener Jaanimaa tóku í sama streng. „Ég er búinn að segja það í mörg ár að við verðum að vinna betur í líkamlega þættinum. Mótherjar okkar skoruðu fimmtíu mörk án þess að svitna,“ sagði Jaanimaa.

Á vef eistneska handknattleikssambandsins er bent á að sóknarlega hafi leikur Eistlands þó gengið ágætlega, og liðið nýtt um helming skota sinna. Það sé sterkt að ná 25 mörkum gegn íslenska liðinu.

Komast Ítalía og Færeyjar á HM?

Sigur Íslands var sá langstærsti í umspilinu um sæti á HM en nú um helgina fara seinni leikirnir fram í alls ellefu umspilseinvígum í Evrópu. Sigurliðin komast á HM sem fram fer í janúar, í Króatíu, Danmörku og Noregi.

Nokkuð var um óvænt úrslit í fyrri leikjunum og þarf Svartfjallaland til að mynda að vinna upp sex marka forskot gegn Ítalíu, Holland þarf að vinna upp fjögurra marka forskot gegn Grikklandi og Slóvakía er einu marki yfir gegn Póllandi eftir sigur á útivelli. Þá gætu Færeyjar komist á HM í fyrsta sinn eftir sjö marka sigur á heimavelli gegn Norður-Makedóníu.

Leikur Eistlands og Íslands hefst eins og fyrr segir klukkan 15 og er leikmannahópur Íslands sá sami og í sigrinum á miðvikudaginn.

Leikmannahópur Íslands í dag:

Markverðir:

Ágúst Elí Björgvinsson, Ribe-Esbjerg (51/3)

Björgvin Páll Gústavsson, Val (270/24)

Aðrir leikmenn:

Arnar Freyr Arnarsson, MT Melsungen (97/100)

Bjarki Már Elísson, Telekom Veszprém (115/396)

Einar Bragi Aðalsteinsson, FH (1/0)

Einar Þorsteinn Ólafsson, Fredericia (11/4)

Elliði Snær Viðarsson, Vfl Gummersbach (49/108)

Elvar Ásgeirsson, Ribe-Esbjerg (20/21)

Gísli Þorgeir Kristjánsson, SC Magdeburg (60/137)

Janus Daði Smárason, SC Magdeburg (83/135)

Orri Freyr Þorkelsson, Sporting (13/23)

Óðinn Þór Ríkharðsson, Kadetten Schaffhausen (39/116)

Ómar Ingi Magnússon, SC Magdeburg (85/298)

Sigvaldi Björn Guðjónsson, Kolstad (75/213)

Viggó Kristjánsson, SC Leipzig (56/158)

Ýmir Örn Gíslason, Rhein-Neckar Löwen (89/36)




Fleiri fréttir

Sjá meira


×