Innlent

Fjórum nígerískum ríkis­borgurum flogið til Frankfurt

Lovísa Arnardóttir skrifar
Konurnar þrjár sem flogið var til Frankfurt í nótt. Þær eru allar frá Nígeríu og verður flogið þangað í dag. Myndin er tekin fyrir tæpu árið síðan þegar konurnar höfðu fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd og höfðu að 30 dögum liðnum misst rétt til þjónustu og búsetu samkvæmt, þá nýbreyttum, útlendingalögum
Konurnar þrjár sem flogið var til Frankfurt í nótt. Þær eru allar frá Nígeríu og verður flogið þangað í dag. Myndin er tekin fyrir tæpu árið síðan þegar konurnar höfðu fengið endanlega synjun um alþjóðlega vernd og höfðu að 30 dögum liðnum misst rétt til þjónustu og búsetu samkvæmt, þá nýbreyttum, útlendingalögum Vísir/Vilhelm

Fjórum nígerískum ríkisborgurum, þar af þremur konum, var flogið af landi brott seint í gær. Auk þeirra var einn karlmaður með í för. Öll höfðu þau fengið endanlega synjun á umsókn sinni um alþjóðlega vernd á Íslandi.

Þetta kemur fram í svari frá embætti ríkislögreglustjóra um brottvísun þriggja nígerískra kvenna sem fjallað hefur verið um í fjölmiðlum síðustu daga. Fram kemur í svarinu að flogið hafi verið með fólkið til Frankfurt í Þýskalandi þar sem þau sameinuðust stærri aðgerð Frontex, Landamæra- og strandgæslustofnun Evrópu, sem nú er á leið til Nígeríu.

Konurnar þrjár sem flogið var með í gær heita Ester, Mary og Blessing og höfðu verið á landinu í um fjögur til sex ár. Allar höfðu þær greint frá því að vera þolendur mansals. Ekki er vitað hver karlmaðurinn var sem var með þeim í för. 

Vildu ekki fresta af heilsufarsástæðum

Fjallað hefur verið ítarlega um málið síðustu daga en Blessing Uzoma Newton er með æxli í kviðarholi og hafði lögmaður hennar, Helgi Þorsteinsson Silva, óskað eftir frestun brottvísunar af heilsufarsástæðum. Útlendingastofnun varð ekki við þeirri beiðni í gær og fór brottvísun fram þegar gæsluvarðhaldsúrskurður kvennanna þriggja rann út í gær.

Brottvísun þeirra var mótmælt á Keflavíkurflugvelli í gær. Þar komu saman um fimmtán til tuttugu manns frá samtökunum No Borders. Ragnheiður Freyja Kristínardóttir var á mótmælunum og sagði við fréttastofu í gær að þótt svo að þau myndu ekki stöðva brottvísun vildu þau ekki að hún færi fram í þögn.


Tengdar fréttir

Veit ekki hvort hann fái svar áður en spurningin verði úrelt

„Við höfum fengið svör en engin viðbrögð,“ segir Helgi Þorsteinsson Silva, lögmaður Blessing Uzoma Newton sem flytja á úr landi í dag. Samkvæmt læknisvottorði er hún ekki ferðafær vegna mjög slæmrar heilsu. Helgi hefur óskað eftir því að brottvísuninni verði frestað vegna þess og fengið svör um að beiðni hans hafi verið móttekin.

„Maður getur varla ímyndað sér hvað þarf að koma til“

Lögmaður kvenna sem vísa á úr landi eftir helgi segir skjóta skökku við að íslensk stjórnvöld ætlist til þess að fórnarlömb mansals stigi fram og segi sögu sína, þegar viðbrögð ríkisins séu þau að handtaka fórnarlömbin og senda þau úr landi. Konurnar segjast allar hafa verið fórnarlömb mansals áður en þær komu hingað til lands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×