Veður

Létt­skýjað í dag en von á nýrri lægð á morgun

Lovísa Arnardóttir skrifar
Það er ágætis veður fyrir golf í dag en kannski ekki eins gott á morgun.
Það er ágætis veður fyrir golf í dag en kannski ekki eins gott á morgun. Vísir/Vilhelm

Í dag er hæð suðaustur af landinu sem er á leið austur. Það er því hægviðri á sunnanverðu landinu í dag en suðvestan 5 til 13 metrar á sekúndu bæði norðan- og norðvestanlands. Hvassast er á annesjum er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofunnar.

Þar segir einnig að yfirleitt sé á landinu léttskýjað og hiti á bilinu fimm til tólf stig. Í kvöld nálgast svo lægð landið og með henni vaxandi suðaustanátt sunnan- og vestanlands og þá þykknar upp og byrjar að rigna í nótt.

Á morgun svo verður austan strekkingur og rigning eða súld með köflum en lengst af hægari vindur og þurrt norðaustantil.

Hægt er að finna nýjustu upplýsingar um veður á vef Veðurstofunnar og færð á vef Vegagerðarinnar. Flestir vegir eru greiðfærir en þó lélegt ástand á vegi. Víða er enn akstursbann á hálendi.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á föstudag:

Suðaustan og austan 5-13 m/s, hvassast við suðvesturströndina. Rigning eða súld með köflum, en lengst af þurrt á Norðurlandi. Hiti 5 til 12 stig.

Á laugardag:

Suðlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og stöku skúr á víð og dreig. Rigning sunnan- og vestanlands um kvöldið. Hiti 6 til 14 stig.

Á sunnudag:

Breytileg átt 3-8 m/s og lítilsháttar rigning eða súld en yfirleitt bjart norðaustantil. Hiti 4 til 14 stig yfir daginn, svalast á Vestfjörðum.

Á mánudag:

Norðlæg átt og slydda norðanlands, en úrkomulítið sunnantil. Kólnar heldur í veðri.

Á þriðjudag:

Útlit fyrir breytilega átt og bjartviðri, en skúrir syðst.

Á miðvikudag:

Líklega austlæg átt og dálítil rigning, en bjart norðaustantil.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×