Fótbolti

Sjáðu mörk ó­væntu hetjunnar og þegar allt trylltist á Bernabéu

Sindri Sverrisson skrifar
Joselu upplifði draum sinn í gærkvöld þegar hann kom Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með tveimur mörkum.
Joselu upplifði draum sinn í gærkvöld þegar hann kom Real Madrid í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu með tveimur mörkum. Getty/Chris Brunskill

Real Madrid tryggði sér úrslitaleik við Dortmund í Meistaradeild Evrópu í fótbolta með dramatískum 2-1 sigri á Bayern München í gærkvöld. Mörkin má nú sjá á Vísi.

Liðin höfðu gert 2-2 jafntefli í Þýskalandi og lengi vel leit út fyrir að Bayern myndi standa uppi sem sigurvegari á Santiago Bernabéu leikvanginum í gær.

Alphonso Davies skoraði nefnilega stórkostlegt mark á 68. mínútu og kom Bayern yfir. Staðan var 1-0 alveg fram á 88. mínútu þegar óvænt hetja steig fram á sjónarsviðið. 

Varamaðurinn Joselu hafði verið á vellinum í sjö mínútur þegar hann jafnaði metin eftir sjaldséð mistök Manuels Neuer í marki Bayern. 

Joselu var svo aftur á ferðinni tveimur mínútum síðar þegar hann skoraði af stuttu færi. Aðstoðardómari lyfti reyndar flaggi sínu til marks um rangstöðu en eftir skoðun kom í ljós að markið átti að standa.

Klippa: Mörk Real og Bayern

Úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu fer fram laugardagskvöldið 1. júní.


Tengdar fréttir

Aðstoðardómarinn bað Bæjara afsökunar: „Þetta er hörmung“

Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Bayern München, segir að annar aðstoðardómarinn í leiknum gegn Real Madrid í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu hafi beðist afsökunar á að hafa lyft flaggi sínu of snemma þegar Bæjarar skoruðu undir lokin. Real vann leikinn, 2-1, og einvígið, 4-3 samanlagt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×