Handbolti

„Við vorum skugginn af sjálfum okkur“

Dagur Lárusson skrifar
Anna Úrsúla.
Anna Úrsúla. Vísir/Hulda Margrét

„Það er auðvitað frábært að sigra þetta svakalega flotta Haukalið,“ byrjaði Anna Úrsúla Guðmundsdóttir, leikmaður Vals, að segja eftir sigur liðsins gegn Haukum.

„Þær mættu bara tilbúnar í leikinn á meðan við vorum bara skugginn af sjálfum okkur. Þær spiluðu rosalega vel á okkur í sókninni og tóku vel á okkur í vörninni og mér fannst við ekkert byrja leikinn fyrr en það voru svona sjö mínútur eftir,“ hélt Anna áfram að segja.

Anna var ekki klár á því af hverju liðið hafi ekki mætt tilbúið í leikinn.

„Ég veit ekki hvað það er. Hvort við værum nú þegar að bíða eftir úrslitaleiknum eða hvað, ég get eiginlega ekki svarað því, hausinn var bara ekki rétt skrúfaður á.“

Anna vill meina að svona sigur muni gefa liðinu mikið.

„Ég ætla rétt að vona að þessi leikur geri það að verkum að liðið mæti tilbúið í næsta leik. Mér finnst þessi tvö lið hafa borið af í vetur og það er því mjög gaman að kljást við Haukana og ná sigri er mjög sætt,“ endaði Anna Úrsúla að segja.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×