Veður

Vaxandi suð­austan­átt og bætir í rigningu

Atli Ísleifsson skrifar
Hiti verður á bilinu sjö til fimmtán stig yfir daginn í dag.
Hiti verður á bilinu sjö til fimmtán stig yfir daginn í dag. Vísir/Vilhelm

Veðurstofan gerir ráð fyrir vaxandi suðaustanátt á landinu í dag þar sem lægð suður af Hvarfi nálgast landið úr suðvestri.

Í hugleiðingum veðurfræðings segir að eftir hádegi verði suðaustan fimm til þrettán metrar á sekúndu og rigning eða súld með köflum. Yfirleitt verður þó hægari vindur og bjartviðri norðanlands fram eftir degi. Hiti verður á bilinu sjö til fimmtán stig yfir daginn.

„Í kvöld bætir í úrkomu sunnantil á landinu.

Seint í nótt dregur úr vindi og úrkomu en eftir hádegi á morgun gengur aftur í suðaustan 5-13 m/s og annað kvöld fer að rigna sunnan- og vestanlands.

Hlýtt loft fylgir þessari lægð og útlit fyrir að hiti nái 15 stigum norðaustantil þar sem sólar nýtur við á morgun,“ segir á vef Veðurstofunnar.

Spákort fyrir klukkan 14 í dag.Veðurstofan

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á laugardag: Suðaustlæg eða breytileg átt 3-8 m/s og stöku skúrir á víð og dreif, einkum á vestanverðu landinu. Hiti 6 til 14 stig.

Á sunnudag: Breytileg átt 3-8 m/s og rigning eða súld öðru hverju, einkum sunnanlands. Hiti 4 til 14 stig yfir daginn, svalast á Vestfjörðum.

Á mánudag: Norðan og norðaustan 5-13 m/s, hvassast vestanlands. Að mestu skýjað, þurrt og hiti 1 til 5 stig, en skúrir og hiti að 12 stigum sunnantil.

Á þriðjudag: Norðlæg átt, rigning eða slydda og hiti 0 til 5 stig, en bjart með köflum og hiti 5 til 12 stig sunnantil.

Á miðvikudag: Útlit fyrir norðlæg átt, skýjað og dálítil væta, en að mestu bjart sunnanlands. Kólnandi.

Á fimmtudag: Líklega breytileg átt og bjartviðri, en skúrir austanlands.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×