Ógiltu neitunarvald forseta til að koma fjölmiðlalögum í gegn Stjórnarflokkur Georgíu nýtti aukinn meirihluta sinn á þingi til þess að ógilda neitunarvald sem forseti landsins beitti á umdeild fjölmiðlalög í dag. Tugir þúsunda manna hafa mótmælt lögunum undanfarnar vikur. 28.5.2024 15:38
Voru látin í einhvern tíma áður en lögregla fór inn Sambýlisfólk á sjötugsaldri hafði verið látið í einhvern tíma áður en lögreglumenn fundu lík þess í húsi í Bolungarvík í gærkvöldi. Enginn er með réttarstöðu grunaðs í tengslum við andlátin en lögreglustjóri segir að krufning eigi eftir að skýra myndina betur. 28.5.2024 14:16
Yfir fimmtíu stig í hitabylgju í Pakistan Hitamælar sýndu yfir 52 gráður í sunnanverðu Pakistan í gær. Sérfræðingar segja að hitabylgja sem hefur gengið yfir Asíu síðasta mánuðinn sé bein afleiðing hnattrænnar hlýnunar af völdum manna. 28.5.2024 12:02
Forseti Perú kærður fyrir mútuþægni Ríkissaksóknari í Perú lagði fram kæru til þingsins á hendur Dinu Boluarte, forseta landsins, fyrir mútuþægni í gær. Ásakanirnar tengjast lúxusúrum og skartgripum sem Boluarte ber. 28.5.2024 09:35
Enginn í haldi í tengslum við mannslát í Bolungarvík Yfirlögregluþjónn á Vestfjörðum segir að enginn hafi verið handtekinn í tengslum við mannslát í Bolungarvík í gær. Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu var send á staðinn í gærkvöldi. 28.5.2024 08:47
Stefnir í að losunarskuldbindingar náist Útlit er fyrir að Íslands nái losunarskuldbindingum sínum á fyrstu tveimur árum Parísarsamkomulagsins samkvæmt nýjum tölum Umhverfisstofnunar. Heildarlosun jókst um eitt prósent en samfélagslosun stóð í stað. 27.5.2024 14:40
AfD náði ekki að sigra eftir hrinu hneykslismála Fjarhægriflokknum Valkosti fyrir Þýskaland (AfD) tókst ekki að tryggja sér neina sigra þrátt fyrir að hann bætti stöðu sína í kosningum í höfuðvígi sínu í Austur-Þýskalandi um helgina. Hvert hneykslismálið hefur rekið annað hjá flokknum síðustu vikurnar. 27.5.2024 13:10
Fluttur með þyrlu vegna vinnuslyss á bóndabæ Karlmaður á áttræðisaldri sem var fluttur á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar í gærkvöldi slasaðist í vinnuslysi á bóndabæ. Meiðsli hans eru ekki sögð lífshættuleg. 27.5.2024 09:54
Flugferð aflýst eftir að þjónustubíll rakst í flugvél Aflýsa þurfti flugferð útskriftarhóps til Króatíu eftir að þjónustubíll rakst utan í ítalska leiguflugvél í morgun. Ferðaskristofan Indigo segir að útlit sé fyrir að önnur flugvél fáist til þess að flytja hópinn út í dag. 27.5.2024 09:11
Enginn kemst sjálfkrafa í könnunarhóp Prósents Framkvæmdastjóri rannsóknafyrirtækisins Prósents segir að þrátt fyrir að boðið sé upp á að fólk skrái sig sjálft í könnunarhóp sem skoðanakannanir eru lagðar fyrir komist enginn þangað inn sjálfkrafa. Möguleikinn sé til staðar til að ná til hópa sem erfitt sé annars fá í hópinn. 25.5.2024 15:30