Innlent

Bíllinn í happ­drætti Ástþórs úr hans eigin smiðju

Árni Sæberg skrifar
Þessi mynd er „fótósjoppuð“ en ef allt gengur upp mun Ástþór geta stillt sér upp með eigin Hupmobile strax í haust.
Þessi mynd er „fótósjoppuð“ en ef allt gengur upp mun Ástþór geta stillt sér upp með eigin Hupmobile strax í haust. Aðsend

Fyrsti vinningur í happdrætti Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda, rafbíll af gerðinni Hupmobile, er ekki enn til. Einu ummerkin um Hupmobile á veraldarvefnum eru vefsíða framleiðandans, sem skráð er á Islandus group, fyrirtæki Ástþórs. Ástþór segir það enga tilviljun, hann eigi merkið.

Happdrætti forsetaframbjóðands Ástþórs hefur vakið mikla athygli frá því að hann tilkynnti að þeir sem mæltu með honum færu í pott og gætu unnið rafbíl af gerðinni Hupmobile K3. Síðar hóf hann að selja miða í happdrættið, áttatíu þúsund stykki.

Framleiddur í Kína en undir merkjum Ástþórs

Ástþór nýtti tækifærið þegar Vísir falaðist eftir upplýsingum um bíla forsetaframbjóðenda og sendi mynd af sér ásamt Hupmobile K3 rafbíl. Flestir lesendur tóku eftir því að myndin virtist vera unnin í myndvinnsluforriti, „fótósjoppuð“.

Ástþór með bílnum. Líklega.

Með laufléttri leit á veraldarvefnum má finna aðra mynd af bílnum hér að ofan. Þar er hann reyndar merktur kínverska rafbílaframleiðandanum Yudo.

Bíllinn er af gerðinni Yudo. Myndin er frá gríska rafbílafyrirtækinu Eco Car.

Í samtali við Vísi segir Ástþór engin brögð vera í tafli. Hann eigi vörumerkið Hupmobile, sem sé ævagamalt merki sem hafi þó ekki verið notað í lengri tíma. Bíllinn sem hægt er að vinna í happdrættinu verði framleiddur í Kína undir merkjum Hupmobile.

Hluti af metnaðarfullu verkefni

Ástþór segir framleiðslu Hupmobile hluta af metnaðarfullu verkefni, bæði hér á landi og ekki síður á meginlandi Evrópu. Hann muni bjóða Hupmobile-bifreiðar í áskrift sem og til sölu.

Einnig verði hægt að hafa bíl í áskrift á sama tíma og hann er skráður í deilibílaþjónustu á vegum Ástþórs. Þannig gætu notendur til dæmis boðið bíla sína til leigu á meðan þeir eru í vinnunni og fengið hlutdeild í tekjum af því.

Þá sé Ástþór einnig í samstarfi við pólskan framleiðanda bílaskýla með sólarsellum á. Hægt verði að kaupa allan pakkann á sama stað, rafbíl og bílaskýli sem hleður bílinn.

Á tvo gamla Hupmobile

Sem áður segir er Hupmobile ekki nýtt merki. Bílar voru framleiddir undir merkinu á árunum 1909 til 1939. Ástþór segist eiga fyrsta bílinn sem var framleiddur og annan til sem var framleiddur árið 1929.

Hupmobile árgerð 1909. Aðsend

Ástþór segist ætla að nota þessa tvo bíla í kynningarherferð fyrir nýju kynslóð Hupmobile. 

„Hupmobile var fyrsti bíllinn sem fór hringinn í kringum jörðina á sínum tíma. Við ætlum að fara svona ferð með nýja Hupmobile bílinn og gömlu bílana saman, þannig að fólk geti séð andstæðurnar. Við erum að stíla svolítið inn á svona „social media influencers“, að þeir geti keyrt báða bílana og skrifaðu um hver munurinn er.“

Hupmobile árgerð 1929. Bílar Ástþórs eru báðir í geymslu á meginlandi Evrópu.Aðsend

Ástþór segir að búast megi við fyrstu Hupmobile-bílum hans á göturnar strax í haust.


Tengdar fréttir

Facebook bannar Ástþóri að auglýsa

Auglýsingareikningi Ástþórs Magnússonar forsetaframbjóðanda á Facebook hefur verið lokað. Síða hans er enn uppi, en auglýsingar hans eru ekki lengur í birtingu og hann getur ekki keypt fleiri auglýsingar. Einnig hefur Instagram-reikningi hans verið lokað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×