Tónlist

Kom fram sem stór­stjarna

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Álfgrímur Aðalsteinsson er maðurinn á bak við poppstjörnuna Blossa.
Álfgrímur Aðalsteinsson er maðurinn á bak við poppstjörnuna Blossa. Alda Valentína Rós & Sigrún Gyða Sveinsdóttir

Útgáfutónleikar nýstirnisins Blossa fóru fram í Iðnó síðastliðið miðvikudagskvöld þar sem hann fagnaði útgáfu fyrstu smáskífu hans Le Blossi.

Maðurinn á bak við Blossa er sviðshöfundaneminn Álfgrímur Aðalsteinsson en að hans sögn er ýmislegt framundan hjá Blossa. 

Í fréttatilkynningu segir:

„Það myndaðist mikil örvænting á Instagram í síðustu viku þegar hinir ýmsu frægu einstaklingar reyndu að útvega sér miða á útgáfutónleika Blossa. Fyrirkomulagið var lotterí þar sem fólk gat sótt um miða. Færri komust að en vildu og mikil stemning myndaðist strax fyrir utan Iðnó. Allt ætlaði um koll að keyra þegar Blossi sjálfur mætti.

Tónleikarnir voru virkilega metnaðarfullir. Blossi flutti öll lögin af nýútgefinni plötu Le Blossi ásamt óútgefnu efni. Með honum á sviðinu voru sex dansarar en Júlía Kolbrún Sigurðardóttir var danshöfundur tónleikasýningarinnar. 

Blossi, sem var stíliseraður af Kötlu Yamagata, var klæddur í hvítmálað lífstykki, körfuboltabuxur með demantsnælum og 17. aldar skyrtu. Stemningin var svo gríðarleg á tónleikunum að slagur brast út í áhorfendaskaranum. 

Það kom svo í ljós að þetta voru dansarar og leiddi það yfir í flutning á laginu Le Blossi sem var að mati margra hápunktur tónleikanna.“

Meðal tónleikagesta voru margar af Reykjavíkurdætrum og var skvísustemningin í hámarki. Álfgrímur Aðalsteinsson semur tónlistina ásamt tónlistarfólkinu Kolbrúnu Óskarsdóttur (KUSK) og Hrannari Mána Ólafssyni (Óviti).

Hér má hlusta á Blossa á streymisveitunni Spotify.

Hér má sjá nokkrar vel valdar myndir frá tónleikunum: 

Fólk beið í röð til að komast inn. Alda Valentína Rós & Sigrún Gyða Sveinsdóttir
Það var mikil stemning á tónleikunum. Alda Valentína Rós & Sigrún Gyða Sveinsdóttir
Sérmerktur Blossa hattur. Alda Valentína Rós & Sigrún Gyða Sveinsdóttir
Dansarar léku listir sínar á sviðinu og tónlistarfólkið og lagahöfundarnir Kolbrún og Hrannar voru einnig á sviðinu. Alda Valentína Rós & Sigrún Gyða Sveinsdóttir
Steiney, Karítas og Þura Stína Reykjavíkurdætur létu sig ekki vanta. Alda Valentína Rós & Sigrún Gyða Sveinsdóttir
Blossi lék sér með áhorfendum. Alda Valentína Rós & Sigrún Gyða Sveinsdóttir
Dansararnir klæddust hvítu í stíl við hvítmálað lífsstykki og hvíta skyrtu Blossa. Alda Valentína Rós & Sigrún Gyða Sveinsdóttir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×