Vonar að landsliðsdyrnar séu enn opnar: „Ég hef ekki heyrt múkk“ Atvinnumaðurinn í knattspyrnu, Jón Daði Böðvarsson hefur ekkert heyrt frá núverandi landsliðsþjálfara Íslands síðan að sá tók við þjálfun liðsins. Hann vonar að landsliðsdyrnar séu enn opnar. Fótbolti 4. júní 2024 10:31
Þrír ákærðir fyrir vallarinnrás á úrslitaleik Meistaradeildarinnar Þrír menn hafa verið ákærðir fyrir sinn þátt í vallarinnrás á úrslitaleik Meistaradeildarinnar sem fór fram á Wembley síðasta laugardag Fótbolti 4. júní 2024 09:30
Markmaður Austurríkis ekki með gegn Íslandi í kvöld Manuela Zinsberger, markvörður austurríska kvennalandsliðsins í fótbolta, verður ekki með gegn Íslandi í kvöld. Fótbolti 4. júní 2024 07:47
Dæmdur í sex mánaða bann eftir að hafa verið ólöglegur allan sinn landsliðsferil Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur staðfesti að Emilio Nsue, fyrirliði Miðbaugs-Gíneu, hafi aldrei verið löglegur með liðinu á 11 ára landsliðsferli sínum. Nsue vann til að mynda markahæsti leikmaður Afríkukeppninnar sem fram fór fyrr á þessu ári. Fótbolti 4. júní 2024 07:02
Orri Steinn á lista með verðandi framherja Real Madríd Svissneska tölfræðifyrirtækið CIES hefur birt lista yfir verðmætustu framherja heims sem eru yngri en 21 árs og spila ekki í neinum af sjö bestu deildum Evrópu. Endrick, verðandi leikmaður Real Madríd, trónir á toppi listans en Orri Steinn Óskarsson er í 5. sæti. Fótbolti 3. júní 2024 23:15
„Róm var ekki byggð á einum degi“ Gregg Ryder þjálfari KR segist ekki vera stoltur af því hvernig lið hans er að spila. KR tapaði 5-3 á heimavelli gegn Val í kvöld. Fótbolti 3. júní 2024 21:51
Tryggvi Hrafn eftir sigur Vals í Frostaskjóli: „Þetta var hálfpartinn furðulegt“ „Ég segi bara allt gott, þetta var hálfpartinn furðulegt. Það var 2-0 fyrir þeim eftir 5 mínútur en einhvern veginn endum við á að vera svekktir að vera ekki með meira en tveggja marka forystu í hálfleik,“ sagði Tryggvi Hrafn Haraldsson eftir ótrúlegan sigur Vals á KR í Bestu deild karla í fótbolta. Íslenski boltinn 3. júní 2024 21:30
England gekk frá Bosníu-Hersegóvínu í lok leiks England lagði Bosníu-Hersegóvínu 3-0 í vináttulandsleik á St. James' Park í Newcastle. Mörkin komu öll í síðari hálfleik. Fótbolti 3. júní 2024 20:47
Mbappé um skiptin til Real: Draumur að rætast Franski framherjinn Kylian Mbappé er genginn í raðir Spánar- og Evrópumeistara Real Madríd. Í færslu á samfélagsmiðlum segir Mbappé draum vera að rætast sem og hann birti mynd sér með Cristiano Ronaldo þegar hann var yngri. Fótbolti 3. júní 2024 20:01
Hareide yngri orðinn yfirmaður íþróttamála hjá ensku C-deildarliði Bendik Hareide, sonur Åge Hareide – landsliðsþjálfara íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, er orðinn yfirmaður íþróttamála hjá enska C-deildarliðinu Burton Albion. Enski boltinn 3. júní 2024 19:15
Real Madríd staðfestir komu Mbappé Franski framherjinn Kylian Mbappé hefur skrifað undir fimm ára samning við Spánar- og Evrópumeistara Real Madríd. Félagið greindi frá þessu í dag. Fótbolti 3. júní 2024 18:10
Styttist í að Ten Hag fái að vita hvað framtíðin ber í skauti sér Þrátt fyrir að vinna tvo titla á sínum fyrstu tveimur árum sem þjálfari enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester United þá er framtíð Erik ten Hag í lausu lofti. Hann vonast til að fá hana á hreint á næstu dögum. Enski boltinn 3. júní 2024 17:46
Evrópudeildarmeistari sleit krossband í lokaleiknum og missir af EM Giorgio Scalvini, leikmaður Atalanta og ítalska landsliðsins, sleit krossband í síðasta leik tímabilsins og missir af Evrópumótinu í sumar. Fótbolti 3. júní 2024 17:00
Vinícius Júnior valinn bestur í Meistaradeildinni Vinícius Júnior var valinn besti leikmaður Meistaradeildar Evrópu á nýafstöðnu tímabili. Fótbolti 3. júní 2024 15:31
Fækkar um einn í íslenska landsliðinu Willum Þór Willumsson er meiddur og mun því ekki leika með íslenska landsliðinu í komandi vináttuleikjum liðsins gegn Englandi og Hollandi á næstunni. Fótbolti 3. júní 2024 14:03
Mbappé tilkynnir í kvöld hvar hann mun spila á næsta tímabili Kylian Mbappé mun í kvöld loks greina frá því hvar kröftum hans verður varið á næsta tímabili. Real Madrid er enn sem áður langlíklegasti áfangastaðurinn. Fótbolti 3. júní 2024 13:04
Real Madrid mun festa kaup á Joselu Real Madrid hefur ákveðið að virkja klásúlu í samningi og festa kaup á framherjanum Joselu. Fótbolti 3. júní 2024 13:00
Nagelsmann sammála Kimmich og fordæmir rasíska könnun Þýski þjálfarinn Julian Nagelsmann tók undir orð landsliðsmannsins Joshua Kimmich og segir fáránlegar spurningar settar fram í rasískri könnun ríkismiðilsins ARD. Fótbolti 3. júní 2024 11:01
Neymar hló að Ronaldo Ýmsir höfðu gaman að óförum Cristianos Ronaldo í úrslitum konungsbikarsins í Sádi-Arabíu, meðal annars Neymar. Fótbolti 3. júní 2024 08:30
Bellingham bað um bolamynd eftir úrslitaleikinn fyrir mömmu sína Jude Bellingham varð í gærkvöldi Evrópumeistari með liði sínu Real Madrid eftir 2-0 sigur á Dortmund í úrslitaleik. Það var hins vegar stórstjarnan sjálf sem var á fullu í bolamyndum eftir leikinn. Fótbolti 3. júní 2024 07:01
Bayern vill kaupa leikmann af ósigruðu meisturunum Bayer Leverkusen varð þýskur meistari á nýliðnu tímabili eftir að hafa farið ósigraðir í gegnum tímabilið. Þeir gætu hins vegar misst einn af sínum mikilvægustu mönnum til stórliðs Bayern Munchen. Fótbolti 2. júní 2024 22:45
„Mér var sagt að drulla mér í burtu og grjóthalda kjafti“ Það var ýmislegt sem Ómar Ingi Guðmundsson gat verið ósáttur við í kvöld þegar HK tapaði fyrir Breiðablik 0-2 í Kórnum. Leikið var í 9. umferð Bestu deildar karla og náðu HK-ingar því ekki að fjarlægjast fall svæðið í þetta sinn. Fótbolti 2. júní 2024 22:10
„Skiptir ekki máli hvort ég sé þungur eða léttur, ég skora alltaf“ Annar markaskorara Breiðabliks var að vonum sáttur með leik liðsins í kvöld og eigin frammistöðu. Ísak Snær Þorvaldsson skoraði seinna mark gestanna í byrjun seinni hálfleiks til að tryggja öll stigin fyri Breiðablik í 2-0 sigri þeirra í Kórnum í kvöld. Fótbolti 2. júní 2024 21:30
Bjarki Steinn og Mikael Egill upp í Serie A með Venezia Venezia sem Bjarki Steinn Bjarkason og Mikael Egill Ellertsson leika með tryggði sér sæti í Serie A deildinni á Ítalíu á næstu leiktíð eftir 1-0 sigur á Cremonese í seinni umspilsleik liðanna. Fótbolti 2. júní 2024 20:29
Uppgjörið: Víkingur R. - Fylkir 5-2 | Öruggt hjá meisturunum eftir erfiða byrjun Úrslitin voru eftir bókinni í Víkinni í kvöld þegar efsta lið Bestu deildar karla mætti því neðsta. Víkingur tók á móti Fylki og sigruðu heimamenn 5-2 í ansi fjörugum leik. Íslenski boltinn 2. júní 2024 18:56
Uppgjör, viðtöl og myndir: HK - Breiðablik 0-2 | Blikar lönduðu þremur stigum í Kórnum Tvö mörk sitt hvoru megin við hálfleikinn dugði Breiðablik til að landa öllum stigunum í Kópavogsslagnum í 9. umferð Bestu deildar karla í kvöld. Blikar hefðu hæglega getað skorað fleiri mörk en tvö dugðu í þetta sinn. Blikar halda því í við Víking í topp baráttunni. Íslenski boltinn 2. júní 2024 18:30
Elías Már og félagar upp í efstu deild eftir ótrúlega dramatík Elías Már Ómarsson og liðsfélagar hans í NAC Breda tryggðu sér í dag sæti í hollensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þrátt fyrir 4-1 tap gegn Excelsior í seinni umspilsleik liðanna um sæti í efstu deild. Fótbolti 2. júní 2024 17:59
Hilmir skoraði fyrir Kristiansund í langþráðum sigri Hilmir Mikaelsson skoraði fyrir Kristiansund þegar lið hans Kristiansund vann sinn fyrsta sigur í norsku deildinni síðan í apríl. Logi Tómasson og Strömgodset töpuðu hins vegar stigum á heimavelli. Fótbolti 2. júní 2024 17:29
Valgeir Lunddal á skotskónum í öðrum leiknum í röð Valgeir Lunddal Friðriksson er kominn á fullt eftir meiðsli og er líka búinn að klæða sig í skotskóna. Fótbolti 2. júní 2024 16:24
Uppgjörið og viðtöl: Vestri-Stjarnan 4-2 | Vestramenn með stjörnuleik Vestramenn hoppuðu upp fyrir HK og upp í níunda sæti Bestu deildar karla í fótbolta eftir 4-2 heimasigur á Stjörnunni en leikurinn var spilaður í Laugardalnum. Stjörnuliðið hefur fengið á sig níu mörk í síðustu tveimur leikjum. Íslenski boltinn 2. júní 2024 15:55