Sport

Dag­skráin í dag: Stútfullur sófasunnudagur

Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar
Víkingar taka á móti FH í kvöld eftir óvænt tap gegn HK í síðustu umferð Bestu-deildarinnar.
Víkingar taka á móti FH í kvöld eftir óvænt tap gegn HK í síðustu umferð Bestu-deildarinnar. Vísir/Pawel

Sportrásir Stöðvar 2 og Vodafone bjóða upp á hvorki fleiri né færri en átján beinar útsendingar á þessum fína sunnudeg. Því ættu allir að geta fundið sér eitthvað við sitt hæfi.

Stöð 2 Sport

Undanúrslitin í Subway-deild karla halda áfram þegar Keflavík tekur á móti Grindavík í fjórða leik liðanna. Grindvíkingar leiða einvígið 2-1 og geta því tryggt sér sæti í úrslitum með sigri á útivelli.

Bein útsending frá leiknum hefst klukkan 18:45 og að leik loknum verður Subway Körfuboltakvöld á sínum stað þar sem farið verður yfir allt það helsta sem gerðist.

Stöð 2 Sport 2

Ítalski boltinn á heima á Stöð 2 Sport 2 og klukkan 10:20 hefst bein útsending frá viðureign Lazio og Empoli. Klukkan 12:50 verður Albert Guðmundsson svo í eldlínunni með Genoa gegn Sassuolo áður en Juventus og Salernitana eigast við klukkan 15:50.

Klukkan 19:30 færum við okkur svo yfir í NBA-deildina þar sem Indiana Pacers og New York Knicks eigast við.

Stöð 2 Sport 3

Real Madrid og Baskonia mætast í spænsku ACB-deildinni í körfubolta klukkan 16:20 áður en Atalanta tekur á móti Roma í ítalska fótboltanum klukkan 18:35.

Stöð 2 Sport 4

Cognizant Founders Cup á LPGA-mótaröðinni í golfi heldur áfram frá klukkan 17:00.

Stöð 2 Sport 5

Íslandsmeistarar Víkings þurfa að rétta úr kútnum eftir óvænt tap í síðustu umferð gegn HK í Bestu-deild karla og liðið tekur á móti FH klukkan 19:00 í kvöld. Að leik loknum verða Ísey Tilþrifin svo á dagskrá þar sem hlaupið verður yfir það helsta úr leikjum dagsins.

Stöð 2 Besta-deildin

Kr og HK eigast við í Bestu-deild karla í knattspyrnu klukkan 16:50 á hliðarrás Bestu-deildarinnar og á hinni hliðarrásinni mætast Fylkir og Breiðablik klukkan 19:05.

Vodafone Sport

Fótboltinn á að mestu sviðið á Vodafone Sport í dag og við hefjum leik á viðureign Norwich og Leeds í ensku B-deildinni klukkan 10:55 áður en WBA og Southampton eigast við klukkan 13:10.

Klukkan 15:25 taka fráfarandi Þýskalandsmeistarar á móti Wolfsburg og nýkrýndir meistarar í Bayer Leverkusen heimsækja Bochum klukkan 17:25.

Að lokum eigast Braves og Mets við í NHL-deildinni í íshokkí klukkan 23:00.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×