Fótbolti

Atalanta skrefi nær Meistara­deildar­sæti

Siggeir Ævarsson skrifar
Charles de Ketelaere var hetja Atalanta í kvöld
Charles de Ketelaere var hetja Atalanta í kvöld Vísir/EPA-EFE/MICHELE MARAVIGLIA

Atalanta tók á móti Róma í Seríu-A í kvöld en liðin eru í harðri baráttu um 5. sætið í deildinni sem er síðasta sætið sem gefur þátttökurétt í Meistaradeildinni.

Hinn belgíski Charles de Ketelaere var hetja heimamanna í kvöld en tvö mörk frá honum á 18. og 20. mínútu dugðu þeim til sigurs að þessu sinni. 

Lorenzo Pellegrini minnkaði muninn úr víti í seinni hálfleik en Atalanta lágu í sókn nánast allan leikinn þrátt fyrir að ná aðeins að skora tvö mörk.

Sigurinn þýðir að Atalanta er í 5. sæti með 63 stig, þremur stigum meira en Róma og eiga leik til góða þegar tvær umferðir eru eftir af deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×