Enski boltinn

Stendur með Salah og skilur pirring hans

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Mohamed Salah á ferðinni í 2-2 jafntefli Liverpool við West Ham United í gær.
Mohamed Salah á ferðinni í 2-2 jafntefli Liverpool við West Ham United í gær. getty/Rob Newell

Alan Shearer kom Mohamed Salah, leikmanni Liverpool, til varnar vegna rifrildisins við Jürgen Klopp, knattspyrnustjóra liðsins, í leiknum gegn West Ham United í gær. Shearer skilur pirring Salahs.

Egyptinn reifst við Klopp skömmu áður en hann kom inn á sem varamaður eftir að Michail Antonio jafnaði fyrir West Ham í 2-2.

Salah hellti svo olíu á eldinn með ummælum sínum eftir leikinn á Lundúnaleikvanginum. Er hann var beðinn um viðtal í leikslok sagði hann að allt myndi loga ef hann tjáði sig.

Í Match of the Day á BBC tók Shearer upp hanskann fyrir Salah og sagðist skilja gremju hans.

„Við vitum ekki hvað Klopp sagði við hann þarna. Hann sagði eitthvað sem fór í taugarnar á honum. Hann er örugglega pirraður að vera á bekknum og það skiljanlega, jafnvel þótt hann hafi ekki náð sömu hæðum sem hann hefur gert síðustu ár. Hann hefur verið ótrúlegur leikmaður. Hann hunsar Jürgen, klappar aðeins fyrir stuðningsmönnum Liverpool og fer svo til búningsherbergja,“ sagði Shearer.

„En við erum að giska hvað Jürgen sagði við hann. Ég skil að hann sé pirraður vegna þess hversu oft hann hefur verið bjargvættur og ofurstjarna Liverpool. Hann er með sautján mörk í 25 leikjum í byrjunarliði. Hjá öllum öðrum teldist það frábært tímabil. Það er synd að þetta skuli enda svona vegna þess hvað Klopp og Salah hafa gert.“

Salah hefur skorað 24 mörk í öllum keppnum á tímabilinu en hefur ekki náð sömu hæðum eftir hann meiddist í Afríkukeppninni í janúar.

Liverpool er í 3. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með 75 stig, einu stigi á eftir Manchester City og tveimur stigum á eftir Arsenal. Liverpool hefur leikið einum leik meira en Arsenal og tveimur leikjum meira en City.


Tengdar fréttir

Klopp: Verð hamingju­samur ef rétt á­kvörðun er tekin

Jürgen Klopp, þjálfari Liverpool, var heldur súr eftir 2-2 jafntefli sinna manna gegn West Ham United í ensku úrvalsdeild karla í fótbolta fyrr í dag. Hann ræddi við fjölmiðla um leikinn og mögulegan arftaka sinn, Arne Slot.

Antonio eyðilagði endurkomu Rauða hersins

Titilvonir Liverpool eru orðnar afar veikar eftir 2-2 jafntefli við West Ham United í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Liverpool var undir í hálfleik, kom til baka en Michail Antonio skoraði jöfnunarmark West Ham þegar þrettán mínútur voru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×